Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 49

Faxi - 01.12.1980, Page 49
INGIÞÓR GEIRSSON: Lúðrasveit Keflavíkur Einn er sá þáttur í bæjarlífinu, sem menn hafa e.t.v. veitt at- hygli á undanförnum árum, aö viö útihátíöahöld hefur Lúöra- sveit Keflavíkur ekki mætt til leiks. Mig langar i nokkrum orðum aö rekja gang þessara mála og leiða hugannað því, hvers vegna svo er komið. Það var í ársbyrjun 1956 að saman komu 20 bjart- sýnir menn með það í huga að efla tónlistarlífið í bænum meö því að stofna lúðrasveit. Hvatamenn að þessu voru þeir Guðmundur Norðdal og Guð- mundur Guöjónsson, sem með elju og dugnaöi undirbjuggu þennan fund og stöppuðu stál- inu í okkur sem mættir voru. Fæstir okkar höfðu komist i kynni við starfsemi lúðrasveita eða lært nokkuð í hljóðfæraleik. Á fundi þessum má segja aö einungis hafi verið fyrir hendi áhugi og bjartsýni viö að koma upp slíku fyrirtæki. Þann 15. janúar 1956 var svo Lúðrasveit Keflavíkur stofnuð og voru stofnendur 26 að tölu. Næsta verkefni var svo að út- vega fjármagn til hljóðfæra- og nótnakaupa. Við það lögöu menn á sig mikla vinnu og má segja að mestur hluti starfsinstil að byrja með hafi fariö í það. Víða var leitað fanga, gengið um bæinn með samskotalista,fariö í fyrirtæki og leitað til bæjarfé- lagsins. Þess utan voru haldnir dansleikir, bingó og hlutaveltur, því þetta var kostnaðarsamt fyr- irtæki, hljóðfæri, nóturog áhöld dýr í innkaupum. Ákveðið var að öll minni hljóð- færi keyptu félagsmenn sjálfir. Þaö var því stór stund þegar hljóöfærin sem pöntuð voru um veturinn komu og voru afhent mönnum þann 9. júlí 1956. En ekki var allt fengiö þó að hljóðfærin væru komin, það þurfti að læra að leika á þau. Þar kom reynsla og menntun Guð- mundar Norðdal að góðum not- um, því honum tókst ótrúlega vel aö koma mönnum af stað þannig að áhuginn vaknaði og menn lögðu sig alla fram við námið. Fyrsti formaöur félagsins var kosinn Guðmundur Guðjóns- son, ritari Baldur Sigurbergs- son og gjaldkeri Guðfinnur Sigurvinsson. Stjórnandi sveit- arinnar var Guömundur Norð- dal. Þá hófust æfingar af fullum krafti og var æft saman tvisvar í viku allan veturinn og varö ár- angurinn m.a. sá, að Lúðrasveit Keflavíkur kom fram við útihá- tíöarhöld þá um voriö og mætti á landsmót hjá Sambandi ís- lenskra lúðrasveita, sem haldið var á Akureyri voriö 1957 og lék þar nokkur lög. Húsnæöismál fyrirstarfsemina æfingar og fundi var erfitt að leysa og gekk þaö fremur illa fyrst um sinn, eða þar til við fengum leigðan skúr við Tjarn- argötu. Skúrþennan innréttuðu félagsmenn í sjálfboðavinnu. Síöan varTónlistarskólinn þartil húsa í nokkur ár. Eitt var það áhyggjuefni, sem menn veltu fyrir sér, en það var endurnýjun manna í sveitinni', það er ekki svo gott fyrir mann sem ekki hefur lært neitt í hljóð- færaleik, að komast inn í lúöra- sveit sem starfar af fullum krafti. Því var það m.a. fyrir tilstilli stjórnar Lúörasveitar Keflavíkur að stofnuð var lúörasveit drengja í Barnaskóla Keflavíkur árið 1961. Von okkar var sú að þaöan kæmi mannskapur sem gengi inn í sveitina í framtíöinni. Þetta bar þann árangur, að fjórum árum seinna gengu 14 drengir í Lúðrasveit Keflavíkur sem fullgildir hljóðfæraleikarar og svo aftur eftir fjögur ár 17 drengir. Eftir það varð sú breyt- ing á að Lúörasveit drengja var lögð niður í þeirri mynd sem verið hafði, og kennsla A blást- urshljóðfæri færð inn í Tónlist- arskóla Keflavíkur. Eftir þá breytingu komu ekki nýir menn inn í sveitina. Starfiö á þessum árum gekk upp og ofan eins og gengur í flestum félögum. Gömlu stofn- félagarnir fóru að tínast úr hópn- um og þeir drengir sem komu í sveitina störfuðu flestir stuttan tíma vegna f ramhaldsnáms og af fleiri orsökum. Starfsemin var þó í grófum dráttum sú, að mest- ur tíminn fór í æfingar. Æft var tvisvar í viku á haustin og vet- urna og síöan spilað úti á sumrin við ýmis tækifæri. Einnig var leikið um jólin og við álfabrennu á þrettánda. Haldnir voru tón- leikar m.a. í kirkjunni og þá með kór. Hljómleikar voru haldnir í Félagsbíó. En stærstu hljómleik- arnir voru árið 1970 þegar Lúðrasveit Keflavíkur stóð fyrir landsmóti Sambands íslenskra lúðrasveita hér í Keflavík. Það var geysimikil vinna en uppskar líka mikla ánægju, þegar mættar voru lúörasveitir víðsvegar að af landinu og marseruðu niðuralla Hafnargötu og léku hverfyrirsig nokkur lög og síðan allar sam- eiginlega hér í skrúðgarðinum. ( þessari Lúðrasveit íslands, eins og hún er oftast nefnd á þessum mótum, voru um það bil 250 blásarar. Félagslíf var líka gott, haldin voru skemmtikvöld, farið í heim- sóknir til lúðrasveita í öðrum byggðarlögum og oftast endaði starfsárið með ferðalagi út á landsbyggöina. Orsakir þess aö starfsemi sveitarinnar lagðist niður eru sjálfsagt margar. Stofnfélagarn- ir voru allir hættir að starfa og við tóku þeir drengir sem komu úr drengjalúörasveitunum. Þeir voru e.t.v. of ungirog óreyndirtil að ráða við verkefniö. Það er tímafrekt að starfa í lúörasveit ef árangur á að nást, menn verða að vera mjög áhugasamir og leggja sig alla fram svo þaö geti gengið. Hér í Keflavík eru án efa til nógu margirmenn sem lært hafa á blásturshljóöfæri til þess að lúörasveit geti starfað, og það er merkilegt að í 6500 manna bæ skuli ekki vera öflug lúðrasveit. Það ætti ekki að vera eins erfitt að endurvekja sveitina eins og að byrja frá grunni, ef menn sem hafa áhuga sameinast um verk- efniö. Eitthvað mun vera til af hljóöfærum frá sveitinni, þó er sjálfsagt búið að glata sumu, allgott nótnasafn á sveitin að eiga. Skólalúðrasveit er nú tekin til starfa á ný og vonandi veröur haldiö áfram á þeirri braut, því þó langt sé í land þar til þeir verða útskrifaðir er verið að vinna að uppbyggingu fyrir framtíðina. Með þetta í huga vona ég að Lúðrasveit Keflavíkur mæti til leiks á ný. Lúörasveit Keflavlkur á fyrstu árum slnum FAXI - 213
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.