Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 50

Faxi - 01.12.1980, Page 50
JÓHANN PÉTURSSON: Þróun íbúðabygginga síð- ustu 40 árin og áhrif hennar á þjóðfélagið Þar sem ég er ekki fagmað- ur mun ég ekki ræða hvernig hús eru byggð eða úr hvaða efni, þó það sé ærið um- ræðuefni, þó ekki væri nema flötu þökin og allar sþrung- urnar í steinhúsunum. Við sem komin erum yfir60 ára aldurinn höfum nokkurn samanburð. Mörg okkar, ef ekki öll, munum að 2 og jafn- vel 4 börn sváfu í sama her- berginu, og komið var fyrir hákojum eins og kallað var. íbúðin eða einbýlishúsið var af stærðinni 60-80 ferm. og fjölskyldustærðin 5-10 manns og stundum fleira. Að sjálfsögðu mátti verða hér nokkur breyting á, og hún hefur vissulega orðið hvað varðar stærð íbúðar, en hvort þróunin hefur orðið of örsíð- ustu 40 árin eru eflaust skipt- ar skoðanir. Eftir að síðari heimsstyrj- öldinni lauk var hér mikill skorturá byggingarefni, regl- ur voru settar um stærð íbúða sem kenndar voru við fjárhagsráð og kallaðar voru smáíbúðir. Fljótlega vargefið eftir um hámarksstærö íbúða eða menn fóru ekki eftir settum reglum. Kapphlauþið mikla hófst, mikill fjöldi ung- menna íærði húsasmíði, enda var það arðvæniegur atvinnuvegur, eftirspurn var mikil og langur vinnudagur við húsbyggingar hófst og hefur staðið óslitið síðustu 30 árin. Fljótlega eftir að húsnæð- ismálastjórn tók til starfa var það viðurkennt að mestu þegar talað var um fjölskyldu stærð, að hvert barn skyldi hafa sitt herbergi. Þetta kall- aði á verulega stækkun á íbúðarhúsnæöi. Sé farið fljótt yfir sögu til dagsins í dag kemur eftirfar- andi í Ijós, að vísu undan- tekningar. Nú fyrir skömmu las ég í einu dagblaðanna viðtal við húsbyggjendur í Breiðholti þar sem byggð voru einbýlishús. Blaðamað- urinn gekk á milli húsanna og tók húsbyggjendur tali. Allir kvörtuðu yfir peningaleysi og notuðu miður góð orð um bankastjóra sem allir vildu þó hjálpa. Eftir að hafa rætt við 5 húsbyggjendurspurði blaöa- maöurinn þann sjötta: Hvað er húsið stórt? Svarið var: Þetta er ekki stórt hús, það er minnsta húsið í götunni, það er þara 250 ferm. að flatar- máli. Og nú fyrir skömmu var sagt frá því að sótt hafi verið um lóð fyrir einbýlishús á Seltjarnarnesi, 450 ferm. að stærð, að vísu var 70 ferm. sundlaug innifalin, þannigað íbúðin var bara 380 ferm. Hér má segja að um undantekn- ingu sé að ræða hvað varðar þetta eina hús. En er þetta ekki allt í lagi? Er ekki gaman að sjá þessi glæsilegu hús? Er ekki ánægjulegt að ungt fólk sé komið í stór og glæsileg ein- býlishús jafnvel áður en það nær þrítugsaldrinum? Er ekki langþráðu takmarki náð, blasir ekki lífið við fjölskyld- unni, er ekki allt slétt og fellt? Eða er eitthvað aö, hefur markið verið sett of hátt? Hefur verið tekið tillit til að- stæðna? Ef skoðað er bakvið tjöldin kemur ýmislegt í Ijós. Mér kemur í hug viðtal sem frétta- maður útvarps átti við prest nú fyrir nokkrum mánuöum um vandamál ungra hjóna. Spurt var hvernig stæði á ört vaxandi skilnaði hjá ungu fólki, og reyndar þeim eldri líka. Presturinn svaraði, ástæðurnar eru margar en ein af aðal ástæðunum eru húsnæðisvandamálin. Fólk á aldrinum frá 25 til 35 ára hafði ekki náð því takmarki að vera eins og pabbi og mamma, að hafa annað hvort eignast stóra og góða íbúð, einbýlishús, bíl eða önnur lífsþægindi. Þau hafa mörg ekki þoiinmæði og tíma til að taka iífið í áföngum. Það verður að viðurkenn- ast í þessu sambandi, að undanfarin 25 til 30 ár hefur það verið talin ein sú besta fjárfesting að byggja íbúðar- hús eða önnur hús úr stein- steyþu, þannig hefur eignin fylgt verðbólgunni að nokkru. Húsnæðsmálastjórn hefur svo til eingöngu lánað út á nýbyggingar. Síðustu 3 árin hefur þó oröið nokkur breyt- ing á, nú er farið að lána út á eldra húsnæði. Margir hata sótt eftir kaupum á eldra hús- næði, sér í lagi ungtfólk. Með þessu móti minnkar bygg- ingahraðinn og mikið eldra húsnæði nýtist betur. Ég tel að húsnæðismálastjórn ætti að lána hætti upþhæðir til kaupa á eldra húsnæði en hún gerir í dag, með því skapast jafnvægi, fólk sem komið er á efri ár gæti losnað við stundum alltof stórar íbúðir og keypt sér minna. Ef gerður er samanburður á fjölskyldustærð fyrir 40 ár- um, þá var meðaltalið 6-7 manns, en í dag er það sem kallað er kjarnafjölskylda 3.15. Ef þetta er skoðað svo- lítið nánar kemur í Ijós að í lögsagnarumdæmi Reykja- víkur eru taldar vera 32.100 íbúðir sem þýðir 2.6 meðal fjölskyldustærð. Sé landið skoðað í heild með 74.000 íbúðir, verða rúmir 3 á íbúð og milli 10 og 15 þúsund íbúðir eru yfir 140 ferm og stærri. Þetta gerist á meðan fjöl- skyldustærðin fer stöðugt minnkandi. Þetta er gífurleg breyting á ekki lengri tíma en 40 árum. Ég er ekki talsmaöur boða og banna og vil að menn ráði sér sjálfir, en ég held að sumar íbúðabygg- ingar séu komnar út fyrir skynsamleg og þjóðhagsleg mörk. Þeir sem eru að setja á stofn heimili í dag ráða að öllu jöfnu ekki við þann kostnað sem því fylgir að eignast heimili þrátt fyrir það að bæði vinna utan heimilis. Fjárhagsvandræði margra heimila er fyrst og fremst vegna húsnæðismála, þar kreppir skórinn. En hvað er til ráða? Sú kynslóð sem í dag byggir þetta iand er alin uþp við það að hver skuli eignast þak yfir höfuðiö. Það er að sjálfsogöu æskilegt, ef það er mögulegt svo vel fari. Mín skoðun er sú að það sé að verða óhjákvæmilegt að til komi oþinber og félagsleg aðstoð, ekki til að gefa neinum neitt, heldur til að koma upp ódýrum hæfilega stórum íbúðum, þar sem at- borgunarskilmálar eru við- ráðaniegir venjulegu daglaunafólki, sér í íagi fyrir þá sem eru að hefja búskap. Leigjandinn hefur aldrei búið við neitt öryggi á íslandi. Það skiptir engu máli þótt hann standi í skilum með húsaleiguna, hann verðurað víkja ef húseigandanum sýnist svo. Þetta öryggisleysi hefur rekið margan heimilis- föðurinn út í byggingarfram- kvæmdir, sem hann í sumum tilfellum hefur engan vegin ráðið við. Húsnæösimálastjórn ætti að byggja og eiga leiguíbúðir víða um landið, breyta þarf húsaleigulögunum þannig að leigjandinn búi við meira öryggi en hann býr við í dag. Ekki ma gleyma þeim mörgu ungu mönnum og konum sem hafa komið sér upþ eigin húsnæði á undan- förnum áratugum og allt hefur farið vel, þó sumir hafi ekki höndlað lífshamingjuna vegna þess að þeir hafa spennt bogann of hátt. Mín skoðun er sú og hefur verið lengi, að sá mikli hraði sem er ríkjandi til að eignast sem mest á sem stystum tíma, skapi ekki varanlega lífsham- ingju. Það er flestum nauð- synlegt að eignast hlutina í áföngum og eftir efnahag. Það eykur lifshamingjuna að hafa ekki lokið öllu of snemma, eiga einhverja áfanga eftir. Eftirvæntingin og vonin er hverjum manni nauðsynleg, að minnsta kosti fram yfir 50 ára aldur- inn, þar sem meðalaldur karla er orðinn 76 ár og kvenna yfir 30 ár. GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á liöna árinu. Fer&amífiatfifiln hf. c/o B|ami Valtýtson Siml 1286 - 1516 GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Þökkum viöskiptin á liöna árinu. Fiskverkun Axels og Péturs Sími 2587 GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Duus ht. - Sími 2009 GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Þökkum viöskiptín á liðna árinu. Efnalaug Suðurnesja - Simi 1584 FAXI - 214
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.