Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 57

Faxi - 01.12.1980, Page 57
ÁGRIP AF VEÐURSPÁM Framh. af bls. 219 og væru þau sunnan við háhvolfið , þá var ekki þurrviðris að vænta næsta dag, en ef þau voru neðarlega á norðurlofti, ef til vill alveg niður við fjöllin, það þótti vita á þurrk. Svipuð spá gilti um stjörnurnar, ef þær tindruðu mikið þá var sagt að hann væri ,,hvass á stjörnurnar" átti það einnig að vita á vind. Þá var þaö ef mjög var þétt stirndur og bjartur himinn, án þess vera um tunglsbirtu að ræða, það vissi á úrkomu. Og þá var það litróf lofts, þar var nú margar rúnir aö ráða (, t.d. þeg- ar glitti í smá heiðríkjugöt í austri niður viö jörð sem roðnuðu við sólris. það voru hinar svonefndu og réttu austantórur sem ávallt boðuðu austan rigning, svo ef loftið var svo blátært yfir öræfajökli aö morgni og skæri undan tánni- það var þannig orðað í Meðal- landi þegar öræfin hyllti uppi snemma dags-, en kæmi (Dað fyrir þurfti nú ekki að reikna með þeim degi þurrum til enda. Nú þá var það morgunroðinn, hann veit alltaf á úrkomu og oftfyrren varir sé hann mikill strax með sól, aftur á móti var kvöldroði oftar fyrir góðviðri, en gat þó brugðist. Þá voru það klósigar blikudrög sem lágu um þvert loftiö, til ýmsra átta, en oftast í reglulegum línum hliö við hliö og mættust allar að síðustu til endanna og ævinlega var vinds að vænta frá þeim enda er mjórri var og því hvassari sem breytingar voru örari, en þá kom að því að ráða, eftirtil skýanna, hvort úrkoma myndi fylgjastorm inum, en þaö var oftast stórt atriði einkum um sláttinn hér á Suðurlandi, því sjaldan var þurrkur ofmikill þar á þeirri árstíð. Sæust sólstafir fyrir miðjan morgunn þá var hætta á skúrum þann daginn, en varla fasta úrkomu. Væri mikið um Ijósar blikuklær hingaö og þangað um loftið vissi þaö ævinlega á úrkomu enda nefndar vætuklær og sumir hinir róttækari rosaklær, og mátti nokkuð meö vissu ákvaröa áttina eftir því hvernig klærnar beygöust. Þá var það tunglið, sitthvað var í það rýnt og spáð þar eftir en því miður er ég mjög fáfróður þar um, skal þó telja það er ég minnist hafa heyrt: Stafnahvasst -bjart tungl sprungiö út í suöri, vissi á kalda norðanátt og væri það með daufum lit, þá vissi þaö á vond veöur. Annars heyrði ég einu sinni mann úr Noröurlandi segja: Það er ekkert hægt að spá í tunglið fyrr en eftir fimmtuna, þaö er að segja eftir 5 fyrstu daga frá tunglkomu. Þetta hafði ég aldrei heyrt fyrr hér syðra og hugsa að það hafi sjaldan veriö haft á orði. Þá minnist ég eins, ef tungl grúfði mikið áfyrsta kvart- eli, þá mundi þaö verða sjóslysa- tungl. Svona var spurt og leitað svara, kynslóð eftir kynslóð. Þá var það meðan lýsislamparnir með fífukveiknum voru enn notaöir í baöstofum og annars staðar þar sem Ijósvant var, þá var vel að því hugaö hvernig Ijósið brann, ef það logaði stillt og rólega vissi það á blíðu og logn, en brynni það óstillt og glossaði upp með miklum breytingum það vissi á vont veöur. Þetta fór ekki fram hjá þeim er átti að skara í Ijósiö, því kveikurinn brann mikið hraðar ef Ijósið logaði óstillt, auk þess sem birtan var flöktandi og notaðist illa, og mátti þó varla spillast. Á þessu var mikið mark tekið og þótti nokkuð öruggt, að minnsta kosti þarsem áfífukveik lifði. Þá voru það dýrin, þau áttu sína veðurvita, alkunnar og óteljandi eru sögurnar af for- ustufénu, sem svo að segja sýndust vita á sig öll veöraþrigöi og höguðu háttum sínum þar eftir, en gafst oft illa að breyta gegn því. Vel man ég eftir því er ég var smali á kvíánum á Kaldrananesi ef ærnar hristu sig er búið var að koma þeim í kvíarnar, væru mikil brögð að því vissi það alltaf á vont veöur. Svo voru það hrossin þau voru eigi að siður næm á veöurbreyt- ingar, t.d. hross sem gefiö var á vetrum og látin aöeins út er gott var veður velltu þau sér venju fremur mikið, hristu sig og legöust svo von bráðar niöur á fætur sér- ekki afvelta- og stungu svo munninum ofan í jörðina, þetta vissi á harðindi og vakti Ijótan grun er leið að vori. Þetta hef ég staöreynt oft og borið það undir merkilegan og athugulan hestavin og taldi hann þetta einnig sína reynslu. Vafalaust er það eins með dýrin eins og manninn að þau eru misvitur og misnæm að varast duttlunga tilverunnar og sýnast þau oft, jafnvel þau smæstu, vera betur búin þeim hyggindum sem í hag koma á hverjum tíma heldur en viö mennirnir, þó engan hafi þau háskólagenginn veöurfræöing til að útreikna og ákvarða veðurfariö langt fram i tímann, nægir þar að minnast á hagamúsina. Þetta litla gullfallega dýr. Það má ganga aö því visu að hafi hún áberandi umsvif framar venju á haustin, ef til vill í híbýlum manna, þá veit það á haröan vetur. En hún hefur nú fengiö það vit með reynslu liðinna kynslóöa aö eigi muni á annaö aö treysta en sjálfa sig með aödrætti, þó varla mundi hún þá alltaf fara eftir ströngustu lögum um eignarétt, enda fékk hún oft harðan og ómildan dóm fyrir, þó öll væru hennar afbrot í lífs nauösyn unnin, en þaðerönnursaga. Hitt er torráðin gáta hvaðan dýrunum kemur sú vitneskja sem knýr þau til frekari athafna í einn tíma en annan og sem ótvírætt sýnist benda á næma skynjun á hættulegar breytingar veðurfarsins langt fram í tímann. Úr því ég fór a minnast á hagamúsina, þá ætla ég láta fylgja hér smá músasögur og eina þeirraerég var sjálfursjón- arvottur að og sem okkur er sáum varð það minnisstæð, að ekki gleymdum meðan báðir lifðu og er fyrir mér enn Ijóslifandi og hér kemur sagan. Það var vetur einn á Þorláksmessu, ég á þá heima á Kaldrananesi í Mýrdal, að við bræðurnir Ormur og ég erum sendir austur í Vík til að kaupa einherjar nauösynjar fyrir jólin, var liðið af hádegi er við lögöum af stað. Veður var þannig.hálf- skýjað, nokkuð frost en logn, snjór yfir öllu jafnfallinn illa gerður og haglaust um allt, en afbragös reiðfæri, viö vorum vel ríðandi og bar greitt yfir. Við stóðum töluvert við ( Vik, þvf ekkert kallaði að og tunglskin um kvöldið en hafði heldur þyngt í lofti meðan viö dvöldum í Vík. Þegar við erum að leggja af stað kemur maöur til móts við okkur og biður okkurgjöra konu sinni þann greiöa að taka af henni smásendingu aö Norður- götum, en sem þó var ekki alveg tilbúin hvað við að sjálfsögðu gjörðum, þar sem þetta var sem sagt á okkar leið, en nú var komiö fast að dagsetri er við endanlega lögðum af stað. Ber nú ekkert til tíðinda, við höldum léttann inn víkina, en er viö komum innst í Skeifnadalinn þá sýnist okkur sem allt hjarniö er við sjáum yfir ofan vegar og neðan sé eitt kvikandi mor. Ég verð nú að segja það að okkur brá nokkuö. hvað var þetta vorum við farnir að sjá ofsjónir? Við fórum af baki til að athuga þetta nánar og þá kemur skýringin, þetta erö mýs. Ástóru svæöi hvert sem litiöer. Þarnaer hálendi nokkuö, snjórinn þar grynnri og puntstráin stóöu þar viða upp úr og hér eru þær komnar í mörg hundraða tali og hamast viö að rífa axiö af puntinu og gæta einskis annars svo þær naumastforöuðu sérfrá fótum okkar. Við teymdum hestana inn af hæöinni niöur hallann að Saurukeldu þar var meiri snjór og engin puntstrá sjáanleg, enda þar engin hús og ekkert bjargræði til aö vinna við, þó varla mundi nú hafa vanþörf verið að fá einhvern fóöurbæti með. En hvað mundu mörg prósent hafa lifaö af þau harðindi sem framundan voru hafi þeim ekkert betra aö munni borist? Ég veit nú að einhverjir sem lesa þetta, ef nokkrir verða , halda að ég ýki frásögnina, en ég segihvert orö satt, en vitni hef ég engin því sáermeö mérvarer dáinn. Við héldum svo ferö okkar áfram og komum að Götum, og sögðum Jóni, húsbóndanum hvaö við höfðum séð. Já, lagsmaöur en það var oft hans talsháttur þetta veit allt á molharöindi, snjótittlingarnir svo aö segja elta mann á milli húsanna dag eftir dag, enda hefur hann blikað í dag og hert frostið með kvöldinu og þaö veit alltaf á vont. Þetta lét heldurekki lengi á sér standa, því um morguninn var kominn moldbylur með brunagaddi og segja mátti aö harðindi héldust með litlum hvíldum fram í þorralok en þá fór heldur að lina og dró mikiö úr snjókomu og vorið var gott, hvað margar sem lifað hafa veturinn af. Þá minnist ég einnar sögu er maður af Vesturlandi sagði mér eftir aö ég flutti hingað til Keflavíkur. Þannig hagaði til þar sem þessi maöur átti heima að gegnum heimaland jarðarinnar rann á, sem venjulega varfremur vatnslítil, en gat orðiö æði fyrirferöamikil í leysingum á vetrum og vori og gjörði þá stundum ærinn usla á slægjulöndum jarðarinnar meö aurburði o.fl. Þarna með ánni óx snarrótarpuntur stórgeröur sem stóð lengi frameftir hausti sígræn og fór stundum þannia undir snjó ef tíð var frostlítil. Á hverju hausti bar nokkuö mikiö á músarholum þarna með ánni, en þó mismikið, sennilega hefur þessi aösókn músanna að ánni stafað frá þessum stórgerða punti, hann var matmeiri en venjulegur graspuntur og músinni fundist hægari heima- tökin, aö búa sem næst þessu matþúi þó eigi væri þaö auðugra, en varla er nú ástæöa að væna hana um sporleti miöaö við stærð vissi hún af öðru betra. En nú kem ég loks aö höfuökjarna þessarar frásögu: Þaö sagði þessi maður mér eftir fööur sínum, að aldrei hefði i sinni tiö fariö músarhola á vetr- um f ána, sem grafin var á sama hausti, sem sagt, hann gat reitt sig á aö áin fór ekki hærra en aö neöstu holunni frá haustinu. Og aö þessu athuguðu Iftur svo út sem músum komi fátt á óvart, en vfst er aö þær sjá lengra fram ( tíma og rúm helduren vorir veð- urfræöingar. Svipaða sögu hef ég einnig heyrt úr Borgarfirði syöra. En það eru fleiri dýr en þegar Framh. * næstu slfiu FAXI - 221
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.