Faxi - 01.12.1980, Síða 59
HUXLEY ÓLAFSSON:
Á tímamótum
Á tímamótum Faxa, 40 ára, er
athyglisvert að bera saman
hvernig aðstæður eru á Islandi,
þegar Faxi fer af stað og nú, 40
árum síðar, þegar hann siglir
undir fullum seglum og góðri
stjórn, beint inn í framtíðina. Ég
ætla ekki að taka marga þætti,
en ef til vill þá örlagaríkustu.
Fyrir40árum, 1940, vorum við
að komast út úr kreppu sem
Faxa 40 ár»
staöið hafði í ca. 10 ár. Að okkur
tókst á þeim tíma að losna viö
kreppuna, má að mörgu leyti
segja að sé afleiðing af stríðs-
undirbúningi og stríði milli stór-
þjóða. Seinna stríðið svokall-
aða var þá byrjað. - Litlu síðar
var ísland hertekið og enginn
vissi hvað framtíðin bæri í sér. -
Margir voru með ugg í huga.
1980 - í dag - eru margir meö
ugg ihuga.ekkivegnastríðseða
erlendra áhrifa heldur vegna
heimatilbúinna vandræða, sem
er hin mikla verðbólga.
Ég ætla ekki að fara út í neina
pólitík - Faxi er ópólitískt blað -
en ég tel mál ekki lengur póli-
tískt, sem allir stjórnmálaflokk-
ar hafa glimt við - og allir fallið í
þeim átökum.
Til þess að lækna sjúkdóm,
verður að finna orsök hans. Til
þess að ráöa bót á verðbólgunni
verður að finna orsök hennar. í
því sambandi skulum við hverfa
nokkur ár aftur í tímann.
Árið 1940, þegar Faxi byrjar
göngu sína, var útvegur og fisk-
verkun aðalundirstaðan fyrir
gjaldeyristekjum þjóöarinnar. Á
hverju ári var reynt að finna þaö
verð á fiskinum, að báðir gætu
lifað. Þá voru engir styrkir eða
sjóðir til að hlaupa í. Fiskverðið
var miðað við það verð, sem fisk-
afuröirnar gáfu á erlendum
mörkuöum. Þetta stóð oft í tölu-
verðu stappi - en alltaf tókst aö
semja um veröið. Þá kom fram,
að menn vildu fá einhvern
ákveöinn aðila, til að semja ár-
lega um verð á hinúm ýmsu teg-
undum fiska. Upp úr þeim
vangaveltum var verðlagsráð
sjávarafurða atofnað, áriö 1961.
í fyrstu var samiö upp á gamla
lagið - verðiö á fiskafuröunum
var miðað viö hvað fékkst fyrir
þær á erlendum mörkuðum og
þjóðin reyndi að lifa innan þess
ramma sem hún aflaði - bæði í
kaupgjaldi og öðru.
En eftir nokkur ár var breytt til
um viðmiöun verðlags á íslensk-
um fiskafurðum þannig, að ef
kaupgjald í landi haföi prósent-
vís hækkað meira en fiskveröiö,
var samið um óraunhæft fisk-
verð, eða sem sagt - kaup í landi
var orðinn grundvöllur verðlags
afuröa þeirra, sem áttu aö seljast
á erlendum mörkuðum. I fyrstu
tóku menn varla eftir þessu,
stundum hækkaöi verðlag er-
lendis og þá þurfti engra að-
gerða með, og ef það lækkaði
eða stóð í stað, voru gerðar smá
lagfæringar á genginu. En þetta
átti eftir aö vinda upp á sig og
brátt kom að því, að eftir hverja
verösamninga á fiskafurðum,
varö að gera gengisbreytingu.
Sú gengisbreyting hækkaði
allar innfluttar vörur, sú hækk-
un leiddi af sér hækkun á land-
búnaðarvörum, þessar hækkan-
ir leiddu af sér kauphækkanirog
kauphækkanirnar leiddu af sér
hærra tiskverð í næstu samning-
um og þá hófst aftur sami hækk-
anahringurinn og í þessum
hringdansi erum við stödd í dag.
Nú líður varla sá dagur að
gengið sígi ekki eitthvað. Verði
ekkert að gert leiðir þetta innan
skamms til algers hruns. Þettaer
kölluð verðbólga - nafniö skiptir
ekki máli, heldur að átta sig á
því, hvað er að gerast. Vextir
hækka svipað og verðbólgan,
enda er talið, skv. bankalögmál-
inu, að vextir þurfi að vera að
minnsta kosti 2-3% hærri en
veröbólgan. Vaxtakerfið veldur
því, að illmögulegt er að byggja
yfir sig. Sömuleiöis er ekki hægt
að reka fyrirtæki mð þessari
vaxtapólitík. Ný fyrirtæki geta
ekki myndast og smátt og smátt
leiðir þetta til atvinnuleysis.
Ég rek þessa orsaka- og af-
leiöingasögu ekki meira að svo
stöddu.
Fyrir um 40 árum vorum við
hertekin af erlendum aðilum, en
í dag höfum við sjálf „hertekiö"
okkur með eigin aðgeröum. En
við getum komist út úr þessari
úlfakreppu ef við viljum. Til þess
þurfum við aðeins að lifa eftir
efnum og ástæðum. Við megum
ekki verösetja afurðir okkar
hærra en viö fáum fyrir þær. Við
verðum að ákveða gengið í dag
riflega innan þess ramma, að út-
flutningsvörur okkar borgi
kostnað við öflun og vinnu og
þar festum viö gengiö. Innan
þess ramma veröum við svo að
lifa. Þá kemur til að við sjálf og
ríkiö veröum að fara að spara.
Ríkisstjórnin er aðeins eins og
framkvæmdastjórn í fyrirtæki.
Kostnaðurinn við rekstur fyrir-
tækisins verður að vera í hlut-
falli við tekjur þess - ef ekki á illa
að fara. Við erum í stríöi við verð-
bólguna. í stríði þurrkast allir
flokkadrættir út - allir vinna
saman sem einn maður að því að
reka óvininn í burtu.
[ okkar stríði verða flokkarnir
að sameinast sem leiðbeinend-
ur þjóðarinnar. Viö megum ekki
kasta allri ábyrgð á stjórnmála-
flokkana. Við erum öll samábyrg
og þeir geta lítið gert annað en
það, sem við viljum, en öll viljum
við sigra i þessu stríði - og það
verður aö takast.
I þessari grein hefi ég aöeins
minnst á nokkur atriði. Ef fara
ætti dýpra inn í þessi mál dygði
allt lesmál Faxa skammt - og því
hætti ég hér.
ELLEN
NYRTIVdRUR
llmvötn og
baðvörur
í úrvali.
APÓTEK
KEFLAVÍKUR
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Meistaraskóli
fyrir iðnaðarmenn í byggingagreinum verður starf-
ræktur við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefst
kennsla í janúarmánuði 1981, ef næg þátttaka
fæst. Námsefni verður hliðstætt því sem veriö
hefur í Iðnskólanum í Reykjavík og samræmt í
meistaraskólunum á Akranesi, Akureyri, Keflavik,
Reykjavík og Sauðárkróki.
Þátttökugjald verður 100.000 kr. fyrirtveggja anna
nám.
Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu skólans í
síðasta lagi föstudaginn 19. desember n.k.
Nánari upþlýsingar veita Héðinn Skarphéðinsson
og Surlaugur Ólafsson.
Skólameistari
FAXI - 223