Faxi - 01.12.1980, Qupperneq 65
Þaö er sá tími sumars að lág-
vaxinn gróðurinn skartar sínu
fegursta. Fíngerð blóm beiti-
lyngsins sem þekur móann eru
sprungin út og eykurstórum á lit
gróðursins, slikjugrátt grjótið
með mosagróöri og skófum
fellur hér vel að. Ilmurinn af
mold og gróðri fyllir loftið í regn-
úðanum og það glittir á svört
krækiberin. Ég er kominn út
undir Nípu. Þarna er ,,Skálin“
(hvilft í stein) og hér var þorst-
anum svalað ef í henni var vatn
og alltaf gert krossmark yfir
áður. Ég fæ mérhundasúru (Ól-
afssúru) og skarfakál. Hérerþað
best. Ég fyllist löngun til að tylla
fæti á Nípuna. Hérfékkst marg-
ur fallegur þaraþyrsklingurinn
og steinbíturinn. Hér gerir kría
athugasemd við veru min og býr
sig til atlögu. Hún steypir sér
niður að mér með tilheyrandi
hljóði. Ekki er hún ein á ferð,
óstyrkur ungi hennar stillir sér
fyrir ofan mig og sendir mértón-
inn. Ég held af Nípunni og heyri
blítt hvatningarhljóð kríunnartil
ungans sem svarar á móti og
tekur stóra hliðardýfu. Ég
hlakka alltaf til komu kríunnar á
vorin og það bregst ekki, að 11.
maí má heyra til hennar og sjá
hátt á lofti.
Á og í Berginu verpa og sjást
margar tegundir fugla. Þar hef
ég séð svölu og á vetrum gæsii
og svani á Bergvötnunum. Sjá
má mink bregða fyrir ef heppnin
er með og spor hans í snjónum.
Iðulega sjást selir í sjónum.
Griðland eiga fuglarnir litið fyrir
mönnum og ein er fuglategund-
in sem við leggjum mikla rækt
við, en það er svartbakurinn. Á
Suðurnesjum verpir hann í þús-
undatali og er á góðri leið með
að útrýma og fælaaðrartegund-
ir fugla frá okkur. Viö ættum því
að draga út lífsafkomu hanssem
er okkar umgengni.
Þá er það þessi sérstæða
manngerð sem skilur eftir sig
slóð dauðra, særðra og limlestra
fugla sem bíða þess að deyja af
kvölum og úr hungri. Þeirþyrma
engu og þá varöar ekkert um
ástand þeirra. Þeirra er láö og
lögur. Á velbúnum sportbáti er
lítil teista miskunnarlaust elt
með hrópum, bölvi og bending-
um til þesssemdrápstólinustýr-
ir, í hvertsinn sem skelfingu lost-
inn fuglinn neyðist til að koma
upp á yfirborðið til þess að fá sér
loft.
Ég hef „þrætt Bergið" og farið
hring í kringum Bergvötnin. Ljót
voru ummerki manna þar. Nú
ætla ég lyngmóann heim og tek
stefnu á mastrið hjá pósthús-
inu. Ég fjarlægist garg svart-
baksins og heyri spóa vella. Ein
heiðlóa fylgir mér nokkurn spöl.
Hún kveður ekki lengur vorljóð-
in sín en lætur vita af veru minni
hér. Égerfarinnaðgreikkaspor-
ið þvi regnið er komið í gegnum
fötin mín.
Sturlaugur Björnsson
Nærstrandarrás, Tjarnargata og Hafnargata. Sóö út á Keflavfk.
Skýrsla v/Dvalarheimilisins
GarðvangS, - Flutt af Jóhanní
Gunnari Jónssyni, formanni stjórnar
Starfsemi Dvalarheimilisins
Garðvangs hefur gengið að ósk-
um sl. ársem fyrr. Istjórn heimil-
isins situr nú eftirtalið fólk:
Gunnar Jónsson form., Sesselja
Magnúsdóttir, Albert Sanders,
Jósef Borgarsson, Jón Kr. Ól-
afsson og Ólafur Sigurðsson.
Rekstur heimilisins skilaði
hagnaði árið 1979ogskv. bráða-
birgðauppgjöri 30. sept. sl. er
enn hagnaður á rekstrinum.
Heimilið hefur verið fullsetið
og aö jafnaði um og yfir 30
manns á biðlista eftir vistrými.
öll sveitarfélögin hafa nú nýtt
sér rétt sinn á vistrými og
skipting réttlát í samræmi við
eignarhlutfall sem kostur er.
Fjöldi stöðugilda starfsmanna er
6 og svo til óbreytt frá upphafi og
nær sömu starfsmenn. A þessu
ári hafa fjölmörg félagasamtök
og einstaklingar sýnt Garðvangi
ræktarsemi með gjöfum og
þjónustustarfi. Það er ómetan-
legt og ber að þakka.
Svo sem sveitarstjórnarmönn-
um er kunnugt hefur nokkuð
verið unnið að undirbúningi
vegna hugsanlegrar stækkunar
Garðvangs. Jafnframt hefur
Gerðahreppur tekið jákvætt í
sölu á núverandi húsnæði sem
stjórn Garðvangs taldi æskilegt
að verða myndi. Frumteikningar
liggja nú fyrir að 490 ferm. við-
byggingu sem myndi auka vist-
rými um 21, þ.e. 5 tveggja manna
herbergi og 11 einstaklingsher-
bergi, auk föndurstofu, dag-
stofu, þvottahússog lingeymslu.
TILKYNNING UM
Áramótabrennur
Þeim sem hafa ætlað sér að hafa áramótabrennu,
ber að sækja um leyfi til Slökkviliðs Brunavarna
Suðurnesja í Keflavík.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu er, að ábyrgðarmaður
sé fyrir brennunni.
Brennur sem verða hlaðnar upp og ekki hefur
verið veitt leyfi fyrir, veröa fjarlægöar.
Umsóknir berist fyrir 20. desember 1980.
Lögreglan I Keflavík, Grindavík, Njarðvík
og Gullbrlngusýslu
Brunavarnir Suöurnesja
Kostnaðaráætlun frá því í ágúst
'80 nemur 198 millj. kr. Eldhús,
matsalur og setustofa sem fyrir
eru teljat fullnægjandi fyrir
a.m.k. 40 manns.
Nú er unnið að könnun á fjár-
magnsmöguleikum vegna við-
byggingar og stefnt að því að
unnt verði að gefa sveitarstjórn-
um yfirlit um þau mál sem fyrst.
Það er mat stjórnar Garðvangs
að ná beri samningum um kaup
á núverandi húsnæði og hefja
stækkunarframkvæmdir sem
allra fyrst.
Þvi fer ég þess á leit við sveit-
arstjórnarmenn, sem ég veit að
allir eru málinu velviljaðir, að
málið fái skjóta úrlausn er til
þeirra berst. öll vitum við að
þörfin er gífurleg.