Faxi - 01.12.1980, Page 70
sjó, þá flóö er. Þeir sitja stund-
um kyrrir, en þess á milli blaka
þeir vængjunum. Annað gat það
ekki verið. Eftir nokkra stund
syrtir aftur yfir, hræfareldurinn
horfinn og sama svarta myrkrið.
Eftir því sem regnið jókstfóru að
heyrast dynkir langt uppi í Enni.
Þetta gat ekki verið annað en
grjót, sem væri að losna og sam-
kvæmt þyngdarlögmáli leituðu
til sjávar. Þaö var ansi óhuggu-
legt að heyra þá færast nær og
nær og loks heyra þá fjarlægjast
til sjávar. Eg sá engan fyrst, en
fann þyt af þeim.
En nú heyrast nýir dynkir,
langtum stærri en hinirfyrri, þeir
nálgast með feiknahraöa, loks er
eins og skörp vindhviöa skelli á
mér, um leið kemur bjargið
niður af fluginu rétt fyrir framan
steininn, sem ég sat undir, í svo
sem fjögurra metra fjarlægð.
Hann hafði því farið yfir klettinn
sem ég sat undir. Smágrjót
þyrlaðist í allar áttir, en enginn
smásteinn hitti mig. Fjallið skalf
undir fótum mór. Nokkrir smá-
steinar komu sömu leið og stóra
bjargið, mér leist ekki á að dvelja
þarna lengur. Það var erfitt að
stíga fyrstu sporin. Eg var nærri
dottinn ofan í holuna er mynd-
ast hafði þar sem stóri kletturinn
hafði komið niður á leið sinni til
sjávar. Sami ofsi var í veðrinu, en
niður eftir gildraginu gat ég
fótað mig að mestu. Ég gerði
mér von um að svo væri út fallið,
aö fært yrði fyrir Forvaðann.
Loks komst ég niöur. Þá var
fallið undan Forvaða. Ég byrj-
Loftpressa
Tek aö mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
verötilboö.
Sigurjón Matthíasson
Brekkustig 31c - Y-Njarðvík
aði á því að losa sand og aur úr
buxunum, því áður var ég svo
þungur í hreyfingum. Þegar því
var lokið reyndi ég að hlaupa.
Það ætlaði ekki að ganga vel að
þvinga líkamann til hlýðni, þó
var ég búinn að ná sæmilegum
hita þegarég kom að Hólmkelsá,
sem valt fram kolmórauð. Ég
held hún hefði ekki veriö talin
fær í björtu. Hér var enginn tími
til ráðagerða, ég held að ég hafi
komið að henni á réttu vaði. Ég
ákvað fyrirfram að synda ská-
hallt undan straumnum ef ég
botnaði ekki. En til þess kom
ekki. Mér tókst að komast yfir án
þess. Þegar ég kom heim mætti
ég leitarmönnum við dyrnar.
Þeir voru að leggja af stað til að
leita að mér, með broddstafi og
annan útbúnað.
Barninu bráðbatnaði af
meðulunum og lifir viö góða
heilsu nú, tæpum fimmtíu árum
síðar.
Eflaust mun einhver segja, að
ég hefði átt að bíða til næsta
dags, frekar en að tefla svo
djarft. En ef þú, lesandi góður,
átt eitt barn sem berst við dauð-
ann, myndir þú þá ekki gera hið
sama og ég gerði? En þessi gist-
ing í Ólafsvíkurenni hefur verið
mér minnisstæð.
Daginn eftir var Sæbjörn
læknir sóttur og gerði hann að
handarbrotinu. Var þá hiaupið
úr ánni í Hólmkelsá.
í Hólmkelsá hefur fjöldi
manns farist og faðir minn fórst
þar árið 1923, svo sem áður er
sagt. Mun hann hafa verið sá
síöasti sem þar hefur látið lífið.
Gott og farsœlt nýtt ár!
HREPPSNEFND
HAFNARHREPPS
íþróttahúsið
í Sandgerði
Lausir eru tímar í badminton á laugardögum.
Hægt er að fá leigða 1-4 badmintonvelli í hverjum
tíma. - Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður í
síma 7736.
FAXI - 234