Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 76

Faxi - 01.12.1980, Page 76
og Erlendar var Ólöf Erlends- dóttir, frænka Erlendar. Ólöf var fædd í Höskuldarkoti 23. marz 1834. Var Ólöf frá því áfyrsta ári til 10 ára aldurs fósturbarn hjá þeim Þórdísi og Erlendi. For- eldrar Ólafar voru Guörún Magnúsdóttir, ógift vinnukona í Höskuldarkoti, systurdóttir Jóns Sighvatssonar bónda þar, faöirinn Erlendur Magnússon, smiöur, ógiftur húsmaöur í Hösk uldarkoti. Var þessi barneign talin fyrsta lausaleiksbrot þeirra beggja. Erlendur var fæddur aö Brunnastööum á Vatnsleysu- strönd 1795. Foreldrar hans voru Magnús Guðmundsson og hans kona Margrét Erlendsdótt- ir. Erlendur kom ungur að Hösk- uldarkoti til hjónanna Jóns Sig- hvatssonar og Oddbjargar Snorradóttur, konu hans. Hann læröi skipasmíði hjá Jóni bónda, smíðaöi meö honum þrjár segl- skútur er hann lét smíða á árun- um 1814 til 1818. Seglduggur þær munu hafa veriö þær fyrstu er smíöaöar hafa veriö sem dekkaðar fiskiduggur hér við sunnanveröan Faxaflóa. Vafurlogar hjá Háaleitlsdraugnum Erlendur þessi Magnússon hefur nú í nær hálfa aöra öld veriö sögufræg persóna frá þeim tímum er hann átti heima í Höskuldarkoti. Erlendur var annar þeirra áræönu manna er heimsóttu Háaleitisdrauginn þar sem hann varí myrkri nætur- innar viö bjartan vafurloga aö telja aurana sína. Félagi Erlend- ar i þeirri næturheimsókn til Háaleitisbóndans var Guð- mundur Guðmundsson er haföi auknefnið klárt. Segir frá þeim Erlendi og Guðmundi og viöureign þeirra viö Háaleitis- drauginn i ýmsum þjóösagna- bókum. í þeim bókum hefur gætt nokkurra missagna um þá Erlend og Guömund klárt. Þar eru þeir sagðir hafa verið bænd- ur í Ytri-Njarövíkurhverfi og einnig er þar sagt aö þaö hafi verið um eða upp úr miöri síö- ustu öld er sá atburöur geröist. Hiö rétta er aö þeir Erlendur smiður og Guðmundur klárt voru báöir vinnumenn í Hösk- uldarkoti, samtíða þar á árun- um 1831-1837, fyrstu árin hjá sama húsbónda, Jóni Sig- hvatssyni. Guömundur klárt fór þaðan til Péturs sonar Jóns er hann fór aö búa á ööru býlinu. Var Guðmundur samfleytt í 13 ár vinnumaöur í Höskuldarkoti hjá þeim feögum Jóni og Pétri. Er- lendur fór 1837 inn á Álftanes. Guðmundur Guömundsson klárt var fæddur aö Götu í Hvol- hreppi 6. okt. 1801. Þar bjuggu foreldrar hans, Guömundur Jónsson og Herdís Andrésdótt- ir. Guömundur kom frá Garðsauka i Hvolhreppi að Höskuldarkoti árið 1831. í kirkjubók segir um Guömund, aö kunnátta hans sé bærileg og hegðan ekki slæm, og um Erlend Magnússon segir, kunnátta allsæmileg, óvíst um hegðun, í þeim dálki segirsmiö- ur góöur. Það mun hafa verið einhvern tíma seint á myrkvuðu vetrar- kvöldi á árunum 1831-1837, að þeir vinnumenn í Höskuldarkoti sáu bjartan vafurlogann á Háaleitinu, forvitni þeirra var vakin, kjarkur þeirra kallaður fram til að paufast út í myrkriö, stampast yfir holt, börð, þúfur, móa og mela beint af augum á logann. Þeir félagar áttu bæði erindi og erfiði viö þann, sem þeir hittu þar. Það liðu rösk eitt hundrað ár svo aö ekkert • frásagnarvert gerðist á Háaleitissvæðinu. Sauðkindin átti þar sinn haga heima i friðsæld og frelsi náttúr- unnar viö félagsskap fuglanna er lífguðu upp þeirra samfélag. Lóan og spóinn, krían og kjóinn kunnu þar vel aö vera. Kalka gamla (landamæravarða) var á sínum staö, visaði veginn aö sér og frá í allar áttir. Einn og einn ferðlúinn maður, svangur blautur og kaldur varö úti á heið- unum þar í kring á heim- leið frá Keflavík. Ekkert draugljós til aö lýsa upp svo mikið sem einn fermetra af hin- um myrku og grýttu leiöum. Sagan af þeim Erlendi og Guö- mundi klárt geymdist mann frá manni og var enn Ijóslifandi í minni gamla fólksins þegar áriö 1940 varö til í aldanna rás og Háaleitið kom aftur til sögunnar, og núfóreitthvaðaðgerastaftur á Háaleitinu, sem um var tal- andi, eftir rösk hundraö ár. Nú voru þaö eingöngu menn og engir draugar, sem þar áttu aö verjast og berjast. Þá varö þar aftur vafurlogi stór af silfri og gulli, er mörgum þótti fallegur á að líta og I aö sækja. Já, þvílíkur munur eða þegar þeir Erlendur og Guömundur klárt voru þar einir og annar barðist viö draug- inn alla nóttina þar til dagaöi af morgni, en hinn hirti alla silfur- peningana og flýtti sér heim meö þá, stakk af, eins og þaö væri kallað á nútímamáli. Skyldi slíkt nokkurn tíma hafa gerst síðan þar í Háaleitisháauraborg- inni? Eftir aö Ólöf, dóttir Erlendar Magnússonar smiös, fór frá þeim Þórdísi og Erlendi frænda sínum af Vatnsleysuströndinni, átti hún heima í Ytri-Njarðvík hjá hjónunum Bjarna Magnússyni og seinni konu hans Ingigerði Jónsdóttur. Þegar Ólöf var rösk- lega tvítug, fór hún vinnukona aö Höskuldarkoti, giftist Jóni Péturssyni, bóndasyni þar (siöar bónda í Höskuldarkoti) þann 19. nóv. 1857. Jón Péturs- son í Höskuldarkoti var bróðir önnu Pétursdóttur í Höskuldar- koti, fyrri maður önnu var Magnús Bjarnason. Dóttirþeirra var Oddbjörg, móðir hins þekkta útvegsbónda og skipstjóra Magnúsar Ólafssonar í Hösk- uldarkoti. Seinni maður Önnu var Ársæll Jónsson, bóndi þar. Þeirra dóttir var Guöleif, kona Ágústar Jónssonar, hreppstjóra í Höskuldarkoti og á Sunnuhvoli í Keflavík. Þeirra börn voru Anna, kona Nóa Kristjánssonar tryggingafulltrúa í Reykjavík, og Ársæll. Hans kona var Arndís dóttir séra Árna Þorsteinssonar, prests á Kálfatjörn. Þau fóru til Ameríku, áttu þar heima til ævi- loka. Þau Ólöf og Jón Pétursson bjuggu á fjóröa áratug í Hösk- uldarkoti. Fyrstu búskaparár þeirra var Guðrún Magnúsdótt- ir, móðir Ólafar, þar hjá þeim. önnur dætra þeirra Jóns Pét- urssonar og Ólafar, Petrúnella Júlíana, giftist Sigurði Hallssyni söölasmiö frá Fróöholtshól á Rangárvöllum. Þau bjuggu í Höskuldarkoti frá 1888-1902. Þar meö var ættarstrengur hins sögufræga Erlendar Magnús- sonar smiðs og Háaleitisfara lokið í Höskuldarkoti, eftir níu áratugi frá hans fyrstu tíð þar. Þórdis, dóttir Katrínarog Jóns Snorrasonar í Ytri-Njarðvík (frænka Árna prófasts) og Er- lendur Jónsson hennar maöur, áttu dóttur er Guríður hét. Hún var kona Guðmundar skipa- smiðs í Engey. ( vikuritinu Þjóð- ólfi 13. sept. 1861 segir um Guö- ríöi á þessa leiö: Þann 1. júní þessa árs, dó merkiskonan Guð- ríöur Erlendsdóttir á Brunna- stööum, dóttir Þórdísar Jóns- dóttur Snorrasonar frá Ytri- Njarövík, kvinna Guömundar Péturssonar skipasmiðs í Engey 42 ára aö aldri, orðin 12 barna móðir, lifa 8 þeirra, fríðleiks- kona, sérlega siöprúð í fram- göngu, auðkennd að frábærri stillingu, ástrík og umhyggju- söm móöir barna sinna. Kristín var elst af dætrum þeirra Katrínar Einarsdóttur og Jóns Snorrasonar í Ytri-Njarð- vík, hún giftist frænda sínum Jóni Jónssyni Noröfjörð sem fyrr er frá sagt (voru þau hjón systkinabörn). Jón Snorrason, faðir Kristínar og Oddbjörg Snorradóttir, kona Jóns Sighvatssonar i Höskuldarkoti, foreldrar Jóns Norðfjörö, voru systkini. Kristín og Jón Noröfjörö gift- ust 12. nóv. 1818, bjuggu þau í Þórukoti fyrstu búskaparárin, síðar á Efstaleiti, það býli stóö skammt í norðaustur frá Hösk- uldarkoti, þar bjuggu þau hjón í 15 ár. Hefur þar ekki veriö búiö síöan. Jón og Kristín fóru þaöan aftur að Þórukoti, bjuggu þar síðustu 3 búskaparár sín. Þar dó Kristín, 3. júlí 1843, fjörutiu og niu ára aö aldri. Jón Norðfjörö fékk 1841 heiöurspening úr silfri, ærulaun iöni og hygginda, sáttasemjari í rúm 20 ár. Börn þeirra Jóns og Kristínar voru séra Snorri Noröfjörö er bjó fyrstu árin í Þórukoti og á Efsta- leiti, vígðist 1849 aðstoðarprest- ur til séra Péturs Jónssonar á Kálfatjörn. 1851 varö séraSnorri aöstoöarprestur hjá frænda sín- um sérÁrna Helgasyni, prófasti í Görðum. Varö síöar prestur í Goðdölum, Reynisþingi íSkafta fellssýslu og síðast í Hítarnesi í Mýrarsýslu. Kona séra Snorra var Sigríður Guðmundsdóttir, stúdents í Hafnarfiröi Pétursson ar, þau voru systkinabörn. Ingi- gerður móðir Sigríðar og Jón Norðfjörð, faðir Snorra, voru systkini. Meðal barna þeirra Sig- ríðar og séra Snorra, voru Kristín Oddbjörg, kona Jakobs Þorbergssonar á Kolbeinsstöð- um í Kolbeinsstaðahreppi, síðar í Reykjavík. Ingigerður Anna átti mann, Jóhann Jónsson sööla- smið. Þær systur voru báðar fæddar í Ytra-Njarðvíkurhverf- inu. Tvær dætur aörar áttu þau séra Snorri og Sigríður. Þær hétu Soffía Sigríður og Gróa, voru báðar ógiftar. Sonur þeirra hjóna var og Jón bóndi á Lækj- arbug, Hraunhreppi, Mýrar- sýslu, hans kona var Guörún Jónsdóttir Ijósmóðir. Fóstur- sonur þeirra er Valtýr Guðjóns- son, kennari, bæjarstjóri og fyrr- verandi bankaútibússtjóri í Keflavík. Dóttir þeirra Jóns Norðfjörð og Kristínar i Efstaleiti var Odd- björg fyrsta kona séra Björns Þorlákssonar prests á Hösk- uldsstöðum í Húnavatnspró- fastsdæmi 1844 til dánardags 1862. Þau hjón áttu ekki börn er upp komust. Séra Björn var þrí- kvæntur. Þórður hét bróðir þeirra Katr- ínar Einarsdóttur í Ytri-Njarðv- vik og séra Helga föður Árna prófasts. Kona Þórðar hét Sig- ríður Jónsdóttir, bjuggu í Minni- Mástungu í Stóranúpssókn. Þau hjón áttu tvo syni er báðir hétu Einar. Þeir bræðir ólust upp að mestu leyti hjá Katrínu frænku sinni og Jóni í Ytri-Njarðvík. Yngri bróöirinn giftist Ástríði Magnúsdóttur frá Brunnastöð- um á Vatnsleysuströnd. VarÁst- ríður systir fyrrnefnds Erlendar Magnússonar smiðs, er heim- sótti Háaleitisdrauginn. Tvö voru önnur þeirra systkini í Njarðvíkum, Guðmundur Magn- ússon bóndi í Móakoti í Innra- hverfinu. Hans kona varSigríður Þorláksdóttir Ijósmóðir, og Kristín Magnúsdóttir, kona Ásgríms Sigurðssonar, bónda í Bolafæti. Þau Ástríður Magnús- dóttir og Einar Þórðarson, frændi Árna prófasts, bjuggu í Bolafæti í tæpan áratug. Einar dó þar hálffimmtugurað aldri. Árni Helgason prófastur var elstur sinná systkina. Hann hef- ur án efa viljaö vera þeim til að- stoðar þegar með þurfti. Á þeim vegum heimsótti hann frændur sína í Njarðvíkum, þegar hann hjálpaði Einari bróður sínum til að komast utan til Kaupmanna- hafnar, þangað sem Einar fór til að læra trésmíði (snikkaranám). Þegar að því kom að Einarskyldi Framh. á bls. 193 FAXI - 240
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.