Faxi - 01.12.1980, Blaðsíða 87
nefnt, án þess að þiggja önnur
laun, en ánægju erfiðisins, ef
árangur náðist, annars alls
ekkert.
Eflaust eru það þessír
athafna- og hugsjónamenn,
hinna ýmsu tíma hinna
ýmsu byggöarlaga, sem öðrum
fremur hafa fleytt hinni
íslensku þjóð fram til þeirrar
þróunar, fram til þess þroska,
sem hún hefir í dag. Hitt er svo
annað mál, að það er engu
minna umvert, að gæta þess,
sem unnist hefir, heldur en að
afla þess. Á því sviði hefir
tvimælalaust margt farið úr-
skeiðis, sem þeir ágætu menn
verða ekki sakaðir um. Hvað
sem því líður, eiga “Faxa-menn"
ómældar þakkir skilið fyrir sitt
áræði og heiðarleg vinnubrögö í
40 ár.
"Sá veldur miklu, sem
upphafinu veldur", segir eitt af
okkar gömlu spakmælum. Það
er jú talandi staðreynd enn þann
dag í dag. Upphafsmenn Faxa,
stofnendur hans, verða ekki til-
greindir hér. Þeir komast til skila
annarsstaðar. En það er
augljóst, að þeir hafa verið bjart-
sýnis- og hugsjónamenn. Eru
það auðvitað enn. En í þeirra
hlut komu, að sjálfsögðu,
byrjunarörðugleikarnir og vaxt-
arverkir unggæðisins, sem
mörgum hafa orðið þungir í
skauti. Þeir ágætu menn stóðu
þetta allt af sér og meira til, svo
að nú geta þeir, með góðri
samvisku, litið um öxl til þeirra
vona, sem þeir i byrjun vegferö-
ar Faxa, báru í barmi um afdrif
hans. Þeir sjá nú að hann
skartar, sem blómstur á vaxandi
menningarmeiði allra Suður-
nesjamanna. Ég tel, að allir
lesendur Faxa, séu þakklátir
þeim fyrir framtakið og árni
þeim heilla í komandi tíð. En því
megum við ekki gleyma, að
tíminn heldur áfram, þótt okkur
langi til þess, að doka aðeins við
á góðri stund.
Ef ég man rétt, þá varþað Faxi,
sem flutti það “ thema“,í eina tíð,
að: Við stöðvum ekki andartak-
ið, sem líður hjá, um leið og því
er lifað. Heldur berumst við með
því, um set, í þeim farvegi, sem
við höfum búið því. Þetta finnst
mér mikil viska. Vafalaust komin
frá austurlö'ndum, við innhverfa
íhugun. Hún er ekkert verri fyrir
það. Ég aöhyllist hana. Við hljót-
um öll að gera okkur grein fyrir
því, að það er einmitt Ijósblik
þeirra vona, sem við berum i
barmi hverju sinni, þetta
andartak, sem fram hjá fer. Það
hlýtur einnig að vera þetta sama
andartak, sem skapar árin, sem
vefur hverjum einum lífsmynd,
lífsmynstur, sem við losnum
ekki frá. Að lokum höfum við
fullmótaðan feril.
Nei. Við stöövum ekki einu
sinni andartakið. En við getum
valið þvi farveg.
Mér finnst, að um leiö, eða auk
þess, sem Faxi hefir verið drjúg-
látur miðill á málefni hversdags-
ins, hafi hanri jafnframt verið, í
gegnum árin, í engu minna mæli
boðberi þess, að finna liðandi
stundu lesenda sinna, farsælan
farveg að ströndu fegrandi
mannlifs. Ef það er rétt ályktaö
hjá mér, þá getur Faxi vel við
unað, því varla verður lengra
náð, í mannlegu samfélagi. Um
það getum við svo alltaf deilt,
eins og allt annað, hvað erfagurt
og ekki fagurt. Ég set mig ekki í
neitt dómarasæti um þau
viðhorf.
Vissulega stendur Faxi á tíma-
mótum, eins og allt hlýtur að
gera, sem ber eitthvert líf, þótt
með sínum hætti sé. Ekki vegna
þess að hann hefir verið við líði í
40 ár. Ekki vegna þess, að það
séu einhver þáttaskil í starfi
hans. Heldur vegna þess, að
stöðugt liggja vegir til allra átta,
sem ekki verður komist hjá að
velja um. Auðna framtíðarinnar
er undir því komin, hvernig til
tekst um val þess farvegs.sem
við viljum falla í, eða það
lífsform.sem við viljum sjálf
móta. Við skulum ekki gera of
lítið úr því.að þaö er eins og að
margur sé of freðinn til fara um
það, hvernig hann eigi að smíða
sina eigin gæfu. Ég erþarengin
undantekning. Þær eru í
rauninni alltof fáar. En aftur á
móti er vald miðlarans, eins og
Faxa, þarna mjög mikið. Eftil vill
meira heldur en pennar hans
gera sér grein fyrir. Þeir hafa
mikið vald. Þeir hafa mótandi
áhrif á lesendurna, elia væru
þeir tilgangslausir, einskisnýtir.
Hver vill vera það?
Þótt Faxi teljist aðeins smár
miðlari síns byggöarlags, vex
gildi hans og reisn, við þá djörfu
viöleitni eina, að sameina
sundraðar sálir. Vísa þeim til
vegar á viðsjálli leið. Að þær
missi ekki sjónar á guðdómin-
um.
Ég mælist ekki til, að Faxi
verði gerður að einhverri guðs-
orðakistu. Þaö þjónar engum
tilgangi. En hann heflrflutt fróð-
leik frá fortíð til nútíðar, sem
mikið má læra af, fyrir nútíma
fólk. Hann hefir einnig flutt
fróðleik af þeirri framtíð, sem
við, fyrr eöa síöar hljótum að
standaframmi fyrir. Því ítarlegri,
sem sá fróðleikur er, þess
víðara, sem hann spannar, þá er
komin nokkur þekking, ef til vill
mikil viska, til þess, fyrir
lesendann, að taka mið af, ef
hann á í einhverjum erfiðleikum
meö að finna guðdóm sinn.
Finna örlögum sínum farveg,
það lífsform, sem spararhonum
mikla og erfiða hamingjuleit.
Ég á þær frómu óskir til
handa, á heilladegi, á afmælis-
hátíð, að hann beri gæfu til þess
aö flétta ennþá fleiri rósir úr
kalkvistum. Að ennþá fleiri
lífgrös drjúpi úr hans pennum.
Að áfram megi hann skarta, sem
blómstur á menningarmeiði.
GLEÐILEG JÓL
og öðrum Suðurnesjamönnum
GLEÐILEGRA JÓLA
OG FARSÆLDAR Á KOAMNDI ÁRI.
GAUKSSTAÐIR HF.
Garði - Sími 7049
FAXI - 251