Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1980, Side 91

Faxi - 01.12.1980, Side 91
JÓN BÖÐVARSSON: Sameining sveitarfélaga Eftir að ég flutti til Suðurnesja fyrir röskum fjórum árum, hef ég stundum hugleitt samlíkingu sem ég ætla aö fjaila um nokkuö. Fyrir röskum tveim öldum hófst í Bretlandi iönbylting. Frumkvæöi á sviði vélvæðingar hóf fámenna eyþjóð í þann sess að verða mesta stórveldi heims um nokkurt skeið. En framvinda sögunnar varö Bretum óhag- stæð, og margvíslegar aðstæð- ur valda því að þeir eru nú einna lakast settir í hópi iðnvæddra þjóða. Verksmiöjur þeirra eru margar, yfirleitt smáar á alþjóö- lega visu og dreiföar um víðáttu- mikið landflæmi. Nútímahag- 'asðingu er torveldara að beita en í nágrannalöndunum, og því reynast breskar iðnaðarvörur illa samkeppnisfærar á alþjóö- legum markaöi. Áöur deildu Bretar og drottnuðu. Nú leitast Þeir viö aö hafa áhrif á gang heimsmála, en gengur illa að horfast í augu við innanlands- vandamál sem aö þeim steðja. Fyrir rúmri öld hófst á íslandi Þilskipaútgerð. Hagkvæmar að- stæður ollu því að á Suðurnesj- um varð meiri gróska en víöast annars staðar hérlendis. Harð- duglegir menn sóttu fast sjóinn, og útgeröarmenn og skipstjórar héöan þóttu blómi sinna stétta. Upp risu margar fiskvinnslu- stöðvar og nokkur þorp á litlu svæði meðfram hrjóstrugri strönd. En framvindan varð ó- hagstæö. Margt veldur því að í frystiiðnaði eru Suöurnesja- menn nú einna lakastsettirallra landsmanna. Frystihús á Suður- nesjum eru mörg, 24 alls. „Flest eru þau lítil og afkastageta þeirra nýtist illa vegna sveiflna i fiskveiðum og skorts á búnaði í mörgum tilvikum. . . . Stærstu húsin þar eru ekki hálfdrætting- ar í framleiöslu á við stærstu húsin annars staðar á landinu ... segir í Drögum aö iðnþróunar- áætlun fyrir Suöurnes sem byggðadeild Framkvæmda- stofnunar ríkisins gaf út í nóv- ember siðastliðnum. Og hér er eins konar elliheimili íslenska fiskiflotans. Hvernig horfumst við í augu við vandann sem að steöjar? Sunnan Straums eru sjö sveit- arfélög - þrír kaupstaðir og fjórir hreppar. Undanfarin ár hefur samstarf þeirra verið meira og árangursríkara en dæmi eru til annars staðar á landinu. Segja má að sums staöar hafi Grettis- taki veriö lyft. Má til dæmis nefna Hitaveitu Suðurnesja sem sennilega er besta fyrirtæki sinnar tegundar á fslandi. Þetta samstarf vekur vonir um að við getum tekist á viö stóru vanda- málin sem hérhefurveriðdrepið á. Landfræðiiega eru þessi sveit- arfélög greinilega afmörkuö frá öðrum byggðum. Þótt Grinda- víkurbær og Vatnsleysustrand- arhreppur hafi nokkra sérstöðu er Ijóst að meiri samleið eiga þau með öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum en höfuðborgar- svæðinu. Hin fimm eru staðsett á litlu, landfræöilega saman- tengdu svæði. Samvinna sveit- arfélaganna sjö erþegarsvo víð- tæk að litlar breytingar yrðu á högum íbúa þótt þau sameinuð- ust algerlega - en þau styrktust þá að einu leyti: Sem skipulags- eining gætu þau tekist á við at- vinnuvandamál svæðisins, og leyst þau svoaötil hagsbótayröi fyrir alla Suöurnesjamenn. ( áðurnefndri skýrslu segir ,,að frystiiðnaðurinn á svæðinu muni ekki standa styrkum fótum" nema m.a. veröi komiö á fót sameiginlegri fiskmóttöku og fiskmiðlun fyrir togaraafla á svæðinu þannig að hráefnið berist jafnt að og stofnuð verði sameiginleg reiknistofa frysti- húsanna sem m.a. fylgist meö hráefnisnýtingu og vinnulauna- kostnaði. „Hagkvæmni stórra rekstrareininga er unnt að ná annaö hvort meö þvi aö hafa fyrirtæki stór eða auka sam- vinnu milli minni fyrirtækja." Ef við mætum aðsteöjandi vanda í atvinnulífinu á líkan hátt og gert hefur veriö á sviði heilsugæslu, löggæslu og skólamála - svo nokkuö sé nefnt - öðlumst við styrk til þess að glima til sigurs þar líka. Vinnum að því að ( næstu sveitarstjórnarkosningum verði leitaö samþykkis íbúa í sveitar- félögunum sjö á formlegri sam- einingu þeirra allra. SUÐURNESJAMENN! Óskum öllum samstarfsmönnum og viöskiptavinum okkar á Suðurnesjum gleöilegra jóla og gæfuríks komandi árs. þökkum samstarf og viöskipti á liönum árum. Keflavíkurverktakar Keflavíkurflugvelli Sími 1850 - 1655 FAXI - 255
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.