Faxi - 01.12.1980, Blaðsíða 94
Leikfélag Sandgeröls:
MARKÓLFA
Gamanlelkur f 2 þáttum
Eftir Darto Fo.
Þýðandi: Slgný Pálsdóttfr.
Lelkstjóri:
Þóra Lovfsa Friðlelfsdóttir.
Leikfélag Sandgerðis er ekki
nema fjögra ára. Þaö hefur sýnt
eitt leikritáári. Þettaer þvífjóröa
verkefni þess. Fyrir mörgum
árum mun þó annað leikfélag
hafa starfaö í Sandgerði en ekki
hefur mér tekist aö afla upp-
lýsinga um þaö.
Markólfa, sem þaö seturásviö
núna, er dæmigert Dario Fo leik-
rit, fullt af gáska meö ádeilu
undirtón. Gáskinn eöa fyndnin
birtist meö ýmsum hætti og á
mismunandi uppsprettur, oftast
mun þó ást og peningar vera
megin (vafið. Þannig er þaö
a.m.k. í Markólfa.
Titilhlutverkið Markólfu leikur
Anna Petersen. Hún er ráðskona
hjá markgreifa. Þar er einnig í
vist Frans, bragðarefur, sem ber
heita fórnfúsa og sanna ást til
Markólfu og fær ást sinni full-
nægt. Þau eru áþekk aö aldri og
margri gerö og maöur fær strax
hugboö um aö þeirra bíöi brúð-
arvalsinn, endá verður þaö svo
að lokum - en margt furöulegt
(ekki allt trúveröugt) kemur þó
fyrir áöur en þaö má verða.
Blessaö happdrættiö á þar
drýgstan hlút aö máli og einnig
ráösnjall veröandi eiginmaöur
hennar.
Markólfa spinnur (kjarnann)
söguþráöinn óafvitandi og
óspjölluö - eftir þvi sem hún
segir sjálf á viökvæmu augna-
biiki. Happdrættismiðinn
hennar fær stærsta vinninginn
tvö ár í röö og þaö heröir stór-
kostlega á atburöarásinni. Nú
vilja allir eiga hana -
skuldheimtumaöurinn, sem
fórnar öllu fyrir krónurnar - vill
endilega giftast henni, sem áöur
var kölluð kerlingarhrota og
þaöan af verra. Eins fer fyrir
stórskuldugum markgreifanum.
Báðir ætla þeir aö fórna ástum
fagurra ungra heföarkvenna
fyrir stórvinning Markólfu. Hún
Ijómar í brúðarkjólnum af allri
þeirri ást, sem hún verðurnúað-
njótandi eftir ævilangt svelti af
Amors veigum. Leikur önnu var
sterkur og markviss - einkum í
síðari þættinum, enda er þá
hamingjan farin aö brosa á móti
henni. Hvort Anna er sviösvön
veit ég ekki, en hún unir þar vel
og verður sú persóna sem
heldur leiknum uppi, enda sjálf-
sagt ætlað þaö af hendi höfund-
ar. Hún stóð sig meö ágætum.
Frans lék Friörik Friðriksson,
hrekkjalómurinn og bragðaref-
urinn, skemmtilegasta hlutverk-
ið. Ráökænska hans gekk upp
og færöi honum hreina brúðar-
mey og auö. Hann slapp meö
sæmd frá vandanum. Þaö geröu
þau reyndar öll, furstaynjan
leikin af Hjördísi Arnadóttur,
Teresa leikin af Lilju Hafsteins-
dóttur, sem báöar voru meö lítil
hlutverk og markgreifinn leikinn
af Margeiri Sigurössyni, sem var
annaö stærsta hlutverkið og
Jósef leikinn af Kristjáni Guö-
jónssyni. öll geröu þau góða
hluti og mega vel una sínum hlut
enda lentu þau í réttum örmum
að lokum. Þetta er allt ungt fólk
og leikreynsla lítil eða engin, en
þau sýndu tilþrif, sem vert er aö
muna og vænta þeirra síðar á
sviöinu við veigameiri verkefni.
Blaöadrengurinn Jón Gunnars-
son geröi sínum hlut góö skil, en
hlutverkiö gaf honum ekki mikil
tækifæri - hann fær þau síöar.
Leikstjórinn Þóra Lovísa kann
greinilega til verka - þaö er ekki
heiglum hent aö ná upp slikum
hraða meðlíttvönufólkiáfrekar
Leikstjóri ásamt leikurum og starfsfólki
frumstæöu leiksviöi. Kannske
var hraðinn full ótemjulegur á
köflum - en ætli þaö hafi ekki
veriö til þess ætlast. Gamanleik-
ur er til þess, að koma fólki í gott
skap - fá þaö til aö gleyma
daglegu amstri og hlægja. Þaö
var óspart gert í Samkomuhús-
inu í Sandgerði viö sýningu á
Markólfu.
Leiktjöld unnu: ólafur
Gunnlaugsson, Ómar Bjarn-
þórsson, Friðrik Þ. Friöriksson,
Margeir Sigurösson, Kristján
Guöjónsson, Þóra Jónsdóttir,
Lilja Hafsteinsdóttir, Anna
Petersen.
Ljósamaöur: Gísli Þórhallss.
Hvíslarar: Þóra Jónsdóttir, Jó-
hanna Norðfjörð.
Stjórn leikfélagsins skipa:
Anna Petersen, formaður,
Kristján Guöjónsson, varafor-
maður, Margeir Sigurðsson,
gjaldkeri, Rakel Níelsdóttir,
ritari, Nína Sveinsdóttir, með-
stjórnandi. j T
GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT KOMANDI ÁR!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
icTWatStofari
íisíuíinii
Brehkustig 37 ■ simi 3688
Nfardvík
GLEÐILEG JÓL!
GOTT OG FARSÆLT NÝTT ÁR!
Þakka viðskiptavinum til sjós og lands
viðskiptin á liðna árinu.
VERSLUNIN BRAGAKJÖR
Grindavík - Sími 8065
FAXI - 258