Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 100

Faxi - 01.12.1980, Page 100
Frá því um miðjan júlímánuö og þar til í seþtemberbyrjun, stunduðu „Britta" og „Nellý" síldveiðar frá Siglufiröi. Afli var góður, en síldin seldist fyrir smánarverð. Fór því svo, að síldarleiðangurinn svaraði naumast kostnaði. í byrjun maímánaðar komu fyrstu Danirnir, sem fiska áttu í Sandgerði, og höfðu með sértvo oþna vélbáta. Um miðjan mánuðinn komu tólf vélbátarfrá Esbjerg, 15-20 smálestir að stærð. Áttu þeir einnig að stunda línuveiöarfrá Sandgerði. Bátar þessir voru allt tvístöfn- ungar, vel smíöaðiroggóðirísjó að leggja, en vélarnar reyndust gersamlega ófullnægjandi. Var það hvort tveggja, aö þær voru of litlar og illa geröar, svo aö bilanir máttu heita daglegt brauö. Lágu sumir bátarnir stöðugt vélvana og í algerum ólestri. Var og ekki hlauþið að því að fá viðgerð í fljótu bragði, og mátti einu gilda hvort stórt var eða smátt, sem úr lagi haföi gengiö. Þurfti aö leita með hvaöeina til Reykjavíkur, en það reyndist tafsamt og kostnaðar- mikið. Væri þaö lítilræöi, sem bilað hafði, var einatt til þess griþiö að senda röskan mann gagngert með hinn brákaða hlut til Reykjavíkur, en það var hvorki meira né minna en fullur tólf stunda gangur. Mátti því ekki slæpast ef komast átti á einum degi hvora leið, síst þegar bera þurfti allþunga pinkla, sem oftast var. Skipverjar á þessum jósku bátum voru allir danskir. Aðeins var ráðinn einn íslenskur leið- sögumaður eöa fiskiskipstjóri, sem átti að „lóðsa" allan flotann á fiskimiðin. í landi voru 40 - 50 íslenskar stúlkur, sem beittu linuna, 4-5 stúlkur viö hvern bát. Útgeröin gekk mjög skrykkjótt, og mátti raunarsegja að á flestum bátunum færi allt i handaskolum. Voru það ekki nema opnu bátarnir tveir, sem komust upp á lag með að fiska svo að nokkru næmi. Þar voru aöeins þrír menn á sjónum, tveir Danir og einn íslendingur á hvorum. Allir fiskuöu bátarnir með línu. Bar margt til þess, hversu lítill árangur varð af tilraun þessari. Þess er fyrr getið, hve lélegar vélar bátanna voru. Métti heita aö tveir þeirra lægju rígbundnir við bryggju allt sumarið, og komust ekki útfyrir höfnina án þess að allt endaði með ósköpum og skelfingu. Þá voru yfirmennirnir algerlega ókunnugir öllum staöháttum hér við land, og höfðu ekki hugmynd um hvernig hentast væri að bera sig til við línuveiðar á (slandsmiðum. Enn kom það til, að veiða þessarvoru reyndar að sumarlagi, en þá er jafnan minnstur fiskur í Faxaflóa og út af Reykjanesi. Að lokinni Sumarvertíðinni 1908, fór Lauritzen konsúll að kynna sér það, hvernig félaginu haföi reitt af. Kom þá í Ijós það, sem raunar var áður vitað, að stórtap hafði oröiö á allri útgeröinni. Urðu þetta slík vonbrigöi fyrir eigendur og stjórnendur félagsins, að þeir ákváðu að hætta allri útgerð við (sland og selja fasteignir þær sem félagið átti þar. Varð þetta til þess, að löngun Dana til að ráðast í útgerð á íslandi rénaði stórum. Suðurnesjabúar Tökum að okkur alla innrétt- ingasmíði eftir ykkar ósk. GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Húsabygging hf. - Trésmiðja Garði - Sími 7140 Keflvíkingar Suðurnesjamenn Afgreiðum á verksmiðjuverði hinar vinsælu málningarvörur: VITRETEX plastmálningu VITRETEX mynsturmálningu VITRETEX sandmálningu HEMPEL’S þakmálningu HEMPEL’S skipalökk HEMPEL’S grunnmálningu CUPRINOL fúavarnarefni GOOD WOOD þiljulökk A Framleiðandi á Islandi: Síippfélagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414 Umboðsmaður á Suðurnesjum: ÓLAFUR GUÐMUNDSSON málarameistari Borgarvegi 30 - Njarðvík Sími 2471 FAXI - 264 I
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.