Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1981, Side 15

Faxi - 01.10.1981, Side 15
Tvær grindvískar konur kvaddar Margrét Daníelsdóttir, Hópi, Grindavík F. 17. jan. 1899. - D. 15. ágúst 1981 Trúðu á tvennt i heimi tign sem æðsta ber, Guð í alheims geimi, Guð í sjálfum þér. Mér komu þessar Ijóðlínur í hug þegar ég frétti lát Margrétar á Hópi, eins og hún var ævin- lega kölluð hér í Grindavík. Margrét var hvorki skyld mér né tengd, en ég kom oft á heimili þeirra hjóna, Þorsteins Ólafs- sonar og Margrétar, seinni árin. Erindi mitt var að kaupa af þeim hjónum egg, en þau ráku dálít- inn búskap. Með þessum fáu orðum langar mig að þakka þeim hjónum þá hlýju og elsku- legheit sem ávallt mætti mér þar. Ég fluttist hingað til Grinda- víkur fyrir um það bil þrjátíu ár- um. Þá var Grindavík önnur en hún er í dag. Byggðarlagið var fámennt, allir þekktust, buðu hver öðrum góðan daginn og gáfu sér tíma til að ræöa um landsins gagn og nausynjar. Á þeim tíma var stundaður bú- skapur jafnt sem sjávarútvegur. Nú hefur þetta breyst. Mjög fáir stunda búskap hér í dag. Þau hjón Margrét og Þorsteinn voru í þeim hópi, sem lengst héldu tryggð við búskapinn. Fyrstu minningar mínar um þau hjón eru að Þorsteinn kom dag hvern með hestvagn niður i þorpið, fullan af mjólkurbrús- um og færði þorpsbúum mjólk og egg. Þetta var yndislegur tími. Mér finnst sem Margrét og Þorsteinn séu fulltrúar þeirrar kynslóðar, sem var á miðjum aldri þegar ég flutti hingað til Grindavíkur. Margar ferðirnar kom hann til mín færandi hendi, en þegar aldurinn færðist yfir þau snerist þetta við og margar urðu ferðirnar sem ég fór austur að Hópi til þeirra. Ég mun ávallt minnast Margrétar, þessarar hlýju og hógværu konu, sem ég sótti svo miklu meira til en egg og mjólk. Margrét og þau hjón bæði voru fulltrúar þeirrar kynslóðar sem þekkti ekki hraða nútímans og því var gott að setjast niður hjá þeim og þiggja kaffisopa, njóta kyrrðarinnar og friðarins sem umlukti þau og ekki síst hlýjunn- ar og góðmennskunnar sem streymdi frá þeim. Ég bið Guð að blessa Margréti og þakka henni Ijúf kynni. Eigin- manni hennar, börnum, tengda- börnum og barnabörnum send- um við hjónin innilegar samúö- arkveðjur. 22. ágúst 1981. Hulda Björnsdóttir, Gnúpi, Grindavík Valgerður Jónsdóttir, Vík, Grindavík F. 12. júní 1917 - D. 7. sept. 1981 Það er skammt stórra högga á milli hér iGrindavík þettasumar- ið. Margirgamlirog góðirGrind- víkingar hafa horfið af sjónar- sviðinu, fólk sem setti svip á bæ- inn okkar. Ung kona og sonur hennar farast í hörmulegu bílslysi hér, og nú í morgun kemur maður- inn minn heim og segir: „Hulda mín, hún Valla i Vík er dáin.“ Valgerður Jónsdóttir var ein þeirra sem settu svip á bæinn okkar. Hún var ein af þessum harðduglegu konum, sem koma alltaf til dyranna eins og þæreru klæddar. Hún lét skoðanir sínar umbúðalaust í Ijós, var vinur vina sinna, stálheiðarleg og ætl- aðist til þess sama af öðrum. Andlát Valgerðar kom okkur mjög á óvart. Að visu vissum við öll að hún gekkekki heil til skóg- ar, en henni var ekki að skapi að kvarta eöa kveina. Hún var mikil búkona, enda alin upp ástórusveitarhelmiliog hvarf aldrei frá uppruna sínum í því efni. Hún og eiginmaður hennar, Þorlákur Gíslason í Vík, ráku alla tíð mikinn búskap ásamt börnum sínum að Vík. Ég á margar og góðar minningar um Völlu í Vik, eins og hún var alltaf nefnd hér í Grindavík. Tengdamæður okkar voru bræðradætur og var ætíð mikill samgangur á milli tengdafor- eldra minna, sem bjuggu á Járn- gerðarstöðum, og fjölskyldunn- ar í Vík, en jaröirnar liggja sam- an. Valla kunni að segja frá mörgu sem gerðist árin sem hún bjó í nágrenni við tengdafor- eldra mína. Hún og elsta dóttir þeirra, Margrét, voru jafnöldrur og alla tíð góðar vinkonur þó að þær hittust sjaldnar séinni árin. Hafði ég mikla ánægju af því er hún rifjaði upp þessa gömlu og góðu daga. Við Valla ræddum oft saman og eðlilega barst talið oftast að því sem okkur var kærast, börnunum okkar. Síöast er við áttum tal saman skömmu áður en hún dó, ræddum við um barnalán og vorum við báðar sammála um að það væri einhver sú mesta gæfa sem manni gæti hlotnast í lífinu. Valla átti miklu barnaláni að fagna gg oft minntist hún á hvað hún ætti góð tengdabörn og barnabörn. Fjölskylda hennar átti hug hennar allan og ekki má gleyma smælingjunum hennar, húsdýrunum. Valla var mikill dýravinur og mér fannst sem hún breiddi sig yfir hópinn sinn, bæði menn og málleysingjaeins og besta móðir, enda var hún sameiningartákn innan fjöl- skyldunnar og greiddi úr hvers manns vanda ef henni var það mögulegt. Ég hafði gaman af því á vorin snemma morguns að fá mér göngutúr vestur að Vík og Járn- gerðarstöðum þegar sauðburð- urinn stóð sem hæst, enda sjálf alin upp í sveit. Þá sá ég Völlu oftast úti á túni að huga að kind- unum sínum. Seinni árin stóð hún á tröppunum eða við eld- húsgluggann með kíkinn sinn og fylgdist með. Þá var henni vinkonu minni brugðið, en áhug- inn var samur og ekki var kvart- að, enda voru margar fúsar hendur sem hjálpuðu til, þar sem börn, tengdabörn og barna- börn hennar voru. Ein sérstök minning leitarfast á hugann. Það var aðfaranótt sunnudagsins 13. febrúar 1966, að íbúðarhúsið í Vík brann til kaldra kola. Þá komVallatilokk- ar á náttkjólnum einum fata. Fjölskyldan hafði bjargast út á nærklæðunum, eiginmaður hennar, Þorlákur, var hættulega brenndur, heimili þeirra og allar eigur brunnar. Þá sá ég hvað bjó í þessari kjarkmiklu konu, og það var engan bilbug á henni að sjá þar sem hún sat í eldhúsinu hjá okkur þessa nótt. Þá kemur ung dóttir okkar hjóna trítlandi niður stigann og þegar hún hefur orðið þess áskynja hvað hefur gerst, segir hún við Völlu: „Brann dósin þín líka, Valla?“ ,,Já, elskan mín,“ segir Valla, ,,hún brann líka.“ Þá haföi sú litla oft heimsótt hana vestur að Vík án þess að við vissum, og alltaf hafði Valla eitthvað gott í dós handa henni. Með dugnaði og elju og hjálp góðra manna byggðu þau Þor- lákur og Valla heimili sitt upp að nýju, en heilsan var ekki hin sama og áður, þó kjarkurinn væri enn fyrir hendi. Þorlákur hafði brennst illa og hefur hann aldrei náð sér að fullu eftir það. Þau hjónin eignuðust 7 syni og 2 dætur og ólu auk þeirra upp dótturson, og er þetta allt gott og dugandi fólk. Minnist ég þess hve vel hún fylgdist ætíð með börnum sínum, ekki síður eftir að þau voru vaxin úr grasi og synirnir farnir að stunda sjó. Hún fylgdist svo að segja með hverju fótmáli þeirra og eins að þeir stæðu ávallt við sitt, svo að einstakt var. Oft brá hún upp kík- inum og skimaði út á Járngerð- arstaðasund, hvort sem blíð- viðri var eða eitthvað sérstakt að veðri. Einnig þurfti hún að vita hvenær synirnir kæmu að landi, hvað aflinn hefði verið mikill o.s.frv. Slysavarnadeildin hér átti hauk í horni þar sem Valla var. Henni var bæði Ijúft og skylt að styðja þá starfsemi. Einnig vann hún mikið fyrir kvenfélagið af sömu elju og dugnaði sem ann- ars staðar, enda var hún heil í öllu sem hún lét sig varða. Við Valla áttum það sameigin- legt að flytjast ungartil Grinda- víkur og setjast hér að og að vera aldar upp í sveit. Við áttum mikil samskipti í gegnum árin, öll góð og skemmtileg. Ég sakna Völlu mikið, því samtölin við hana voru mér dýrmæt, þó oftast færu þau fram í gegnum síma. Hún miðlaði mér af reynslu sinni og móðurkærleika. Minningin um kynni okkar er mér mikils virði og hana mun ég geyma. Ég bið góðan Guð að blessa Völlu og við hjónin sendum Þor- láki eiginmanni hennarog börn- um þeirra, tengdabörnum og barnabörnum innilegar samúð- arkveðjur. 3. september 1981. Hulda Björnsdóttir, Gnúpi, Grindavik FAXI - 135

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.