Faxi - 01.10.1981, Blaðsíða 21
KNATTSPYRNUÞANKAR ’81:
ÍBK aftur í I. deild
Loksins tókst UMFN að sigra í III. deild
Vinsældir knattspyrnuíþróttarinnar dvínuöu ekkert á liðnu
keppnistímabili hér á Suöurnesjum. Félög og bandalög tóku
þátt í (slandsmótinu í hinum ýmsu flokkum og deildum. Auk
þess voru Suöurnesjamót og Keflavíkurmót og fyrirtækja-
keppnir, sem félögin efna til í fjáröflunarkyni. Þátttakendur
skipta hundruðum í þessari skemmtilegu íþrótt, en ekki má
gleyma þeim þúsundum sem leggja leið sína á völlinn til aö
fylgjast með leikjunum.
Þótt Suðurnesjaliöin geti reyndar ekki státað af mörgum
titlum þegar litið er yfir sumarið, er hitt nokkuð víst aö aldrei
hafa verið fleiri jafn góðir knattspyrnumenn á Suðurnesjum
og í sumar, þegar á heildina er litið, enda mikil rækt lögð við
iþróttina í flestum byggðarlögum héráðsins. En keppnin í
landsmótunum er hörð og liðin jöfn að styrkleika. Oft er því
mjótt á mununum um hver hreppir efsta sætið. Heppnin ein
getur oft ráðið þar um og hún var vissulega ekki fylgifiskur
Suðurnesjaliðanna þegar mest reið á.
(þróttaforustan og knatt-
spyrnumenn veröa aö
leggjast á eitt
Sé aðeins litið á árangur
sumarsins, þá ber sigur ÍBK í
annarri deildinni hæst. Þeir
endurheimtu 1.-deildar sæti sitt
eftir árs fjarveru og voru vel að
sigrinum komnir. Efalítið voru
þeir meö sterkasta liöið í II. deild
en áttu fremur misjafna leiki.
Gátu sigrað hvaða lið sem var,
eins og Víkingana, sem síðar
urðu (slandsmeistarar, en áttu
stundum í erfiðleikum með
botnliðin. ÍBK-liðið er skipað
sterkum einskalingum, blandað
ungum og efnilegum piltum og
eldri leikmönnum með mikla
reynslu. Verði undirbúningur
fyrir næsta leiktímabil hafinn
snemma og haldi þeir hópinn
næsta sumar, sem mest hefur
kveðið að á sumrinu sem er að
líöa, þarf (BK ekki að óttast fall
úr I. deild á næsta ári. Fari hins
vegar svo að piltarnir leiti á aðrar
slóðir, innanlands, eða utan,
verður erfitt að forðast fall.
(þróttaforystan og knattspyrnu-
mennirnir verða nú að leggjast á
eitt og móta eins sterkt lið og
mögulegt er, minnugir þess að
átta ár eru liðin frá því að (BK
sigraði í (slandsmótinu, en það
verður varla gerlegt nema að
skapa þá aðstöðu sem bindur
menn við heimahagana fremur
en önnur félög, í von um fé og
frama.
Reynismenn töpuöu
á heimavelli
Um tíma voru Suðurnesja-
menn farnir að vona að tvö lið af
svæðinu yrðu í I. deildinni næsta
ár. Reynisliðið hafði um sinn
forystu í II. deildinni, en tókst
ekki að halda strikinu. Réði þar
nokkru meiðsli leikmanna svo
og leikbönn, þannig að þeirgátu
ekki teflt sínu sterkasta liði fram
þegar leið á kepþnina. Og hefði
þeim tekist eins vel upp á heima-
velli og eðlilegt má teljast, þá
væru þeir í I. deildinni núna, en
hvernig sem á stóð, gekk þeim
betur á útivelli en heima. Undir
stjórn Karls Hermannssonar lék
liöið yfirleitt góða knattspyrnu,
með léttu og leikandi spili.
Miðað við árangurinn sem
Reynisliöið náði í sumar, erekki
út í hött að ætla þeim baráttuna
um efstu sætin í II. deil næstaár,
þótt svo að lið eins og Þór (Ak.)
og FH séu i deildinni.
Loksins sigruðu Njarö-
vikingar í III. deild
( þessu spjalli og spám um I
og II. deild, má ekki gleyma nýj-
um keppinaust í II. deildinni,
Njarðvíkingum, sem unnu sér
þar sess með langþráðum og
tímabærum sigri í III. deildinni
undir leiðsögn júgóslavans Mile,
sem reyndar ætlar að leiða þá til
orrustu næsta ár einnig. UMFN-
liðið er alveg óskrifað blað í II.
deild. Miðað við styrkleika þess
á sumrinu er varla hægt að krefj-
ast meira af liðinu en að það
haldi II. deildar sæti sínu. Séu
aðstæður athugaðar þá ætti
þeim að vera í lófa lagið að efla
liðið með nýjum mönnum og
sterkari, án þess að veikja nokk-
uð nágranna sína. Góðir verk-
efnalausir knattspyrnumenn,
sem eru gengnir upp úr aldurs-
flokkunum eru til staðar, og hver
veit nema UMFN hafi þörf fyrir
þá. Reynist það rétt vera getur
UMFN sett stefnuna í hærri
mörk II. deildar.
Harmsaga Grindvíkinga
Barátta Grindvíkinga fyrir II.
bikarnum. Keflvíkingar fagna, aö baki liöinu, yfir þvi aö þaöskull vera komlö i
1. deild aftur.
Njarðvikurliðiö, sem vann 3. deildina, og leikur því i 2. deild næsta keppnis-
tímabil.
deilar sæti er orðin harmsaga.
Hvað eftir annað hafa dyrnar
staðið þeim opnar en lokast á
seinustu stundu og aðrirveikari
aðilar skotið þeim ref fyrir rass.
Eins og oft áður sýndist leiðin
upp í II. deild greiðfær fyrir
Grindvíkinga. Siglfirðingar og
Einherji frá Vopnafirði voru
keppinautar þeirra í úrslitariðl-
inum. Grindvíkingar töpuðu
fyrir KS i fyrri leiknum á útivelli,
en sigruðu þá heima fyrir. Ein-
herji kom að því er menn héldu
nokkuð á óvart með því að sigra
KS á útivelli - gott fyrir Grinda-
vík, sem átti báða leikina óspil-
aða við Einherja. En margt fer
öðru vísi en ætlað er. Einherji
bar sigurorð af KS i seinni leikn-
um og Grindvíkingum fyrir
norðan, svo heimaleikurinn við
Einherja skipti ekki máli. Grind-
víkingar unnu hann, en Einherji
sigraði í riðlinum og leikur í II.
deild að ári.
Léttir varö Viöi þungur
Það verða því tvö Suðurnesja-
lið í III. deildinni næstaár, Grind-
víkingar og Víðir, en þeir síðar-
nefndu áttu í harðri keppni við
Njarðvíkinga um efsta sætið í
undanúrslitariðlinum um II.
deildar sætið. Lengi vel leit út
fyrir að Víðirætlaði að merjasig-
ur, en óvænt jafntefli við Létti á
útivelli dró úr líkunum og tap
fyrir UMFN batt enda á vonir
þeirra um nýjan keppnisvett-
vang á næsta ári. Þeir sitja því
eftir með sárt ennið eins og
Grindvikingar, en búa sig vafa-
lítið vel undir næsta keppnis-
tímabil í vissu um betri árangur.
ÍBK tapaöi á
óhagstæöari markatölu
Öll félögin á Suðurnesjum og
(BK, sendu yngri flokka í (s-
landsmótið, að Víöi undanskild-
um, sem var aftur á móti eitt fé-
laga héðan, sem sendi kvenna-
flokk í mótið. Árangurflestra var
góður, en lengst náði II. aldurs-
flokkur (BK, þótt ekki tækist að
hreppa meistaratitil. Þeir höfðu
óhagstæðari markatölu en KR-
ingar sem gengu með sigur af
hólmi, en að dómi þeirra sem
fylgdust með keppninni var (BK-
liðið talið það sterkasta, en
heilladisirnar brugðust þeim.
Efstu sætin og titlareru auðvitað
það sem er nokkuð þungt á met-
unum, en hitt eröllu meiraatriði,
að iðka holla íþrótt, fá útrás og
ánægju í skemmtilegri képpni
og læra að taka jafnt sigri sem
tapi.
Innbyrðis keppni
Suðurnesjaliðanna
dró aö sér áhorfendur
Einn óaðskiljanlegur hlutur
FAXI -141