Vísbending


Vísbending - 30.05.2008, Side 3

Vísbending - 30.05.2008, Side 3
dósent við Háskóla Íslands Helgi Tómasson Verðbréfaráðgjafar ná misjöfnum árangri við ávöxtun. Eðlilega telja menn að þeir sem ná góðri ávöxtun hafi mikið innsæi og beiti spálíkönum sem hafi mikið forsagnagildi. Hinum sem verr vegnar er ekki sýnd sama virðing. Þetta er ekki nýtt. Á þriðja áratug tuttugustu aldar náðist mjög góð ávöxtun á hlutabréfamarkaði. Svo kom kreppan mikla og hlutabréf hrundu í verði. Á þeim tíma var, rétt eins og nú á tímum, fylgst vel með því hvernig einstökum ráðgjöfum vegnaði. Alfred Cowles ákvað að rannsaka málið með því að bera saman árangur atvinnuráðgjafa og ráða sem gefin voru með því að velja spil úr stokk. Niðurstaðan benti til þess að árangur handahófsráðgjafa reyndist svipað og fagráðgjafa. Úr sögu hagrannsókna Hagrannsóknir, er íslensk þýðing á hagnýtu tölfræðigreininni sem á ensku er nefnd econometrics. Hagnýt tölfræði er stundum nefnd með viðskeytinu „metrics“, svo sem biometrics, psychometrics, technometrics, chemometrics, environmetrics, criminometrics, o.s.frv. Þessi heiti vísa til þess að unnið skuli með mælingar. Meginþema í hagnýtri tölfræði á 20.öld er að alhæfa um sannleika. Tölfræði nútímans er hagnýting á stærðfræðilegri líkindafræði. Á 19. öld voru alls kyns mælivísindi í sókn, þótt deilt væri um aðferðir og heimspeki. Snemma á 20. öld setti R.A. Fisher saman ýmis tól úr stærðfræði og lagði grunn að hvernig byggja mætti upp kerfi um hvernig álykta ætti út frá mælingum. Kjarninn í nálgun Fishers var líkindafræði og hugsun hans byggðist á að reyna að tjá sig með formlegum hætti um hvort líklegur atburður hefði átt sér stað. Hagnýting var í upphafi á sviði raunvísinda, líffræði og landbúnaðar en hugmyndirnar ruddu sér rúms alls staðar þar sem mælingar voru til. Í hagfræði vildu menn ekki láta sitt eftir liggja. Árið 1912 var hagfræðingurinn I. Fisher sem þá var varaforseti í American Association for the Advancement of Science (AAAS) farinn að leggja drög að því að skipuleggja félagsskap sem legði áherslu á mælivísindi og stærðfræði í hagfræðinni. Það var þó ekki fyrr en 1928 sem Norðmaður nokkur, Frisch að nafni, var í Bandaríkjunum og hitti þar meðal annarra stærðfræðinginn Roos sem þá var orðin ritari K-deildar AAAS, deildinni sem sinnti m.a. hagfræði, félagsvísindum og tölfræði. Þeir ákváðu að fara af stað með félag sem leiddi saman hagfræði, stærðfræði og tölfræði. Econometric Society var stofnað 1930. Orðið econometrics er talið vera uppfinning Frisch. Það er athyglivert að Frish var álitinn frekar andsnúinn líkindafræði. Verðbréfaráðgjafi gerist frumkvöðull í vísindum Í kringum 1930 var fyrrnefndur Cowles verðbréfráðgjafi í Colorado Springs. Hann undraðist það að stór sveit lærðra og vel upplýstra manna hafði ekki getað komið í veg fyrir verðbréfahrunið mikla New York. Meðal hinna lærðu mann var Hamilton, ritstjóri Wall Street Journal, sem hafði haldið úti vikulegum pistli um verðbréfamarkaðinn um margra ára skeið. Hamilton sagðist nota aðferðir fyrirrennara síns, Dow, við ráðleggingar á markaðnum og nefndi aðferðina Dow-theory í höfuðið á meistaranum. Cowles ákvað að taka málið föstum tökum og safnaði saman ráðgjöf Hamiltons með það í hug að mæla árangur af henni. Niðurstaðan var sú að ef farið hefði verið að ráðum Hamiltons hefði mönnum farnast 4% verr en ef mjög einfaldri stefnu hefði verið fylgt. Cowles ákvað að athuga þá hvernig öðrum ráðgjöfum hefði farnast. Hann athugaði ráðgjafa hjá brunatryggingafélögum sem þurftu að ávaxta iðgjöldin. Einnig safnaði hann saman ráðum sérfræðinga fjármálatímarita og sjálfstætt starfandi ráðgjafa. Auðvitað var ávöxtun verðbréfasafna hinna ýmsu ráðgjafa misjöfn og hann hafði áhuga á að reyna að greina sundur heppni og snilli. Hann fékk því þá góðu hugmynd að skrifa ráðgjöfina á spil í spilastokk og herma síðan ferlið. Hann bjó til ímyndaða ráðgjafa og fór ráðgjöfin þannig fram að dregið var eitt spil úr stokknum, fjárfest samkvæmt því, og spilinu síðan stungið aftur í stokkinn og stokkað. Dreifing árangurs þeirra sem hefðu farið eftir stokknum reyndist mjög áþekk dreifingu sem mældist hjá raunverulegu ráðgjöfunum. Cowles ályktaði sem svo að lítið gagn væri í ráðleggingum sérfræðinga og hætti sjálfur að selja ráðgjöf 1931. Hann sagðist ætla að bíða þangað til að betri skilningur fengist á ferlinu. Grein hans þar sem þessu er lýst birtist síðan í tímariti Econometric Society, Econometrica árið 1933. Geta verðbréfasérfræðingar spáð? Snilli eða heppni: framhald á bls. 4 V í s b e n d i n g • 1 9 . t b l . 2 0 0 8 3

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.