Vísbending - 19.09.2008, Blaðsíða 2
2 V í s b e n d i n g • 3 5 . t b l . 2 0 0 8
gæti skýrt hvers vegna gjárnar á mynd
1 eru miklu dýpri en topparnir. VVG
er þó of ný til þess að fullyrða hvernig
sambandið er á Íslandi.
Væntingar neytenda ná nýjum lægðum
en til að sjá hvenær efnahagurinn nær sér
til baka á skrið.
Fólk er fljótt að venjast betri kjörum, en
það þolir illa þegar kjör þess versna. Það
N eysla almennings er einn mikil- vægasti þáttur í öllum hag- kerfum enda fer stærstur
hluti landsframleiðslunnar til neyslu.
Því er mikilvægt að reyna að meta
hvernig neyslan muni þróast. Í því skyni
gefur Capacent út í mánuði hverjum
Væntingavísitölu Gallups (VVG). Hún er
reiknuð þannig að neytendur eru spurðir
um mat á ástandi efnahagslífsins, ástandi
vinnumarkaðarins, væntingum sínum
um sömu málefni eftir sex mánuði, svo
og væntingum sínum á heildartekjum
fjölskyldunnar eftir sex mánuði. Fjölda
jákvæðra svara er svo deilt með fjölda
heildarfjölda aðspurðra og hlutfallið
margfaldað með tvöhundruð. Ef
jafnmargir eru jákvæðir og neikvæðir
er vísitalan því hundrað; ef allir eru
jákvæðir þá er hún í tvöhundruð. VVG
er fundin á sama hátt og bandaríska
vísitalan CCI (Consumer Confidence
Index). Hugmyndin á bak við vísitöluna
er einföld. Ef neytendur eru ánægðir
og þeim finnst lífsgæði sín vera batna,
eru þeir líklegri til þess að eyða meira
sem heldur hagkerfinu gangandi.
Óvissa um framtíðina eða óánægja með
ástandið getur haft mjög neikvæð áhrif á
efnahaginn.
Spágeta vísitölunnar
Væntingavísitölur þykja gefa nokkuð
góða mynd af efnahagsástandi hverju
sinni. Þær gefa líka vísbendingu um
það hvernig neysla verður á næstunni;
sérstaklega í varanlegum neysluvörum.
Það þarf þó að fara varlega með að
nota væntingavísitöluna til þess að spá.
Sveiflur í henni eru oft miklar og séu
þær 5% eða minna eru þær taldar flökt.
Hagfræðingar nota líka oft fimm mánaða
hreyft meðaltal (e. moving avarage) til þess
að draga úr áhrifunum af sveiflunum.
Væntingavísitölur eru yfirleitt betri til
þess að koma auga á upphaf að samdrætti
Mynd 1. Væntingavísitala Gallup
Athugið að Y ásinn byrjar í 60. Heimild: Capacent
Mynd 2. Væntingatalan og verðbólgan andhverf
Mynd 3. Væntingavísitala Gallup og gengisvísitalan andhverf
Heimild: Hagstofa Ísland og Capacent.
Heimild: Seðlabanki Íslands og Capacent
Væntingavísitölur eru
yfirleitt betri til þess að
koma auga á upphaf að
samdrætti, fremur en
til að sjá hvenær efna-
hagurinn nær sér til
baka á skrið.
Gengisvísitalan
(rauð, á skala til hægri)
Væntingavísitala Gallup
(blá, á skala til vinstri)
Gengisvísitalan
(rauð, á skala til hægri)
Væntingavísitalan
(blá, á skala til vinstri)