Íslendingur - 07.04.1983, Page 1
13. TÖLUBLAÐ . 68. ÁRGANGUR . AKUREYRI . FIMMTUDAGINN 7. APRÍL 1983
Hörður Áskelsson leikur á
orgel í Akureyrarkirkju
Hörður Áskelsson orgelleikari
heldur tónleika í Akureyrarkirkju,
fimmtudaginn 7. apríl kl. 20.30.
Á efnisskránni verða verk eftir:
Cesar Franck, Olivier Messiaen, Pál
Isólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson og
einnig flytjandann - Hörð Áskels-
son.
Hörður hefur þegið boð um að
halda tónleika við Postulakirkjuna i
Köln i Þýskalandi, og leikur hann
sömu tónverkin á Akureyri, og í
Þýskalandi einni viku síðar.
Orgel Akureyrarkirkju er stærsta
ptpuorgel landsins, óg kemst næst
þeim orgelum, sem Hörður mun
leika á í Þýskalandi. Stærð hljóð-
færisins og þaðað Hörðurerfæddur
og uppalinn á Akureyri, ræður vali
á Akureyrarkirkju fyrir tónleikana.
KOSNINGASKRIFSTOFA
Sjálfstæðisflokksins
á Akureyri er í Kaupangi v/Mýrar-
veg (2. hæð).
Opin daglega kl. 13-19.
er 21504.
Lárus Jónsson, alþingismaður:
Skattlagning á umferðina og stefna í vega-
málum á valdatíma Alþýðubandalagsins og
Framsóknar frá 1978 til 1983
Álþýðubandalagið og Framsóknar-
flokkurinn hafa haft forystu
saman um ríkisfjármál og sam-
göngumálin frá haustinu 1978.
Sú þróun sem átt hefur sér stað í
skattheimtu á umferðina og
stefnan í vegamálum á þessu
tímabili er athyglisverð og
laerdómsrík sem dæmi um það
lánleysi sem fylgt hefur stjórnar-
samstarfi þessarra höfuðandstæð-
'nga Sjálfstæðisflokksins. Hér
skulu tilfærð nokkur aðalatriði:
(Upplýsingar eru frá Vegagerð
nkisins og Þjóðhagsstofnun.)
1- Skattar á bensín hafa hækkað
að raungildi um 438 millj.
króna milli áranna 1978 og 83
(verðlag vegaáætlunar). Sjá
mynd.
4.
Ef þessi gífurlega skatta-
hækkun rynni öll til vegamála
væri tvöföld upphæð til
ráðstöfunar í sumar til ný-
bygginga vega og brúa miðað
við það sem vegaáætlun
Steingríms Hermannssonar
gerir ráð fyrir.
Þessi skattahækkun hefur svo
til öll farið til almennrar
eyðslu ríkissjóðs. Á hinn
bóginn hafa lántökur tvöfald-
ast að raungildi til vegamála
sum árin frá 1978.
Nýframkvæmdir vega og brúa
hafa sáralítið aukist á þessu
timabili og sú litla aukning
sem orðið hefur sum árin
einvörðungu orðið vegna
aukinnar lántöku. Þeir víxlar
falla auðvitað síðar á skatt-
greiðendur. (sjá mynd.)
5. Vegaáætlanir síðustu ára hafa
alltaf verið skomar miskunnar-
laust niður og stefnumótun
Alþingis í vegamálum verið
hunsuð í reynd.
Þetta hefur gerst þótt vitað sé
að vegaframkvæmdir eru með
allra brýnustu og arðbærustu
félagslegu framkvæmdum sem
bíða úrlausnar í landinu. Bættar
samgöngur eru jafnframt eitt
stærsta byggðamálið. Uppbygg-
ing 700 km af þjóðvegakerfinu er
talin svo ábatasöm að hún gefí
20% arð og þar af 400 km yfir
30% arð. Þessu fjármagni sem
tekið hefur verið með sköttum á
umferðina hefði því áreiðanlega
verið betur varið tjl vegagerðar
en almennrar eyðslu ríkissjóðs.
Það er mikill heiður fyrir Hörð að
hafa fengið slikt boð frá Köln, því á
þeim ' 4 aðaltónleikum, sem
organistum er boðið að halda, leika
auk Harðar organistarnir Rudolf
Heinemann og Michael Schneider,
en þeir eru báðir heimsþekktir.
Hörður hóf orgelnám á Akureyri
hjá Gígju Kjartansdóttur við
Tónlistarskólann á Akureyri. Siðan
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
þar sem hann lauk tónmenntar-
kennaraprófi og ári siðar B loka-
prófi í orgelleik, og var Marteinn
Hunger Friðriksson orgelkennari
hans þar. Síðan stundaði hann
framhaldsnám við tónlistarháskól-
ann í Dusseldorf í Þýskalandi, og
lauk þaðan æðsta prófi í kirkju-
tónlist og orgelleik, þ.e. A prófi
vorið 1981, sem eini nemandinn er
því prófi lauk það árið og jafnframt
með hæsta vitnisburði, sem veittur
er við skólann þ.e. meðaleinkunn A
úr öllum greinum.
Honum bauðst starf í eitt ár við
Neanderkirkjuna í Dusseldorf, sem
er helsta tónlistarkirkja Dusseldorf,
og auk einleiks á orgel flutti hann
þar, sem stjórnandi nokkur stór
verk fyrir kór og hljómsveit.
Hann starfar nú, sem organisti
við Hallgrímskirkju, og var aðal-
hvatamaður að stofnun listvina-
félags við kirkjuna, sem stendur að
flutningi og sýningu kirkjulegrar
listar. Hann stofnaði einnig
mótettukór við kirkjuna, sem flutt
hefur tónlist við ýmist tækifæri.
Hörður hefur verið aðstoðar-
stjórnandi Pólýfónkórsins, og var
aðalstjórnandi á jólatónleikum
hans.
Hann hélt orgeltónleika í boði
dómkirkju Þrándheims á tónlistar-
hátíð þar árið 1982, og lék á
Spáni á s.l. sumri.
Fráupplausn til ábyrgðar
Mikilvægir punktar úr stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
Um hjöðnun verðbólgu:
• Verðbólgunni verði náð niður með samstilltu
átaki allrar þjóðarinnar.
• Ríkið gangi á undan með því að draga úr
eyðslu sinni og skattheimtu.
• Aðilar vinnumarkaðarins komi sér sjálfir
saman um kaup og kjör er samræmist getu
atvinnuveganna. Nauðsyn ber til að finna
nýjar leiðir að því markmiði og mun Sjálf-
stæðisflokkurinn stuðla að því að skapa
skílyrði fyrir sliku samkomulagi.
Um atvinnuöryggi:
• Árangur í baráttunni gegn verðbólgu er for-
senda þess að fuli atvinna haldist, sparnaður
aukist og jafnvægi náist i efnahagsmálum.
Með minnkandi verðbólgu geta vextir orðið
jákvæðir en farið þó lækkandi og stuðlað að
hjöðnun verðbólgu, gagnstætt því sem nú er.
• Skráning gengis sé miðuð við stöðu atvinnu-
veganna og jafnvægi i milliríkjaviðskiptum.
• Eðlilegt verðlag i landinu sé tryggt með
frjálsri verðmyndun þar sem samkeppni er
næg.
• Orkulindir landsins verði hagnýttar til að
leggja grunn að nýrri framfarasókn þjóðar-
innar.
Um erlendar skuldir:
• Útgjöld séu ekki umfram afrakstur þjóðar-
búsins, erlendar skuldir aukist ekki og
langtímalánum sé aðeins varið til arðsamrar
fjárfestingar. Fjárhagslegt sjálfstæði þjóðar-
innar sé tryggt á ný og efnahagslegu jafn-
vægi náð.
Um skattamál:
• Tekjuskattur á almennar launatekjur verðí
afnuminn, jafnframt þvi sem persónuf rádrátt-
ur nýtist láglaunafólki að fuliu. Tekjum hjóna
verði skipt milli þeirra fyrir álagnfngu skatts.
Eignarskattur á ibúðir verði lækkaður.
• Virðisaukaskattur verði tekinn upp i stað
söluskatts.
Sjá stefnuskrána á bls. 4-5.