Íslendingur - 16.06.1983, Blaðsíða 3
Forsetinn
sat þingið
Landsþing Kvenfélagasambands
Islands var haldið að Hrafna-
gili um liðna helgi. Verndari
Kvenfélagasambandsins, Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands,
kom til Akureyrar og var við-
stödd hluta þingsins. Mun þetta
vera í fyrsta skipti, sem forseti
Islands heiðrar þessa samkomu
með nærveru sinni.
A laugardag fóru fram venju-
leg störf, en á sunnudeginum
fluttu þær Sigríður Hafstað,
María Pétursdóttir og Sigríður
Thorlacisus erindi. A laugar-
dagskvöld bauð Menningar-
sjóður KEA þátttakendum, um
80 talsins, til kvöldverðar að
Hótel KEA, en á sunnudegi
bauð bæjarstjóri konunum til
hófs í Sjálfstæðishúsinu.
Undirbúningur Landsþings-
ins var í höndum Sambands
eyfirskra kvenna, Kvennasam-
bands Akureyrar og Héraðs-
sambands eyfirskra kvenna.
Atök óhjákvæmileg
Trúnaðarmannaráð Verkalýðs-
félagsins Einingar hefur sent frá
sér ályktun, þar sem sérstaklega
er mótmælt „þeirri valdníðslu
ríkisstjórnarinnar að afnema
með öllu samningsrétt verka-
lýðsfélaga um lengri tíma þar
sem ekki er tryggður kaup-
máttur lægstu taxta, um leið og
verðhækkanir eru hömlulausar
á öllum vörum og þjónustu“.
I lok ályktunarinnar er skorað
á stjórnvöld, að taka fullt tillit til
sjónarmiða verkalýðshreyfing-
arinnar, svo forðast megi átök á
vinnumarkaðnum, sem óhjá-
kvæmilega muni verða, ef ekki
verði horfið af þessari braut.
10 krónur, takk!
Akveðið hefur verið, að láta
taka gjald af börnum á aldurs-
bilinu tveggja til sjö ára, sem
sækja gæzluvelli bæjarins. Er
þetta í fyrsta skipti, sem slíkt er
gert hér á Akureyri.
Gjald fyrir hverja heimsókn
verður 10 krónur, en jafnframt
verða til sölu kort með gæzlu-
miðum, 25 stykki, og kostar
kortið 100 krónur.
Nýi borgarstjórnarmeirihlut-
inn í Reykjavík ákvað á sínum
tíma, að láta greiða aðgang að
gæzluvöllum fyrir sunnan og
var sú ráðstöfun harðlega gagn-
rýnd af minnihlutanum og
foreldrum.
ÍÞRÓTTIR
KA-menn óheppnir
Njarðvíkingar eru nú í efsta sæti í 2. deild
„Þetta var ágætur leikur hjá
okkur," sagði Guðjón Guð-
mundsson í samtali við íslend-
ing, eftir að KA hafði gert 0-0
jafntefli við Víði í Garði í gær-
kvöldi.
„Það var jafnræði með liðun-
um í fyrri hálfleik, en í þeim síð-
ari gerðum við allt nema skora
mörk. Fengum mörg góð færi
og áttum þrjú stangarskot og
vorum mjög óheppnir að vinna
ekki þennan leik,“ sagði Guðjón
að lokum.
Þess má geta, að Gunnar
Gíslason verður í leikbanni á
móti F.H. á sunnudaginn, en
hann fékk eins leiks bann.
Aðrir leikir í 2. deild, sem Staðan í 2. deild er nú sú, að
fram fóru í gærkvöldi, lóru svo: Njarðvíkingar eru í 1. sæti með
Völsungur-Njarðvík 0-2 8 sti8- Völsungar og Fram eru
F.H.-Fram 2-1 með ? sti8’ en K- A. er í 4. sæti
K.S.-Reynir 1-1 með 6 sti8-
Sanngjarn sigur
Þórsarar unnu mjög sann- gerðu Guðjón Guðmundsson
gjarnan sigur á Þrótti Reykja- og Sigurður Pállsson. Mark
vík í fyrstu deild en þessi leikur þróttar gerði Sigurkarl
var háður fyrir 'sunnan í Aðalsteinsson.
fyrrakvöld. Mörk Þórsara
VÖLSUNGUR TÓK STIGIN
KA-menn fengu Völsung í
heimsókn á sunnudag og var
leikið á grasvelli KA. Völsung-
ur fór með bæði stigin heim.
Þeir sigruðu KA með einu
marki gegn engu.
Fyrri hálfleikur var heldur
daufui og lítið um markverð
tækifæri. A 10. mínútu síðari
hálfleiks var Gunnari Gísla-
syni KA, vikið af leikvelli fyrir
gróft brot á einum leikmanna
Völsungs.
Það var svo á 20. mínútu
síðari hálfleiks, að Völsungur
skoraði sigurmarkið. Þar var
að verki Björn Olgeirsson með
skalla eftir mistök Þorvalds í
marki KA. Beztu menn Völs-
ungs voru bræðurnir Kristján
og Björn Olgeirssynir. Hjá KA
bar mest á Erlingi Kristjáns-
syni. -GB
Þór náði
a ð jafna
Þórsarar léku við ÍBV s.l.
laugardag og fór leikurinn
fram á malarvelli Þórs. Leikn-
um lauk meðjafntefli, 1-1. ÍBV
lék undan talsverðum vindi í
fyrri hálfleik og náðu að skora
á 25. mínútu. Það var Ómar
Jóhannsson, sem skoraði með
góðu skoti.
I síðari hálfleik pressuðu
Þórsarar stíft og fengu margar
hornspyrnur. Ur einni þeirra
skoraði Guðjón Guðmundsson
með góðum skalla.
Beztu menn Þórs í þessum
leik voru Nói Björnsson og
Guðjón Guðmundsson. -GB
Næstu leikir:
KA-FH
á sunnudag kl. 16.
Þór-Valur
á þriðjudag kl. 20.
Báðir leikirnir eru á Akureyrarvelli
Jpofo gr saooköLLat)
WBgBg
mööhá t ítxiRStemninG
hoö okkaR
FULLT HUS AF NYJUM VORUM
DRAGTIR, KJÓLAR, BLÚSSUR, VESTI VORLmRNIR, HAGSTÆTT VERÐ.
BÆJARINS MESTA ÚRVAL AF BARNAFATNAÐI:
BUXUR, PEYSUR, B0LIR, KJÓLAR, STUTTBUXUR.
BRANDTEX KVENFATNAÐUR, ÓTRÚLEGT ÚRVAL OG VERÐ.
FRÁ V.DESIGN PILS OG BUXNAPILS. CHASIPRJÓNAPILS 0G PEYSUR.
NÝJAR ÓDÝRAR SUMARKÁPUR. BLÚSSUR 0G MUSSUR - NÝ SENDING.
VEFNAÐARVÖRUDEILD.
NÝKOMTO! HOLLENSKU GARÐHÚSGÖGNIN, FALLEG, VÖNDUÐ, ÓDÝR.
TJÖLD í ÖLLUM STÆRÐUM.
SPORTVÖRUDEILD.
COMBIFLEX RAÐHÚSGÖGN í ÚRVALI. SELLUT FATASKÁPAR. ÍSLENSKIR, VANDAÐIR, ÓDÝRIR.
GREIÐSLUSKILMÁLAR. HRISALUNDUR 5 N.H.
V0RUM AÐ FÁ ÚRVAL AF SÆNSKRIGLERVÖRU. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. BING 0G GRÖNDAL P0STULÍN.
JÁRN- 0G GLERVÖRUDEILD.
ELEFANTEN BARNASKÓR. FALLEGIR VANDAÐIR í MKLU ÚRVALI.
KVENSPARISKÓR í HVÍTU, SVÖRU OG BLÁU.
FISHER OG T0MS0N VIDEOTÆKI í VHS 0G BETA KERFI. HAGSTÆTT VERÐ.
UÓSIR SUMARJAKKAR. UÓSAR BUXUR. BOLIR 0G STUTTERMASKYRTUR.
NÝ SENDING! LEE COOPER OG BRITTANIA BUXUR. SUMARSTAKKAR, HÚFUR OG HATTAR. NÝJUSTU SNBD.
HERRASKYRTUR í ÖLLUM LITUM. PEYSUR, BINDI, NÆRFATNAÐUR. ÚRVALE) ALDREIMEIRA.
HERRADEHJ).
SKÓDEILD.
HLJÓMDEILD.
Auglysingastofa Einars Pálma
ÍSLENDINGUR - 3