Íslendingur - 16.06.1983, Blaðsíða 8
Islendingur
RAFORKA HF.
GLERÁRGÖTU 32
Simar 23257 og 21867
Raflagnir - viðgerðarþjónusta
á raflögnum og
heimilistækjum.
íneimilistæki, Þilofnar
<^aAsh,tadunkar
BBmJMKaUPANGI - AKUREYRI - BOX 873 - SfMI: 25951 upS
Slippstöðin selur
fyrir 90 milljónir
Ljósm. K.G.
Brekka lifír!
Slippstöðin hefur gert samning
um sölu á 260 lesta skipi, sem er í
smíðum hjá stöðinni og er
kaupverð áætlað um 90 milljónir
króna. Skipssmíðin er u.þ.b.
hálfnuð og er gert ráð fyrir, að
skipið verði tilbúið um áramótin.
Kaupandi er Friðþjófur hf. á
Eskifírði.
Skip þetta er um 35 metra
langt fjölveiðiskip, þ.e. togskip,
sem er útbúið fyrir veiðar á línu
og með net. Smíði þess er liður í
svokölluðu raðsmíðaverkefni,
sem fráfarandi ríkisstjórn heim-
ilaði. Samkvæmt þeirri heimild
fékk Slippstöðin að hefja smíði
skipsins án þess að búið væri að
tryggja kaupanda.
Gunnar Ragnars, forstjóri
Slippstöðvarinnar, sagði í við-
Á Dalvík er deilt um það hvai
setja eigi niður nýja sundlaug
bæjarbúa. í sundlaugarnefnd
hefur verið fjallað um þetta mál
og fyrir nefndinni hefur legiö
greinargerð frá Svani Eiríks-
syni, arkitekt. Greinargerð
Svans og hugmyndir falla hins
vegar ekki í kramið hjá sund-
laugarnefndarmönnum, og nú
hafa bæjaryfirvöld ákveðið að
efna til borgarafundar í bæn-
um þann 27. júní.
Þrír menn sitja í sundlaugar-
nefnd og voru þeir allir ósáttir
við greinargcrð arkitektsins og
Lárus og Valur
í stóriðjunefnd
Eins og Sverrir Hermannsson,
iðnaðarráðherra, skýrði frá í
síðasta Islendingi, hefur stór-
iðjunefnd verið endurvakin.
Nefndina skipa Birgir ísleifur
Gunnarsson, formaður, Guð-
mundur G. Þórarinsson, Helgi
G. Þórðarson, Lárus Jónsson,
Sigurgeir Jónsson og Valur
Arnþórsson.
Athygli vekur, að tveir
nefndarmanna eru úr Norður-
landskjördæmi eystra.
tali við íslending, að hann gerði
ráð fyrir, að með því að selja
þetta skip fengi stöðin heimild
til þess að hefjast handa um
smíði nýs skips með sömu skil-
málum. ,,Að því leyti til er þetta
viss áfangi hjá okkur“, sagði
Gunnar Ragnars. Gengið var
frá samningum á miðvikudag í
siðustu viku. Gunnar kvað
þennan samning mjög mikil-
vægan fyrir Slippstöðina því
með honum losaði Slippstöðin
ríkið undan þessari ábyrgð. í
framhaldinu er þess svo vænzt,
að ríkisábyrgðin flytjist yfir á
nýtt verkefni.
Gunnar sagðist vera bjartsýnn
á að Slippstöðin fengi að byrja
smíði á nýju skipi innan þessa
raðsmíðaverkefnis áfram. Reynsl-
lögðu þeir Trausti Þorsteins-
son og Kristinn Guðlaugsson
fram sér tillögu vegna greinar-
gerðarinnar, en Björn Frið-
þjófsson lét bóka sérstaklega
sitt álit.
Hér verður stiklað á stóru í
áliti þeirra þremenninganna,
sem óneitanlega er allharðort í
garð Svans Eiríkssonar, arki-
tekts.
Á fundi í sundlaugarnefnd
snemma í maí segir, að nefndin
geti ekki fyrir sitt leyti fallist á
skoðun arkitektsins, að svæði A
sé heppilegast, og „vísar á bug
sem rangfærslum ogórökstudd-
um fullyrðingum“ skoðunum
Svans.
Þeir Trausti og Kristinn vilja
taka fram eftirfarandi:
1. Arkitekt fari út fyrir verk-
svið sitt með því að fjalla um
staðsetningu minkabúsins „og
hefur vafalaust ekki skoðað öll
sjónarmið þar um.“
2. „Allt tal arkitekts um
vanskapað bæjarins er út í hött
og dæmir sig sjálft . . . og vekur
lítið traust á ráðleggingum arki-
tektsins.“
3. „ . . . það er ný kenning að
menn hafi í kringum 1930 sett
skólabyggingu niður af vissu
um að eftir 50-60 ár yrði skól-
inn í miðsvæði bæjarins.“
an væri góð. Austur á fjörðum
væri eitt skip smiðað eftir sömu
teikningu byrjað veiðar og
reynslan væri góð. Skip þetta
var smíðað hjá Skipasmíðastöð
Þorgeirs og Ellerts á Akranesi
og heitir Hafnarey.
„Þetta eru skip, sem virðast
standa sig vel, enda var engu til
sparað í hönnun og prófunum á
þessu. Stærstu skipasmíða-
stöðvarnar slógu sig saman um
þetta verk“.
Nú þegar þetta skip hefur
selzt, þá er beðið eftir grænu
ljósi á næsta verkefni og „við
þurfum að hella okkur út í það
fljótlega", sagði Gunnar
Ragnars.
Hjá Slippstöðinni er nú í
smíðum annað skip, 150 lesta 27
metra langt fiskiskip fyrir
Þróunarsamvinnustofnun Is-
lands. Þetta skip á að fara til
Grænhöfðaeyja. Það er hálf-
smíðað, en verður tilbúið í
haust.
Eyjaskeggjar á Grænhöfða-
eyjum stefna að því að byggja
upp fiskiskipaflota og smíði
skipsins hér á Akureyri er liður í
þeirri viðleitni.
Gunnar Ragnars sagði, að ef
þetta skip reyndist vel gæti orðið
framhald á verkefnum af þessu
tæi.
Þetta skip er útbúið til
togveiða en ýmiss konar annars
konar veiða einnig, svo sem
stangaveiði.
4. „Arkitekt fullyrðir að
staður skóla sé skýlli en ofan
kirkjunnar. Hvaða vindmæling-
ar hafa farið fram sem stað-
festa þessa fullyrðingu? Það er
almanna mál hér á Dalvík að
eftir því sem ofar dregur í fjallið
sé skýlla, hafgolu gætir þar til
muna minna.“
5. „Tengsl svæðis A við úti-
vitstarsvæði er talin svæðinu til
gildis en ekki er minnst á tengsl
svæðis B við útivistaraðstöðu."
6. „Bent er á kosti þess að
staðsetja sundlaug sem næst
skóla vegna sundkennslu og
samfelldrar stundaskrár . . .
Víða í bæjum eru sundlaugar í
meiri fjarlægð frá skóla en hér
um ræðir.“
Þá vísa nefndarmenn á bug
þeirri skoðun, að sundlaugin
kunni að skemma þá mynd er
kirkjan gefur bænum og „ekkert
er komið til með að segja að
háreista byggingu þurfi yfir
sundlaug . . . “
Þá lét Björn Friðþjófsson
bóka m.a.:
„Sú greinargerð sem nú ligg-
ur fyrir frá arkitekt tel ég vera
unna í fljótheitum og ekki
auðvelda neinum um endan-
lega ákvarðanatöku á staðsetn-
ingu sundlaugar.“ Björn tók á
fundinum svæði A fram fyrir
svæði B og C.
Verzlunin Garðshorn hefur fengið
leyfi til áframhaldandi rekstrar í
húsnæði því, sem verzlunin hefur
á horni Byggðavegar og Hamars-
stígs.
Bæjarráð fjallaði um málið á
fundi sínum á fimmtudaginn í
liðinni viku, þar sem samþykkt
var að veita umbeðið bráða-
birgðaleyfi. Leyfið er veitt til
eins árs í senn og framlengist
sjálfkrafa í eitt ár hafi því ekki
verið sagt upp með þriggja
mánaða fyrirvara. Leyfisveiting-
in miðast við áramót þannig, að
tryggt er, að verzlunarrekstur
verður í Brekku, eins og verzlun-
in er kölluð í daglegu tali, í eitt
og hálft ár hið minnsta.
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, lagði fram þessa
tillögu á bæjarráðsfundinum og
íslendingur leitaði álits Svans
Eiríkssonar, arkitekts, á þeim
staðhæfingum, sem fram koma í
áliti nefndarmanna í sundlaug-
arnefnd Dalvíkur.
Svanur sagði, að þetta væri
orðið gamalt mál og hann hefði
verið beðinn um álit, þar sem
nefndin gat ekki komið sér
saman í þessu máli. Hann benti
á, að í aðalskipulagi fyrir
Dalvík, sem var klárað fyrir
einu til tveimur árum, væri gert
ráð fyrir tveimur stöðum fyrir
sundlaug.
Hins vegar sagði Svanur, að
alltaf hefði verið gert ráð fyrir
því, að sundlaugin yrði sett
niður við skólann, „sem í
mínum augum er algjörlega
sjálfsagður hlutur.“
Hann benti á, að ætlunin væri
að reisa þetta sem skólamann-
virki og vitanlega væri sam-
hengi milli skóla og sundlaugar.
Þar færi fram hluti af skóla-
starfi og sundkennsla væri ekki
kennd á stuttum námskeiðum.
Öðru var haldið fram á fundi
Svans og sundlaugarnefndar.
„Það kom greinilega fram
þarna, að nefndarmenn vildu
fara með sundlaugina upp í fjall,
en ég veit satt að segja ekki
hvaða rök mæla með því. Ég
satt að segja skil ekki hvað er
þarna á seyði,“ sagði Svanur.
„Það skal enginn segja mér, að
menn fari á skíði upp í fjall með
sundbuxurnar í rassvasanum.“
Auk þess að ágreiningur er
um hvort sundlaugin á að rísa
við skólann eða uppi í fjalli, þá
kemur inn í þetta sú ráðstöfun
Dalvíkinga að leyfa byggingu
minkabús í suðurjaðri bæjarins
að Böggvisstöðum. „Þetta
hindrar að bærinn vaxi. eins oe
var fallizt á hana samhljóða.
Þessi afgreiðsla bæjarráðs
riúna skýtur skökku við fyrri
afgreiðslu bæjarráðs, þar sem
gert var ráð fyrir, að eigandi
fjarlægði húsið af lóðinni fyrir
15. september n.k. Málið var
þannig sent til bæjarstjórnar,
sem samþykkti að senda málið
aftur til bæjarráðs.
Skýringin á breyttri afstöðu
bæjarráðs er m.a. fólgin í því, að
á fundinum á fimmtudag voru
þrír bæjarfulltrúar, sem ekki
áttu aðild að fyrri afgreiðslu
ráðsins.
Samkvæmt þessu er framtíð
verzlunarinnar við Hamarkots-
tún næsta ótrygg og verzlunar-
eigandinn bundinn bráðabirgða-
leyfum ár frá ári.
ráð er fyrirgert á aðalskipulagi.
„Bærinn á að vaxa í suður, hvað
sem þessir menn segja,“ sagði
Svanur.
Hann benti á, að í 500 metra
radíus í kringum minkabúið
(sem nú er refabú) væri eyða í
aðalskipulagi, heill kílómetri í
þvermál. „Og þegar ég er
fenginn til þess að líta á svona,
þá lít ég ekki bara á sundlaug-
ina sem einangrað fyrirbrigði.
Ég horfi á bæinn, hvert á hann
að vaxa og þetta með „van-
skapnaðinn“ kom til af því, að
ef Dalvíkingar ætla að fara að
stækka bæinn norður fyrir á,
sem er þarna, þá er það bara
framtíðarmöguleiki, og gæti
orðið þess valdandi, að skólinn
yrði aldrei kláraður.“
Skólinn er enn í byggingu og
með tilfærslu byggðar telur
Svanur ólíklegt, að hann verði
kláraður á þessum stað, heldur
farið út í nýja byggingu í smærra
stíl í nýja hverfinu.
„Það var þetta, sem ég held,
að hafi farið í taugarnar á
mönnum og það að ég minnist á
refabúið. Eg held, að það hafi
verið kominn tími til að ég
minntist á þetta, því það hefur
enginn þorað að minnast á þessi
ósköp að byggja svona bú ofan í
bænum.“
„Það kemur mér í sjálfu sér
ekkert við hvert þeir ætla að
fara með bæinn. Eina sem ég
geri er að mæla með einum
tilteknum stað, og afgangurinn
er þeirra mál.“
Svanur sagði að lokum, að
þrátt fyrir 500 metra radíusinn
utan um refabúið, væri það
hugsun Skipulags ríkisins, að
bærinn yxi inn í þennan hring,
en ekki í norður.
Ljósm. K.G.
Sundlaugardeilan á Dalvík:
„Vekur ekkl traustu
,Með sundskýlu
í rassvasanum6