Íslendingur


Íslendingur - 16.06.1983, Síða 4

Íslendingur - 16.06.1983, Síða 4
Fátt er svo með öllu illt------------------------- Þegar loks tókst að mynda ríkisstjórn tveggja stærstu þingflokka landsins, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var það eitt af fyrstu verkefnum hennar að setja bráðabirgðalög, sem gerðu það að verkum, að í stað 24% launahækkana 1. júní komu aðeins 8% hækkanir á laun til framkvæmda. Þetta er öllum kunnugt, svo og áframhaldiðog þær tilslakanir sem koma eiga til sem draga úr áfalli launarýrnunar gagnvart þeim lægst launuðu. Það fer ekki milli mála að erfiðara verður að láta enda ná saman, ekki bara hjá þeim sem hafa lægst launin, heldur einnig hjá miðlungslaunafólki. Oft hefur þó kreppt harðar að íslenskum en nú þau árahundruð sem þeir hafa byggt þetta land og ekki skal ætla að okkur sé þorrinn sá kraftur að geta ekki hert sultarólina um stundarsakir meðan verið er að koma efnhagslífi landsins á réttan kjöl. Gott er að ríkisstjórnin hefur þor til að taka á vandanum og þá er okkar, að koma til móts við aðgerðir hennar með raunsæi og vilja til að bæta hag landsins. -----------------að ekki boði nokkuð gott Nú þessa dagana eru ýmsar stofnanir bæjarins að yfirfara fjárhagsáætlanir sínar, með það i huga, að ekki verði farið með áður áætluð verkefni fram úr þeirri fjárhagsáætlun sem gerð var á fyrstu mán- uðum ársins, enda voru það eindregin fyrirmæli frá ráðamönnum bæjarins að við þá áætlun yrði staðið. Þegar reiknaðir eru út launaliðir samkvæmt nýju launahækkununum kemur í Ijós að meiri líkur eru á að fyrri fjárhagsáætlanir komi til með að standast. Það er afar mikilvægt fyrir stöðu bæjarfélags sem Akureyrar að geta gert sem réttastar fjárhagsáætlanir. Það tók langan tíma og endalausar fundasetur að koma saman fjárhags- áætlun í vetur og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir minnihluta bæjarstjórnar til að láta enda ná saman, án viðbótarlántöku, réði meiri hlutinn því að þrjár milljónir þarf til viðbótar tekjumeginn og ekki er enn séð fyrir endann á því hvort og hvernig það lán fæst. Hætt er við að þessar þrjár milljónir hefðu dugað skammt til viðbótar ef 24% launahækkunin hefði komið til 1. júní og sjálfsagt verður það nógu erfitt samt. Á síðast liðnu ári fór fjárhagsáætlun Akureyrar verulega úr skorðum. Kom þar margt til svo sem tveir kjarasamningar í stað eins, mikill þrýstingur á að Ijúka svo íþróttahöllinni og fyrsta áfanga Verk- menntaskólans að taka mætti húsin i notkun, mikil rýrnun tekjustofna bæjarins vegna verðbólguhrað- ans og fleira og fleira. Mikil f ramúrkeyrsla á einu ári hlýtur að koma niður á næsta ári og því stöndum við frammi fyrir nú. Stórfelldur niðurskurður á verkefnum svo sem langþráðri sundlaugarbygg- ingu við Oddeyrarskóla, dagvistunar við Þórunnar- stræti eru talandi dæmi um áður ákvörðuð og undirbúin verkefni sem verða að bíða um sinn vegna fjárhagsstöðu bæjarins og víða annars staðar er fjármagn skorið við nögl. En eitt er þó víst að náist ekki að hemja verð- bólguna og bæta efnahagslíf landsins, gengur enn hægar að framkvæma öll þau verkefni sem við viljum, til að gera bæinn okkar betri bæ og byggi- legri. M.K. , ,Æ tti frekar að snjóþyngsli en I Jóhannes Atlason, landsliðsþjálfari, var í heimsókn á Akureyri um helgina í þeim tilgangi að líta á efnilega leikmenn fyrir landsliðið. Jóhannes var þjálfari hér á Akureyri í ein fimm ár, fyrst með IBA og síðan KA. Islendingur hitti Jóhannes að máli og spurði hann fyrst hvort það hefði orðið knattspyrnunni í bænum til góðs að skipta DBA upp í tvö lið, lið KA og lið Þórs? „Það er starfað betur að knatt- ef menn komu óslasaðir úr leikjum spyrnumálum heldur en var fyrir milli þessara liða. Núna finnst skiptingu. Það er hæpið að 12 þúsund manna bær beri tvö lið enda hefur það komið fram, að liðin hoppa úr annarri deild í þá fyrstu og svo öfugt. Eg var sjálfur á móti skipting- unni og held, að flestir leikmenn IBA liðsins hafi verið henni mótfallnir á sínum tíma“. Nú ert þú hér í erindagjörðum landsliðsins. Hvað finnst þér um spilara hér á Akureyri? „Hér eru margir athyglisverðir og efnilegir leikmenn eins og til dæmis Erlingur Kristjánsson og Gunnar Gíslason úr KA og Helgi Bentsson, Halldór Áskelsson og Bjarni Sveinbjörnsson úr Þór, allt ungir menn, sem eiga framtíðina fyrir sér“. Nú er mikið talað um félagaríg hér á Akureyri. Hvað vilt þú segja um það? „Þessi 3 ár, sem ég var með KA liðið, árin 1977 til 1979, var ástandið milli félaganna næstum óþolandi. Hvor aðili vildi hinum hið versta. Á vorin er lítið um æfmgaleiki hjá þessum liðuin. Samstarfið þarf því að vera gott. Á þessum árum þóttist maður góður, mér, aftur á móti, andrúmsloftið vera eðlilegra. Rígurinn verður alltaf til staðar, og það er í sjálfu sér ekki nema eðlilegt. En hann þarf að vera heiðarlegur". Þú hefur síðustu þrjú árin verið þjálfari yngri flokkanna hjá Fram, og lið þín hafa orðið íslands- meistarar öll árin. Hvað veldur þvi, að landsliðsþjálfari tekur að sér þjálfun yngri flokka? „Það veitir mér mikla ánægju að 1977 - Leikmenn KA tollera Jóhannes, þegar liðið komst í 1. deild. MARGIR MJÖG EFNILEGIR LEIKMENN HJÁ A Norðangarri skrifar: Skynsamlegt gjal Nú er verið að framkvæma ákvörðun sem bæjarstjórn tók í vetur um að innheimta gjald af gæsluvöllum. Það er ekki óeðli- legt að yfirvöld bæjarins grípi til þess ráðs þegar harðnar á dalnum að krefja bæjarbúa gjalds fyrir þá þjónustu sem þeir njóta hjá bæj- arfélaginu og reyni þá að fara eftir þeirri reglu að þeir skuli greiða fyrir þjónustuna sem noti hana. Þetta virðist vera hugsun- in að baki þessari ákvörðun og er ekkert nema gott eitt um hana að segja. Það mætti raunar hafa það sem víðast svo að þeir sem noti tiltekna þjónustu greiði fyrir hana en ekki allir aðrir líka. En það er margs að gæta. Eitt sem er sérkennilegt við þessa ákvörðun er að hún skuli vera tekin af meirihluta í bæjarstjórn sem hefur verið kenndur við vinstri. Þeir hafa að minnsta kosti sumir talið það til höfuðdyggðar á stundum að vera vinstra megin í pólitík og er þó engum Ijóst hvers vegna svo ætti að vera. En nú bregður svo við að þessi meiri- hluti sem segist bera hag þeirra sem minna mega sín fyrir brjósti leggur á gjald sem hlýtur að koma illa við þá sem eiga mörg börn og eiga í erfiðleikum. Og ekki hefur frést af neinu sem á að koma á móti þessu gjaldi til að létta byrðina. Annað sem menn mættu hyggja að þegar þeir hugleiða þetta gjald er að Kvennafram- boðið stendur að því að því er virðist möglunarlaust. Nú var það eitt af sérstökum baráttumál- um þeirra að taka ætti meira tillit til sjónarmiða barna og kvenna. Þetta gjald getur ekki talist neitt sérstakt merki um umhyggju fyrir konum og börnum. Það þýðir ekki að bera fyrir sig neitt yfir- skin eins og það að þetta auðveldi að átta sig á því hverjir noti leik- vellina og hve mikið. Þarna er ósköp einfaldlega verið að leggja gjald á þá sem nota leikvelli til að hafa eitthvað upp í kostnað. Þetta heitir í kosningabaráttu peningasjónarmið, níðingsskap- ur við fátækt fólk, leiftursókn gegn bæjarbúum eða eitthvað álíka. En þegar til kastanna kemur þá þurfa allir sem hafa stjórn bæjarfélagsins á hendi að taka ákvarðanir í ljósi þess hvort og hvernig á að greiða þjónust- una sem boðið er upp á. Þar liggur aðalatriðið. Þetta vill mörgum gieymast. En ætli þetta gjald þjóni þeim tilgangi sem því er ætlaður? 4 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.