Árbók 1931 - 1932 - 01.01.1931, Side 88
86
17. gr.
Stjórnin getur, þegar ])urfa þykir eða ]>egar eigi
fœrri cn Vi félagsmanna krel'st þess skriflega, hoð-
að lil aukaaðalfundar, og hefir slíkur fundur úr-
skurðarvald, sem venjulegur aðalfundur.
18. gr.
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og stíluð til
stjórnarinnar. Ógild nema hlutaðeigandi sé skuld-
laus við félagið.
19. gr.
Hafi einhver meðlimur ekki greitt gjöld sín til
félagsins í 2 ár, skal skera úr því á aðalfundi, með
fundarsamþykkt, að viðhafðri venjulegri atkvæða-
greiðslu, hvort hlutaðeigandi skuli talinn meðlim-
ur áfram eða eigi, og ræður meirihluti atkvæða
úrslitum.
Ennfremur liefir félagið leyfi til að víkja þeim
meðlimum úr félaginu, er vinna gagnstætt tilgangi
þess, eða á einhvern liátt gera félaginu skaða með
framkomu sinni, en til þess þarf samþykki meiri-
hluta fundarmanna, enda sé brottreksturinn sam-
þykktur á tveimur fundum í röð.
20. gr.
Verði félagi þessu slitið, skal aðalfundur sá, er
þá ályktun gerir, ráðstafa eignum þcss, þó má ekki
skipta þeim á meðal félagsmanna.