Nýi tíminn - 01.04.1934, Blaðsíða 6

Nýi tíminn - 01.04.1934, Blaðsíða 6
6 NÝI TÍMINN lagningu* afurðasölunnar, því að hagsmunir stórbændanna, kaupfélaganna og bankaauð- valdsins krefjast þess. En hitt verða þeir að skilja, að þessi »skipulagning« er ekkert ann- að en að flýta framkvæmd þess dauðadóms, sem kveðinn er upp yfir smábúskap í auðvalds- skipulagi. Og í krafti þess skiln- ings verða þeir að, rísa gegn henni, liindra að henni verði komið á og brjóta hana niður að því leyti, sem hún er þeg- ar gildandi. í næsta blaði kemur bændabréf úr Vopna- firði og lítilsháttar fræðsla um starfsemi kaupfélagsins þar. Barátta bænda erlendis. í Búlgaríu ríkir einhver sú djöfullegasta ógnarstjórn, sem sögur fara af. Kom- múnistar, róttækir verka- menn og bændur liafa verið myrtir í þúsundatali og tugir þúsunda eru pyndaðir í dýfl- issum fasistanna — en ekkert dugar. K.F. Búlgaríu er sterk- ari en nokkru sinni áður. A síðastl. tveimur og hálfu ári hefir hann fjórfaldast, yfir- gnæfandi meiri hluti verkalýðs- ins fylgir honum og verkfalls- aldan rís hærra og hærra. Öll verkföll (að tveim undanskild- um á 2 síðustu árum) eru undir forustu Kommúnista, og þess vegna lauk líka 70 % þeirra með sigri árið 1932 og 84 % árið 1933! Fasistastjórnin stendur mátt- vana gegn þessari voldugu hreyfingu. Verkalýður Búlgaríu helir sýnt stéttarbræðrum sín- um um allan heim, að jafnvel hinn grimmilegasti fasismi get- ur ekki bugað verkalýðinn undir forustu Kommúnista, heldur í mesta lagi veitt auðvaldinu ör- stuttan gálgafrest. Jafnframt vex byltingaraldan í sveitunum. Almenn bænda- uppreist stendur fyrir dyrum. Bændur taka virkan þátt í bar- áttu verkalýðsins, jafnframt því, sem þeir standa í harðvítugri baráttu við jarðeigendur, banka og stórhændur. Borgaralegt húlgarskt blað lýsir ástandinu þannig: »Það eru til þorp (í Búlgaríu), þar sem enginn skuld- hafi, enginn lögfræðingur og enginn lögtaksmaður þorir að stíga fæti af ótta við að verða drepinn, eða að minnsta kosti lúbarinn!« I Japan vex byltingaraldan einnig afar ört. Þrátt fyrir all- ar ofbeldisráðstafanir stjórnar- innar, þrátt fyrir það, að fang- elsaðir voru t. d. 8000 bylting- arsinnaðir verkamenn og bænd- ur aðeins á fyrstu 9 mánuðum ársins 1933 og 50 Kommúnist- ar myrtir í fangelsunum á sama tíma, og þrátt fyrir það, þótt sífellt fleiri séu fangelsaðir og myrtir, þá hefir K.F. Japans vaxið örar en nokkru sinni fyr, áhrif lians margfaldast og sam- band hans við verkalýð og bænd- ur er orðið svo traust, að ekk- ert ofbeldi fær hindrað starf hans né óhjákvæmilegan sigur byltingarinnar. Öll baráttu- og samhjálpar- samtök alþýðunnar eru bönn- uð, en starfa samt betur en nokkru sinni áður — í banni laganna, og baráttan magnast stöðugt, ekki sízt hin erfiða bar- átta gegn stríðinu í Kína og Mansjúríu og gegn undirbún- ingi stríðsins. á hendur Ráð- stjórnarríkjunum, rússnesku og kínversku. Fjöldi uppreista hefir orðið í hernum og stór- kostleg verkföll geysa í her- gagnaiðnaðinuin. Jafnframt eykst koinmúnismanum stór- kostlega fylgi meðal miðstétt- anna, ekki sízt meðal kennara, námsmanna og háskólastúdenta og hefir orðið að loka fjölda skóla og margir kennarar og stúdentar teknir fastir. Byltingaraldan vex sérstak- lega ört í sveitunum. Bændur svelta bókstaflega. Kornið er tekið af þeim með valdi upp í skuldir, landleigu, skatta o. s. frv., og síðan verða þeir oft að kaupa korn til eigin þarfa aft- ur fyrir fjórfalt verð! Aðal- baráttukrafa bænda og einnig atvinnulausra verkamanna er krafan um ókeypis úthlutun hrísgrjóna. Á þessum grundvelli hafa bændur og verkamenn myndað með sér öfluga sam- fylkingu, I héruðunum Aitshi og Totshigi tóku 60 þorp þátt í baráttu þessari. 1 liéraðinu Monogaya lieimtuðu fátækir hændur, að stórjörðunum yrði skift milli þeirra, endurgjalds- laust. 400 'bændur réðust á lög- reglustöð og varð úr því blóð- ugur bardagi. M. a. má nefna, að 150 sveitakonur réðust á 3 lögregluvarðstofur. Sýnir það vel hinn mikla vöxt og út- breiðslu hyltingarhreyfingar- innar. Nýi tíminn vekur athygli lesenda sinna á auglýsingum þeim, sem birt- ast nú í blaðinu. Það eru fyrstu augiýsingarnar, sem Nýi tíininn flytur. Allir unnendur blaðsins verða að gera sér far um að skifta við þá, er auglýsa í blað- inu, nð öðru jöfnu, og láta þess um leið getið, að það sé sök- um auglýsingarinnar. Auglýs- ingar eru höiiiðtekjulind borg- aralegu blaðanna. En í mál- gögnum hinna byltingarsinnuðu alþýðumanna er því aðeins aug- lýst, að auglýsendur finni, að árangur auglýsinganna séu auk- in viðskifti.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.