Nýi tíminn - 01.02.1936, Síða 3

Nýi tíminn - 01.02.1936, Síða 3
N Y I TIM.INN 3 Upphaf og fyrslu siarfsár Kaupfélags Dingeyinga Um miðja síðastliðna öld var mikil hreyfing uppi meðal bænda í Þingeyjarsýslu, um að mynda verzlunarsamtök sín á milli. Þau samtök gengu þó ekki út á annað, en að knýja niður verðið á útlendu vörunni og hækka verðið á íslenzku vörunni hjá dönsku selstöðuverzlununum, sem þá höfðu alræðisvald í verzlun- armálum hér á landi. Félög þessi voru þó alltaf smá og starfsemi þeirra bundin við örlítil svæði, enda störfuðu þau mjög slitrótt. Fyrstu afskifti Jakobs af verzl- unarmálum voru einmitt þau, að standa fyrir slíkum verzlunar- samtökum sveitunga sinna. Þessi vísir að verzlunarsamtök- um hverfur þó alveg þegar Gránufélagið var stofnað 1867, sem almenningur í Þingeyjar- sýslu gerði sér góðar vonir um að hann gæti notið góðs af. 1 fyrstu tókst Gránufélaginu að lækka töluvert verðið á nauð- synjavörum almennings, en þetta breyttist brátt og eftir skamman tíma komst félagið inn á þá braut að hugsa mest um að hagnast sjálft á viðskiftunum, enda lenti það von bráðar al- gerlega í hendur danskra kaup- manna. Þegar allar vonir bænda um Gránufélagið höfðu reynzt tál, fóru hinir framsæknari þeirra að hyggja að öðrum leiðum í verzl- unarmálum og þá er það að Ja- kob Hálfdánarson kemur fram með hugmynd sína um Kaupfé- lag Þingeyinga. Á sýslunefndar- fundi í S.-Þingeyjarsýslu 1881 var Jakobi Hálfdánarsyni falið að gangast fyrir því, að fá enska fjárkaupmenn til þess að koma upp og kaupa fé á fæti af bænd- um í Þingeyjarsýslu. Þetta gerði Jakob og notaði jafnframt tæki- færið til þess að panta vörur, til þess að flytja í fjártökuskipinu upp, einkum fyrir sveitunga sína. Þessi sauðasala tókst ágætlega og voru bændur hinir ánægðustu með hana, einkum fyrir þá sök, að þarna fengu þeir peninga út í hönd, sem fátítt var á þeim dögum. Þegar hér var komið var Ja- kob Hálfdánarson orðinn stað- ráðinn í því að stofna til félags- skapar meðal bænda um verzl- unarþaríir þeirra og boðaði hann í þeim tilgangi til almenns fund- ar að Grenjaðarstað 21. sept. 1881, þar sem ákveðið var að stofna félagið. Sá fundur er því í raun og veru stofnfundur Kaupfélags Þingeyinga. Þetta voru engir loftkastalar hjá Ja- kobi Hálfdánarsyni. í starfi sínu undanfarin ár hafði hann aflað sér mikillar reynzlu og þekking- ar á verzlunarmálum, og sá hann því í hendi sér, að með því að taka verzlunina í sínar eigin hendur, gætu bændur forðað sér undan oki dönsku kaupmann- anna. Jakob lagði, allt frá upphafi, áherzlu á það að þessi verzlunar- samtök, Kaupfélag Þingeyinga, gætu orðið fátækum bændum að gagni. Hann bar því fram þá til- lögu á stofnfundinum (1881), að félagshlutur hvers meðlims skyldi vera 1 gemlingsverð, eða kr. 10.00, sem hver búandi maður gat greitt. Lofuðu 32 menn hlutum þá þegar. Á þessum fundi söfn- uðust 49 hlutir og lagði Jakob sjálfur fx*am 10 hluti, og er það dálítið eftirtektarvert til þess að sýna áhuga Jakobs í málinu, því að séra Benedikt í Múla, stórrík- ur maður, vildi ekki leggja fram nema þrjá hluti. Einnig var og ákveðið að boðaðir skyldu fund- ir í öllum sveitum sýslunnar, og skyldu þeir vera undirbúningur undir allsherjar fullti'úafund í félaginu er halda skyldi um vet- urinn, var Jakobi falið að útbúa uppkast að lögum, sjá um boðun haixs og annan uixdirbúning. Rit- ari á þessum fundi var Benedikt Jónsson á Auðum og var hann upp frá því einn af beztu mönn- um kaupfélagsins. Þenna vetur, 20. febr. 1882, var haldinn fullti’úafundur Kaupfélags Þingeyinga að Þverá í Laxárdal. Á þessum fundi var samþykkt lagauppkast Jakobs Hálfdánai’sonar með litlum breytingum, sem lög fyrir félag- ið. 1 fyrstu stjórn félagsins voru kosnir þessir menn: Jón Sigurðs- son á Gautlöndum alþm. formað- ui', Benedikt Jónssoix á Auðnum og Benedikt Kristjánsson prestur í Múla. Ekki kom annað í tal, en Jakob yrði kaupstjói'i félagsins og var hann það allt fram til 1906, eða um 25 ár. í lok fund- arins voi’u Jakobi afhendar 3— 4000 krónur, senx voru félags- hlutir úr hinum ýmsum deildum og átti hann fyrir þessa peninga að hefja vöruinnkaup. Var nú í fullum krafti safnað vöi’upöntunum bænda og þær sendar til útlanda. Ennfremur samdi Jakob á ný við ensku fjár- kaupmennina um að koma upp til fjái'kaupa. Sumarið 1882 var sem kunnugt er eitt hið mesta ísaár, sem sögur fara af. Snemma á sumri lagðist ís að austanverðu Norðux'landi og suður með Aust- urlandi, sem tók fyrir allar sigl- ingar. Jakob Hálfdánarson beið mestan pai't annatímans, því að hann var þá eixn bóndi á Gríms- stöðum við Mývatn, úti á Húsa- vík, óþreyjufullur eftir því að skip kæmi með vörur til félags- ins, því að allt af er ísinn lón- aði eitthvað fx’á voru líkur til að skipin kæmust inn. Svona leið allt sumai'ið fram að göngum, þá kom fyrsta skipið inn á Húsavík- urhöfn, og nokki'um dögum síðar kom annað skip og með því ensku fjái'kaupmennirnir og varð Jakob þá að bregða við og fai'a á fjármai’kaði með þeim upp um sveitir, en setja nxann fyrir sig til þess að annast uppskipun á vör- unum. Þegar f jármörkuðunum var lokið skyldi Jakob við fjár- kaupmennina að Ulfsbæ og hélt þegar til Húsavíkur, en þeir ráku féð til útskipunar til Akui'eyrar. Aðkoma Jakobs á Húsavík var allt annað en glæsileg. Vöi’u- geynxslan var gaixxalt tóftarbrot, sem hafði vei’ið ískjallai'i eixskra laxkaupnxaixna. Hafði Jakob reft yfir nxeð spreki og strengt tjarg- aðann dúk á, og er fljótséð að það var allt aixnað en glæsileg geynxsla fyrir kornvöru, sykur og aðrar matvörur, eixda stór- skemnxdust vörur þar, eiixkunx þó sykur. Auk þess var kofi á lóð- inni, sem Jakob keypti af Sigur- jóni á Laxamýri, og hafði dittað að um sumarið og smíðað í búð- arborð og eitthvað af hyllum. í þessum fátæklega vei'zlunarstað hóf Kaupfélag Þingeyinga starf- semi síixa,. sem um leið var harð- vítug barátta þingeyskra bænda gegn selstöðuverzlununum. Ei’f- iðleikum Jakobs við afgx'eiðsluna þetta haust lýsir hann á þessa leið x kaupfélagssögu siixni: „Annir maixna voru svo ókljúf- andi, þar sem aðflutningar sveita- manna voru nú um göngur all- ir til baka. Það leit því í allra vei'sta lagi út fyrir mér með að fá aðstoð við afhendingu á vör- Hvsrt stefnir? Eftir Erling Ellingsen 1. Verzlunin við útlönd og þjóðarhagurinn. Samkvæmt útvarpsræðu Ey- steins Jónssonar fjármálai'áð- herra, 20. jan. sl., og Hagtíðind- um mun vei'zlunarjöfnuðurinn ár- ið 1935 hafa verið sem hér segir: Útflutningurinn 47 milj. kr., eða tæpi'i 1 milj. kr. minni en árið áður. Innflutningurinn 45 milj. kr. (innfl. vegna Sogsins ekki talinn með), eða um 7 milj. kr. minni en árið 1934. Verzlun- arjöfnuðurinn hefir því orðið hagstæður um 2 milj. kr., en var óhagstæður um 4 milj. kr. árið áður. Þetta virðist því nokkuð góður árangur af innflutniixgs- höftunum, en ráðherrann hefir bara „gleymt" einu atriði, og þessu sama atriði „gleyma“ bæði stjórnar- og íhaldsblöðin dag- lega: á sama tíma sem 7 milj. kr. hafa sparast í innflutningi, hafa vörubirgðimar í landinu minnkað um 12—14 milj. kr., skv. ,,privat“ upplýsingum skipu- lagsnefndar atvinnumála. Nú um áramótin eru þessar vörubirgðir nær horfnai', nú fyrst byrjar bar- átta innflutningsnefndarinnar — hingað til hefir aðeins verið um skollaleik að ræða, nú fyrst reyn- ir á hvort þjóðin getur þolað inn- flutningstakmai'kanir eða ekki. Þó nokkuð hefir áunnist í því að færa innflutninginn yfir á markaðslöndin og tryggja þamxig betur útflutninginn, en mikið vantar þó á, enn er þriðjungur útflutningsins ótryggður, sam tímis því sem ástandið í heimin- um er orðið þannig, að „undir áx'amót nxátti heita að Island gæti hvei-gi vei-zlað nema í vöru- skiftum“, eins og Jónas Jónsson viðurkennir í Tímanum 6. jan. sl. Samtímis því, sem við íslend- ingar seljum til Portúgals fyrir 8 milj. kr„ en kaupum þaðan ekki íxenxa fyi'ir í'úma 1/2 milj. eða Vm hluta af því sem við seljum þangað (þótt langtum meira mætti þar kaupa af ómiss- andi nauðsynjavöru), og teflum þannig á tæpasta vaðið með bezta mai'kað okkai’, kaupum við í Bi'etlaixdi, Danmörku, Þýzka- landi og Noregi fyrir 14 milj. kr. meira en við seljum þangað. Ofan á þetta bætist, að svo- kallaðar „ósýnilegar greiðslur“ til útlaixda, svo sem vextir og af- boi'ganir skulda, nema að minnsta kosti 6—6V2 milj. kr. Útflutningurinn þarf því að vera hærri en innflutningui'inn sem þessu nemur að minnsta kosti, þá þai*f innflutningurinn að lækka niður í 40 milj., ef útfl. eykst ekki, til þess að ekki verði halli á greiðslujöfnuðinum við útlönd. En þá þarf neyzla lands- manna að minnka um 17—19 milj., þar sem ekki ei'u lengur innlendar vörubirgðir til að taka af. — Er hér ekki rúm að þessu sinni til að fara nánar út í þetta. Skal aðeins bent á, að Eysteinn dróg í ræðu sinni enga dul á það, að í’eynt mun verða að framkvæma þennan niðui'skurð þegar á þessu ári og að hann muni hafa óskap- legar fórnir í för með sér fyi'ir þjóðina — þ. e. a. s. alþýðuna, því burgeisai’nir koma sér að sjálfsögu undan fórnunum eins og fyxri daginn — og óvíst hvort hún muni þola þær. Braut Ey- steinn þar í bága við það heil- ræði Jóns Árnasonar, að ekki megi gera bændum „Óþarfa erf- iði og hugai'angur með því að sí- fellt sé klifað á erfiðleikum og

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.