Nýi tíminn - 01.02.1936, Blaðsíða 8

Nýi tíminn - 01.02.1936, Blaðsíða 8
8 N Y I T I M I N N andi stundar á hverjum stað og reynast skilvísir á árgialdi sínu til blaðsins. En alveg sérslök skylda hvílir á félögum okkar í hinum nýju- sveiíadeildum í pessu efni, Þaö er Ivímælalausf ein peirra meg- in skylda, að gera silf fil pess að Nýi líminn geti orðið virki- legt barállumálgagn íslenzkrar sveilaalpýðu. Skorar N- 1. a pá að framkvæma aætlun pá, sem peim var gerð 1 bréfum fyrir áramólin. Með fullu trausti til framtíðar- innar hefir*blaðið nú göngu sína. Frá síðasta Alþingi Síðasta Alþingi mun vera lengsta og langdýrasta þing, sem háð hefir verið hér á landi. Slíkt væri þó eigi svo mjög ámælisvert, ef að störf þess hefðu sýnt, að ‘leitast hefði verið við, að ráða fram úr þeim vandamál- um alþýðunnar, sem brýnust þörf var að leysa, en því fór mjög fjarri. Sú stefna, sem hefir ríkt á Alþingi undir forustu íhaldsins, ríkti þar enn undir stjórn Framsóknar og jafnaðar- manna. Þau lög, sem stjórnarfiokkarn- ir hafa haldið einna mest á lofti, eru lögin um alþýðutryggingar. Ná þau yfir sjúkra- slysa- elli- örorku- og atvinnuleysistrygg- ingar. Enda þótt þessi lög snerti meira verkalýð í kaupstöðum heldur en fólk til sveita, þá verð- ur samt að taka þau til athug- unar, ekki sízt þar sem þau eiga að afsaka að mjög miklu leyti þá gífurlegu tollaaukningu, sem samþykkt var á þinginu. Sér- staklega verða ellitryggingarnar gerðar að umtalsefni hér. í 49. gr. tryggingarlaganna segir svo: „Sérhver tryggingarskyldur maður, karl og kona“ (trygging- arskyldir eru allir frá 16 áraaldri) „skal árlega greiða í Lífeyrissjóð íslands sem nemur: 1. 7 krónum fyrir þá, sem heimilisfastir eru í kaupstöðum, 6 krónum fyrir þá, sem heimilis- fastir eru í kauptúnum þeim er hafa yfir 300 íbúum og 5 krónum fyrir þá, er annarsstað- ar eru heimilisfastir. 2. Einn af hundraði af skatt- skyldum árstekjum". Eins og sjá má á þessu, þá er það ekki svo lítill skattur, sem lagður er á alla alþýðu með þessum iðgjöldum. Það verða áreiðanlega mörg sveitaheimili, sem þurfa að borga 40—50 krón- ur árlega í Lífeyrissjóð íslands, og er slíkt óneitanlega tilfinnan- leg útgjöld, auk alls annars. Það mætti þvi búast við að þeir, sem trygginganna eiga að njóta, mættu una vel sínu hlutskipti, en það er langt frá því. Þeir, sem nú eru 67 ára og eldri, fá ekki neitt úr þessum sjóði, en þeir, sem nú eru 16 ára geta átt von á því að fá 300 krónur árlega eftir 50 ár. Þeir, sem nú eru 50 ára og greiða iðgjöld i 17 ár, fá 30 krónur á ári eftir það. Þetta er nú öll rausnin. það er vitanlega krafa alþýð- unnar, að tryggingarmálunum sé komið í viðunandi horf, en það verður að gerast án þess að hún sé skattlögð svo sem hér hefir átt sér stað, heldur verður að krefjast þess, að farin sé sú leið, sem K. F. í. hefir bent á. Ennfremur má nefna lög um „Erfðaábúð og óðalsrétt“. Með þeim lögnm er fyrst og fremst stefnt að því, að mynda stór- bændastétt, nokkurskonar sveita- aðal, með svipuðu sniði og nú er í Þýzkalandi. Þá er benzín- skatturinn. Árið 1927 flutri Ól. Thorsjdrumvarp um benzinskatt, og skyldi honum varið til vega- gerða. Nú hefir stjórnin tekið upp þetta ráð Ól. Thors og lagt há- an skatt á benzínið. Enn má nefna lög um skylduvinnu ung- linga gegn skólaréttindum. Lögin eru þó einungis heimild fyrir sýslu- og bæjarfélög til þess að starfrækja slíka skóla, og þarf samþykki as allra kosningabærra manna í sýslunni, til þess að stofna hann. í lögunum er gert ráð fyrir, að hver 18 ára karl- maður skuli vinna 7 vikur að vorlagi störf í þarfir sýslu- eða bæjarfélags, gegn ókeypis húsa- vist og kennslu einn vetur í skóla. Með öðrum orðum ætlast til að unnið sé í 7 vikur fyrir því, sem nú er tekið með sköla- gjöldum. Má því segja, að lengi geti vont versnað. Þau skólagjöld sem nemend- ur alþýðuskólanna verða að greiða nú, munu vera 100 krónur yfir veturinn, og er slikt vitanlega allt of hátt, miðað við þau kjör, sem fátæk sveitaæska á við að búa. En hvað mundi þessi breyt- ing þýða ? Hún þýðir það, að fyrir þvi sem hVer 18 ára maður getur unnið á 3 vikum nú, þarf hann að vinna 7 vikur ef að þetta frumvarp kemst í framkvæmd, hún þýðir það, að mest öll sú vinna sem að mörg sýslufélög láta framkvæma, verður unnin í þegnskylduvinnu, og með því eru fátækir bændur og aðrir sveitaverkamenn sviftir þeirri at- vinnu. Þarna er verið að gera nýja tilraun með að velta byrð- um sýslufélaga og ríkis, yfir á herðar verkamanna og fátækra bænda, undir því yfirskini, að verið sé að hjálpa hinni fátæku en menntunarfúsu sveitaæsku. Gegn þessu verður alþýða til sveita að rísa, og hindra að slík- ar aðgerðir komist íframkvæmd, en heimta aftur á móti miklu meiri framkvæmdir, t. d. vega- gerðir o. s. írv. Að endingu skal stuttlega drepið á fjárlögin, sem eru þau hæstu, sem hafa verið samþykkt. Nýi iíminn gerir fyrsf og fremst þá kröfu iil iðnaðarins í land- inu, að hann slandi í öllu framar gamla tímanum. FlX-pvottaduft °g ^ MÁNA-stangasápa er framleitt eftir hinum ströngu kröfum nýj a tímans og fullnægja því jafnvel hinum ströngustu kröfum nútímakonunnar. Er það skýrt á þann veg, að nú eigi að fara eftir þeim, og einn- ig að nú sé varið svo miklu fé til hagsbóta fyrir hinár vinnandi stéttir. Það mun að vísu vera veitt meira fé til verklegraframkvæmda heldur en árið 1934, en þó eigi nærri því svo, sem þurft hefði. Aftur á móti hefir eigi verið skorið neitt við neglur fjárveiting til þings og stjórnar o. f 1., hefir fjárveiting til þessa hækkað um rúml. */» milj. lcróna. Slik eyðsla mun áreiðanlega ekki vera í samræmi við vilja hínna fátæku bænda og verkamanua, og ber því að víta hana harðlega. Hið vinnandi fólk, sem berst nú hinni hörðu baráttu fyrir líf- inu við fjárhagsörðugleika og minnkandi atvinnu, htýtur að gera kröfur til þess, að fulltrúar sem það hefir kosið til Atþingis, breyti um pólitik, fylgi fram þeim kröfum, sem þeir hafa lof- að að berjast fyrir. Daufheyrist þeir, sem nú telja sig fulltrúa hinna vinnandi stétta, við þessum kröfum, verður al- þýðan að finna aðrar leiðir, og leiðin sem hún mun finna og fara, er leið samfylkingarinnar. Undir það merki skipa sér æ fleiri og fleiri alþýðumenn og konur um allan heim. íslenzka alþýðan mun einnig skipa sér t þá sveit og berjast þar til sigurs. Frá Spáni Bandalag allra alþýðuflokkanna vann stórkostlegan signr í kosn- ingum þeim, er fram fóru nú fyrir skömmu. Stjórn hægriflokkanna varð að hröklast frá völdum, en við heflr tekið stjórn undir for- ustu flokks á borð við isl. Fram- sóknarflokkinn. Það mál, sem nú bíður órlausnar á Spáni, er að taka landið af stórjarðeigendum og gefa það bændum til afnota. Stjórnin verður að framkvæma þetta þegar í stað, eða að víkja fyrir byltingastjórn verkamanna og bænda eins og gerðist í Rúss- landi 1919. Ritstjöri: Ingólfur Gunnlaugsson Víkingsprent

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.