Nýi tíminn - 01.02.1936, Page 5

Nýi tíminn - 01.02.1936, Page 5
N Y I T í M I N N 5 bauðst til þess að kosta húsbygg- inguna að hálfu leyti. Byggingin gekk mjög treglega. Veturinn 1881—2 var viður í það pantað- ur að utan, en skipið komst aldrei til Húsavíkur vegna ísa, og seldi því farminn á Seyðis- firði. Þetta sumar fannst skip á íeki í ísnum út af Tjörnesi hlað- ið timbri. Því var bjargað í land og selt á uppboði. Þar keypti Ja- kob allmikið af trjávið, en tókst ekki að flytja þann við til Húsa- víkur fyrr en sumarið eftir. Vorið 1883 var byrjað á bygg- ingu fyrsta húss K. Þ. að Jaðri á Húsavík, og var það reist 20. júlí 1883, húsið var þó ekki til þegar vörurnar komu um haust- ið, var rétt með naumindum að tækist að gera það fokhelt fyrir vetur. Einkum var þessi dráttur því að kenna að margir af smið- unum urðu að fara til heyskapar- vinnu. Húsinu var ekki fulllokið fyrr en árið eftir. Sumarið 1886 byggði Jakob pakkhús fyrir félagið. Timbrið hafði hann tekið af norsku skipi árinu áður, en ekki getað borg- að vegna áfallanna, sem' hann varð fyrir það sumar. Ekki vildi stjórnarnefnd K. Þ. kaupa þetta pakkhús þegar J. H. fór þess á leit við hana, þó hún skömmu seinna yrði að viðurkenna að fé- laginu væri lífsnauðsyn á þessu húsi, og sýnir það greinilega skammsýni ýmsra forvígismanna K. Þ.: Alltaf frekar letjandi í byggingarmálum, t. d. hélt Jón alþm. Sigurðsson á Gautlöndum form. K. Þ. því fram að húsið á Jaðri væri alltof stórt, en sem reyndist fljótt að vera hinn mesti misskilningur. Hér er lokið að segja frá stofn- un K. Þ. og fyrstu starfsárum. Á öðrum stað í blaðinu verður þróun kaupfélaganna ~til þessa dags rakin að nokkru og sýnt fram á í hverja andstöðu þau eru komin við stefnu brautryðj- endanna. öllu í fullkomið strand, heldur en að viðurkenna í tæka tíð ax- arsköft sín. Jafnvel eftirfarandi orð hafa þeir látið sem * vind um eyru þjóta: „Að því er landbúnaðinn snertir, er leítast við að bæta fjárhagsástæður hans með verðhælckun og sölureglum innanlands.....Þesskonar verðhækk- un, sem komið er á með utanaðkom- andi valdi, gerir neyzluvörurnar dýrari Og dregur úr verzluninni .... jafn- framt því sern þeim mönnum fsekkar, er viS þessa framleitSslu gætu fengist. .... Lækkað verð á kindakjöti, mjólk, smjöri, eggjum o. s. frv. mundi vafa- laust auka neyzlu þessara vörutegunda verulega, og þyrfti ekki að gera bænd- um erfiðara fyrir. Eins og stendur, virðist verðið á þessum vörum mjög hátt. Mjólkin kostar næstum því helm- ingi meira í Reykjavík en í Stokkhólmi .... Sem dæmi þess, hversu neyzla get- ur vaxið við verðlækkun, má minna á reynsluha í Svíþjóð. Á árunum 1929 til 1934 hefir smjörverðið lækkað um 20%, en salan innanlands óx um 70%. .... En með því að neyzlan jókst gvona mikið meira en verkfallið, gátu Jakob Hálfdanarson og þróun kaupfélaganna Aðaltilgangur kaupfélaganna var að áliti Jakobs sá, að lækka verðið á útlendu vörunni, en hækka íslenzku vöruna. Hann áleit að kaupfélagið ætti ekki að leggja meira á vöruna en nauð- synlegt væri til þess að standast köstnað af rekstri kaupfélagsins. Hann var andvígur þeirri stefnu í kaupfélagsmálum, að selja vör- urnar með vanalegu kaupmanns- verði, en greiða síðan ágóðahlut, því að hann taldi, að það kæmi fátæku fólki að mestu gagni, að fá vöruna strax eins ódýra og mögulegt væri, enda myndi með því móti vera hægt að ná flestum inn í félagið á skömmum tíma. En til þess að verðið væri &em lægst varð að halda sem fastast við pöntunarfyrirkomulagið, enda áleit hann brýna nauðsyn bera til þess. Jakob áleit það afarnauðsyn- legt, að forðast það í lengstu lög, að verða í gegnum skuldir háður umboðsmönnunum úti. Hann sá að þegar svo væri komið, að fé- lagið væri komið í hendur þeirra hefðu þeir möguleika til þess, að skammta félaginu mikið verri kjör heldur en hægt væri að fá annars staðar. Jakob áleit það því eina helztu skyldu kaupfé- lagsstjórnarinnar og kaupstjór- ans, að vaka yfir þessu og eink- um að sjá um, að ekki væri teflt í tvísýnu með söluna á íslenzku afurðunum nema það væri alveg óhjákvæmilegt. Þessar skoðanir J. H. mótuðust í öllum starfsháttum kaupfélag- anna fyrsta aldarf jórðunginn. Að verzla skuldlaust varð kjarni starfsháttanna. Og þessi kjarni var borinn uppi af hinni minni- bændur aukið brúttótekjur sínar um 40%“. (Letui'br. N. t.). Þetta er ekki tekið úr „N. t.“, heldur er þessi þungi áfellisdóm- ur tekinn orðrétt upp úr erindi, sem hr. Lundberg, hinn sænski hagfræðisráðunautur íslenzku stjórnarinnar, hélt hinn 29. nóv. sl. að viðstöddum ráðherrum, bankastjórum og öðrum helztu mönnum þjóðarinnar, og sem Al- þbl. birti 28.—30. des. sl. 3. Fjárhagur bænda. Samkvæmt upplýsingum í er- indi Bjarna Ásgeirssonar um fjárhag bænda (Tíminn 22. jan- úar), er ástandið sem hér segir: Skuldir bænda hafa lækkað um 7.3 milj. kr., vegna Kreppu- lánasjóðs, þó þannig að í þessari tölu eru meðtaldar rúmar 2 milj. í ábyrgðum, sem falla á bændur. Eftir verða þá 5 milj. kr., sem bændur raunverulega hafa losn- að við, eða 15% af skuldunum, miðað við það, sem þær voru árið legu reynzlu Gránufélagsins og Húnaflóafélagsins. Einmitt fyrir þá sök að horfið var frá þessari meginreglu liðu félögin undir lok. Um svipað leyti og J. H. lét af forstöðu K. Þ. urðu nokkur þátta- skifti, sem rekja má til Kaupfé- lags Eyfirðinga, undir forystu Hallgríms Kristinssonar. Það yf- irgaf þá að mestu pöntunarfyrir- komulagið, en rak viðskiftin að mestu með söludeild, er seldi við venjulegu kaupmannaverði. — Þetta fyrirkomulag var síðan tekið upp af flestöllum kaupfé- lögum í landinu. Þetta breytta fyrirkomulag hafði hin víðtæk- ustu áhrif á allan rekstur og allt viðhorf kaupfélaganna. Sölubúð- in krafðist mikils rekstursfjár sökum hinna miklu vörubirgða, sem þar urðu ávalt að vera fyrir hendi. Hið háa söluverð gerði fátækum bændum erfiðara um öll skil. Verzlunarkostnaðurinn var raunverulega meiri en áður. Enda komu áhrifin brátt í ljós. Kaupfélögin urðu skuldug bönk- unum og umboðsmönnum sínum ytra og það varð sífelt tíðara að bændurnir skulduðu kaupfélög- unum við áramótin. Viðskiftin jukust að vísu mikið og hin næstu ár virtust vera mikill blómatími í sögu félaganna. En fyrir þessa þróun var arfi frum- herjanna fórnað, kjarna starf- seminnar , hinni skuldlausu verzlun. Enda hvarf kjörorðið „skuldlaus verzlun“ smám sam- an úr vitund foryztumannanna, en í staðinn kom hið óskapnaðar- kennda holtaþokuvæl um sann- virðið. Undir kjörorði sannvirðisins hefir mikil saga gerst í kaupfé- 1932 (33.1 milj.). Meiri skulda- lækkun færði kreppusjóðurinn þá ekki bændum er til kom- Því ber þó ekki að neita, að vaxta- fúlgan hefir lækkað töluvert meir, eða um 40% (1.3 milj. í stað 2.1 milj.). Þegar hér við bætist hækkað afurðaverð er- lendis (15% miðað við 1934 og jafnvel 75% miðað við 1932), og að nú hafa verið samþykkt lög, sem eiga að létta af bænd- um mestum hluta áðurnefndra 2 milj. í ábyrgðarskuldum, þá skyldi maður kannske ætla að bændur gætu verið áhyggjulaus- ir um fjármál sín. Bændur vita bezt sjálfir, að svo er þó ekki. 60% bænda komust ekki í kreppusjóðinn og eru því jafn skuldugir og áður; meðal þeirra eru fátækustu bændur landsins. Þeir, sem í kreppusjóðinn kom- ust, fengu raunar miklar af- jskriftir, en aðeins vegna þess, að ómögulegt var að hafa af þeim vexti og afborganir af stærri lögunum á Islandi. 1 leitinni eftir sannvirðinu — ef leit skyldi kalla —- hafa verið þverbrotnar allar meginreglur frumherja ís- lenzkrar samvinnu. Á síðustu áratugum hafa kaupfélögin of- urselt sig svo rækilega banka- valdinu, að vafasamt er að nokk- ur starfsemi í landinu sé því meira háð. Það er ekki óalgengt nú á dögum, að einstölc kaupfé- lög skuldi út á við um áramót hærri upphæð en nemur allri ársúttekt félagsmanna. Og af- koma S. I. S. er aðeins stækkuð mynd af afkomu hinna ýmsu fé- laga. Jafnframt því að kaupfé- lögin hafa smám saman gerzt bankavaldinu háð, hefir hjörorð frumherjanna „skuldlaus verzl- un“ horfið í baksýn þeirra erfið- leika, sem þessi nýju viðhorf sköpuðu. Bankaskuldirnar kröfðust mik- illa vaxtagreiðslna, sem komu fram í hækkuðu vöruverði og oft urðu kaupfélögin nú að sæta verri kjörum um innkaup sökum skulda við viðskiftamenn sína innlenda og erlenda. Þetta verkaði allt í þá átt, að gera fátækum viðskiftamönnum félaganna erfitt um skuldlausa verzlun. Fyrir þessar sakir allar snerist aðalverkefni kaupfélag- anna frá því, sem upphaflega var hugsað, að útvega félagsmönn- um hin ódýrustu og hagkvæm- ustu viðskifti í hvívetna, til þess að standa skil á skuldavöxtum og fullnægja öðrum kröfum lán- ardrottnanna. Með öðrum orð- um: Vegna þessarar stefnubreyt- ingar. breyttust kaupfélögin úr því að vera virkilegt tæki fá- tækrar sveitaalþýðu í hagsmuna- upphæðum, en eftir urðu. Láta mun nærri, að enn fari minnst 40% af öllum dilkum bænda upp í vexti og afborganir skulda. Áð- ur’ en „kreppuhjálpin“ kom til sögunnar, borguðu bændur oft ekkert af lánum sínum, í krafti þess að almennt var viðúrkennt, að þeir gátu ekki undir skuldum sínum risið. Nú eru 70% af skuldum bænda veðtryggðar, í stað 35% áður, og í skjóli þess, að skuldhafarnir þykjast hafa gengið eins nærri sér eins og frekast gat komið til mála, er nú gengið að bændum með meira miskunnarleysi en nokkurn tíma áður hefir þekkst. Til vonar og vara er jafnframt haft í hótun- fim um að bændur fái ekki „bráðabirgðalán fyrir nauðsynj- um sínum“ ef þeir „standa ekki við gerða samninga um vexti og afborganir af lánum“. (Tíminn 15. jan.). Framh.

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.