17. júní - 01.09.1924, Blaðsíða 12

17. júní - 01.09.1924, Blaðsíða 12
44 17. JUNÍ er öllum ljóst. Það er einnig brot á stjórnarskipun þjóðverja frá 11. ágúst 1919, 113 grein, og friðarsamming- unum. Foreldrar barnanna hafa nú kært þetta fyrir stjórn Suður-Slesvíkur. Oss íslendingum virðist það undar- legt að svo mentuð þjóð sem Þjóð- verjar skuli geta verið svona þröngsýnir og ófrjálslyndir. Þetta er lireint og beint blindni, já, ótrúleg heimska. Þá er nú þess er gætt að Þjóðverjar hafa jafnvel þúsundum saman leitað hjálpar hjá Dönum á neyðarárum sínum, og að sögn Scheidemanns íyrver. rikiskanslara hafa Danir fyrstir allra þjóða bundist samtökum til að koma á föstu skipulagi til þess að hjálpa Þjóðverjum, þá er þetta enn undar- legra. Danir hafa bjargað mörgum Þjóðverjum frá hungri og hungurdauða. Þeir hafa tekið þýsk börn til sín um lengri eða skemri tima svo þúsundum skiftir. Gjafir þeirra Þjóðverjum til hjálpar á hinum síðustu árum skifta eflaust miljónum kr. Og þó mega eigi hinir íáu Danir, sem búa fyrir sunnan landamærin, láta börn sín ganga í danskan skóla. í allri Suður-Slesvík fyrir utan Flens- borg er enginn danskur skóli. Mikill er munur mannanna, segir máltækið, hið sama má segja um þjóðirnar. •X- Danir í Flensborg hafa í vetur gefið út bók sem heitir „Grænse- bogen“, ritstjóri L. P. Christensen, í henni eru afar margar upplýsingar um málefni Dana og Þjóðverja við landamærin. Hún kostar 4 kr. og er þó 366 bls. Hana má kaupa hjá hvaða bóksala er vill í Kaupmannahöfn. □ Neðanjarðar-París. KAFFIHUS, sem eru þekt flestum, er „Café Derondelle", og hefir það gefið tilefni til nafnsins Neðanjarðar- París. Má jeg biðja lesendurna að fylgja mjer inn í þessa skemtilegu veitingastofu. Jeg verð þá fyrst að segja það, að í gamla daga var þetta uppáhalds kaffihús d’Annuncios, á þeim árum þegar blóðið í æðum hans var heitt. Nú þegar hann er orðinn þjóðhöfðingi, dregur kaffihúsið hann ekki að sjer. Þess háttar fyrirbrigði verða menn að sjá með ungum auguin og opnu hugarfari. Sá sem kemur óhrífanlegur og athugandi finnur ekki þann blæ og anda sem þar ríkir. Utan af hinum uppljómaða Boule- vard Saint Michel er gengið inn um stórt járnhlið og niður eftir nokkrum stigaþrepum, og er þá komið í litla og þrönga, mjög dimma blindgötu, sem liggur jafnhliða Signu. Við göng- um inn um venjulegt hlið í þessari götu. í hliðinu er gengið á ójöfnum steinum eins og í hesthúsdyrum. Öðru megin í portinu er litið op, h. u. b. eins metra hátt, við skríðum inn um það og komutn inn í lítið skot, lýst blaktandi og snarkandi vaxlogum; og við sjáum nokkur steinþrep sent liggja niður — við höfum ekki hugmynd

x

17. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.