17. júní - 01.09.1924, Page 15

17. júní - 01.09.1924, Page 15
17. JUNÍ 47 í NÆSTA BLAÐI kemur grein eftir fyrv. forsætis ráðh. Dana, hr. J. C- Christensen, og heitir: Að Þjórsá. Frú TOVE KJARVAL skrifaði 12. þ. m. í „Berlingske Tidende“ um jard- skjálftana í Krisuvík, hverana þar og landslag. FRÆÐAFJELAGIÐ gefur í haust ut Passíusálma Hallgríms Pjeturssonar, eftir frumhandriti, í tilefni þess, að í haust eru 300 ár síðan þeir komu fyrst út. Að útgáfunni liafa unnið prof. Finnur Jónsson og Dr. Arne Möller. SAFN Fræðafjelagsins III, er ný komið út og er að þessu sinni. Fjórar ritgjörðir eftir Þorvald Thoroddsen. Aftan við bókina er skrá yfir ritgjörðir og verk Þ. Th. á ísl. og öðrum málum, eftir Boga Th. Melsled. íslensku blöðin. EFLAUST finna margir til þess, hve ábótavant íslensku blöðunum er að mörgu leiti, einkum í stfl og rit- hætti. Öðrum mun að sjálfsögðu finn- ast að þeim hafi farið aftur síðustu 10—15 árin, og er það síst fjarri sanni. Þess er reindar að gæta — sem þó ekki á sök á þessu — að blöðin eiga við fjárhagslega örðugleika að etja. Þad hefir frá upphafi verið örðugleikum bundið fyrir þau að ná sæmilegri út- breiðslu og fyrir eigendur þeirra að ná inn andvirði blaðanna og reina þannig að halda þeim í horfinu. En vöxtur blaðanna og gæði er vitanlega bundin við það, að þau hafi útbreiðslu og að kaupendur greiða þau skilvíslega. Þvi fleiri kaupendur blöðin hafa og því skilvísari þeir eru, því sterkari líkur eru til þess, að blöðin nái að stækka og fullnægja þeim kröfum, sem skynsamur lesandi gerir til þeirra. í þessu sambandi má nefna frjettasamband blaðanna bæði við útlönd og innan- lands. Vægast sagt er þetta samband ófullnægjandi, og með tilliti til dag- blaðanna óþolandi. Frjettirnar eru altof umfangslitlar, óljósar og óábyggilegar. Nýungarnar eru sagðar í fáum orðum, eins fáum og skeytasendarinn hefir þótst geta forsvarað, með tilliti til fjárhags blaðsins. Þetta á auðvitað fyrst rót sína í þvi, hve lítið fje blöðin hafa með höndum og hvé seint andvirði þeirra næst inn. Hitt á líka sinn þátt í því að ritstjór- arnir virðast ekki vera sjer úti um sambönd í þessa átt, virðast enda vanta skilning á þýðingu þessa atriðis i lífi dagblaðsins. Þó er það litlum vafa undirorpið, að með þó því fje, sem þau hafa til reksturs, gætu þau haft fullkoinmara frjettasamband en þau nú hafa, með ofurlítilli fyrirhöfn og svo- litlum skilningi á starfa sínum. Þetta getur ekki talist einkamál blaðanna, lesendur þeirra og þjóðin í heild á þessa kröfu á hendur þeim. En blöðin eiga aftur skilvísiskröfuna á hendur kaupendum, og á hendur ríkisins þá kröfu, að það heldur greiði götu þeirra

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.