Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 26
104
MORGUNN
ingarinnar reyndist svikull, saltur og hitur. Velmegunin
reyndist ekki eins skemmtileg og búist hafði verið við, ekki
fullnægjandi og þekkingin reyndist ekki eins gjöful á and-
lega hvíld og frið og vænzt hafði verið. Maðurinn virðist finna
sig blekktan, svikinn og framandi í sínum eigin heimi. Eða
ef til vill uppgötvar hann betur en fyrr, að Guð og mammon
eru ólíkir í meira lagi. Annar gefur það sem mölur og ryð
eyða og það sem þjófar girnast og stela — hinn gefur inni-
hald, fótfestu og frið leitandi sál. Sérhyggjan hefur ekki
reynst nægilega góð undirstaða þjóðfélaganna til að byggja á,
á henni einni halda þau ekki uppi dampinum og það gerir
einstaklingurinn ekki heldur, og jafnvel án þess að gera sér
þess grein leitar hann og þá oftast óafvitandi að öryggi i
þessum rótlausa og tortryggilega heimi. Þetta hefði Plató og
nýplatónistarnir og allir mýstikerar skýrt sem leit sálarinnar
að heimkynni sínu, leit sem huga mannsins kann að vera
ókunnugt um vitsmunalega. En samt sem áður leita merin
vísvitandi á vit trúarbragðanna til að finna lifi sínu borgið og
sú leit sem alltaf er fyrir hendi hefur ef til vill aldrei verið
ákafari en einmitt nú. Og við skulum veita því athygli að
æskan hefur horfið frá hinum austrænu mýstiku trúarbrögð-
um til hinnar kristnu hefðar aftur, bæði innan Jesú hreyf-
ingarinnar, kirknanna og annars staðar.
Mýstikin hefur eitt mikið notað orðasamband sem kemur
fyrir í ritum hennar aftur og aftur og það er „að njóta Guðs”.
Þetta þyrftu menn að læra, að njóta Guðs, lifa trú sína á
jákvæðan og frjóan hátt. Við höfum líka ef til vill sér í lagi
hér á landi einangrað trú við siðgæði báðum til mikils tjóns.
— Trúin fæst við að fá lífi mannsins borgið í hendi Guðs og
hún boðar að í samfélaginu við hann nái lifið sinni fyllingu,
sem því er ætlað að ná á jörðinni. Og Kristsmýstikin boðar
að „í Kristi“ m. ö. o. i trúnni á Krist, samfélaginu við hann,
en samfélagið við hann heitir kirkja þar sem 2 eða 3 eru sam-
an í hans nafni, þar öðlist líf mannsins uppfylling þrár sinn-
ar um lifsfyllingu.