Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 90
168
MORGUNN
hin fer á eftir, finnst mér að við sjáum út í dagsbirtuna, ég
fer siðast í gegn og er kominn eitthvað áleiðis, þegar ég finn
að togað er í fæturna á mér og ég dregin til baka. Þá kalla ég
til þeiirar yngri. „Vertu hjá pabba þínum“!
Vaknaði ég þá.
RáSning
Þegar ég reyndi að ráða þennan draum þá fannst mér hann
hljóta að boða eitthvað illt. Helzt fannst mér að hann boðaði
að ég myndi deyja þegar yngri stúlkan væri komin upp og
taldi að bað væri ráðningin. En árin liðu og stúlkan varð
tvitug og ekkert skeði. Árið sem hún varð tvítug var hún við
vinnu útifrá, en kemur heim um haustið, og stuttu eftir það
þá leggst ég í rúmið. Var það mitt f}rrsta heilsuleysi og ég
hef varla stigið heilum fæti á jörð eftir það, þó að ég hafi þó
heldur haft betri heilsu seinni árin.
III
í apríl 1946 dreymdi mig eftirfarandi draum. Þá bý ég á
Þrastahóli í Eyjafirði. Þar voru þiljuð göng og var húr til
hægri en eldhús til vinstri i miðjum göngunum. Mig dreymir
að ég sé á leið fram í búrið. Bekkur var langsum að austan-
verðu i búrinu. Þegar ég opna hurðina þá sé ég að það liggur
mórautt dýr á bekknum. Hausinn er alveg fram við dyrnar
en skottið og fæturnir eru alveg inn við vegginn. Finnst mér
jietta dýr líta út alveg eins og hundur, nema það er mórautt
og allt miklu grófara og sta;rra. Ég verð hrædd, sný við og
hörfa inn göngin og finnst mér dýrið fylgja á eftir. Þrjár
tröppur voru upp i baðstofuna og þegar ég er að fara upp
þær, þá finn ég að það er á hælunum á mér. Fannst mér allt
heimilisfólkið vera í fasta svefni í baðstofunni. Eg sný mér
við, og þá sé ég mann standa aftan við mig. Heldur hann á
ga>ruhníf, sem kallaður var, hann heldur hnífnum á lofti og
otar honum, flugbeittum, finnst mér að maðurinn æth að
gera okkur eitthvað illt. Finnst mér ég allt í einu verða