Morgunn - 01.12.1988, Blaðsíða 27
morgunn
NÝJAR SAMBANDSLEIÐIR
Arkimedes varð fyrstur til þess að komast að núverandi
hlutfalli.
Spurning mín er: Hversvegna hrösuðu margar kynslóðir
stjörnufræðinga Kaldeumanna, sem gátu ákvarðað ná-
kvæmlega stjörnur og tíma, um hlutafall PÍ-tölunnar?
(Svo ræðir Swejen Salter um málefnin
3. Hröðun,
4. Rafmagn,
5. Þróun,
og ályktar svo ....
Mér virðist að þið séuð fær um að breyta heimi skilnings
ykkar á grundvelli kenningar hvenær sem þið viljið. Atóm-
orkan hefur breytt menningu ykkar. Nú er tími til kominn að
veita athygli kenningum um framtíðina.
Og nú, sendum við þakkir og kveðjur til allra, sérstaklega
forstjóra METAscience, Hr. Meek, sem ég hef oft rætt við.
P.S. Já, það er miðstöð hér, þaðan sem framkvæmd allra
ljarskipta við mannlegu sviðin er stjórnað. En það myndi
ekki þjóna neinum tilgangi að gefa ykkur upp nöfn. Mér er
sagt að áætlunin „samband" muni sennilega ekki virka á
þennan hátt vegna þess að það hafa ekki nægilega margir
aðilar með vísindalega þekkingu áhuga á henni.
Ég vona að ég hafi getað veitt þér, dr. Senkowski, eitthvað
til þess að hugsa um. Takk fyrir litla diskinn. Ef faðir Resch
vissi nú um það!“
Swejen Salter.
Ef til vill ætti lesandinn að staldra aðeins við og íhuga
niikilvægi þessara orða. Mér vitanlega eiga þau sér ekkert
sögulegt fordæmi. Þið hafið hér lesið mjög fræðilegt erindi
vitsmunaveru sem, um marga mánuði, hafði látið í té traustar
sannanir fyrir því að hún er ekki til á geðheimssviði, hug-
heims-, orsaka- eða öðrum himneskum stigum æðri sviða
þessarar plánetu. Swejen Salter hefur sýnt yfirburða þekk-
mgu með því að geta á yfirskilvitlegan hátt komið athuga-
25