Útvarpstíðindi - 09.06.1941, Blaðsíða 6
BÓ KADÁLKUR.
RUDYARD KIPLING.
RUDYARD KIPLING er einhver þekkt-
asti rithöfundur Breta hœði heima
og erlendis. I-Iann var einn _ af ljósum
heimsins og hlaut bókmenntaverðlaun
Nobels árið 1907. Á íslandi aflaði þor-
steinn Gíslason honum margra vina og
aðdáenda með þýðingu sinni á Sjómanna-
lífi, sem er einhver vinsælasta saga með-
al alþýðu, sem þýdd hefur verið úr er-
lendu máli. Á síðari árum hefur Magnús
Ásgeirsson við þær vinsældir aukið með
þýðingu á nokkrum ljóðum eftir hann.
Og nú kemur loks einn af ritfærustu
mönnum landsins, Ái'ni frá Múla, með
Ljósið, sem hvarf.
Ljósið, sem hvarf, er saga, sem maður
vill lesa sjálfur, og helzt án frátafa. Hún
var óheppilega valinn sem útvarpssaga.
það, að þurfa að bíða í heila viku eftir
framhaldi af hverjum kafla, og kannske
allan veturinn eftir sögulokum, það gátu
hlustendur ekki fellt sig við, til þess voru
kaflamir heldur ekki nógu sjálfstæðir og
flutningur þeirra ekki nógu lífrænn. Ég
var einn af hinum óánægðu. Nú hefi ég
Ieslð Ljósið, sem hvarf og er ánægður.
J. ú. V.
lfi.30—16.00 Miðdegisútvap.
19.30 Hljómplötur: Danslög.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Minnisverð tíðindi.
20.50 Einleikur á fiðlu (þórarinn Guð-
mundsson): Sónata í g-moll eftir
Tartini.
21.05 Upplestur: „þorgrímur bóndi og
stríðið"; smásaga (frú Unnur
Bjarklind).
21.30 Útvarpshljómsveitin: I.agasyrpa
eftir Delibes.
21.50 Fréttir. — Dagskrárlok.
Föstudagur 27. júní.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvap.
19.30 Hljómplötur: Harmóníkulög.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Kristín Lafrans-
dóttir", eftir Sigrid Undset.
21.00 Hljómplötur: Norsk lög.
21.10 Garðyrkjuþáttur (Jóhann Jónasson
ráðunautur).
21.30 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett
nr. 13 í G-dúr eftir Haydn.
21.50 Fréttir. — Dagskrárlok.
Laugardagur 28. júni.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvap.
19.30 Hljómplötur: Samsöngur.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Hljómplötur: Tilbrigði eftir Saint-
Saéns við lag eftir Beethoven.
20.45 Upplestur: „Og sólin rennur upp“.
eftir Hemingway (Karl ísfeld blaða-
maður).
21.15 Hljómplötur:
a) Gamlir dansar.
b) Vínarvalsar.
21.50 Fréttir. — 22.00 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
450
ÚTVARPSTÍÐINÐJ