Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Qupperneq 14
14
DTVARPSTIÐINDI
má hafa til umhugsunar, t. d. 20
sekundur algengast. Þegar búið. er að
svara spurningunni, kemur rödd dóm-
arans, sem segir til um hvort spurning-
unni hafi verið rétt svarað, og gefur
hann þeim sem svarað hafa einkunir
fyrir frammistöðuna, svo og svo mörg
stig, eftir því hvað mörgum spurning-
um hefur verið svarað rétt. Af þessu
höfðu hlustendur mjög gaman, og
spreittu sig margir á að reyna að svara
spurningunum áður en svarið kom í
útvarpinu.
í danska og sænska útvarpinu er
yfirleitt mikið meira um skemmtiþætti
og tónlist heldur en mér virðist vera
í útvarpinu hér. Oft v,ar t. d. útvarpað
frá óperunni, og á milli kl. 6—7 síðd.
eru ævinlega leiknar hljómplötur,
helminginn af tímanum klassisk tón-
list en hinn helminginn létt lög og
dansmúsik. í sænska útvarpinu er mjög
vinsæll þáttur, sem ég hef ekki nefnt,
en það er skoðanakönnun um musik
meðal hlustendanna. Hann fer þannig
fram, að bifreið sem er með sendistöð
er send frá útvarpinu og er henni ekið
um borgirnar og út um landið, og fólk
er spurt að þvf, hvaða lág það óski
eftir að fá leikið, því er svarað og
samstundis er umbeðið lag leikið í út-
varpinu. Þarna fylgjast hlustendumir
með því sem fer fram gegnum talstöð
bifreiðarfnnar, og er oft að því hin
bezta skemmtun“.
— Komu íslendingar nokkurtíman
fram í danska útvarpinu eftir að Þjóð-
verjar hernámu landið?
,,Það kom fyrir að íslendingar
flyttu erindi í það, og veturinn 1943
söng blandaður kór undir stjórn Axels
Arnfjörðs í útvarpið. Ennfremur hef-
ur Elsa Sigfúss oft sungið í það og er
söngur hennar eftirsóttur dagskrár-
Iiður“.
— Hlustuðu íslendingar í Danmörku
mikið á útsendingamar til íslands frá
Þýzkalandi?
'„Ég held mér sé óhætt að fullyrða,
að ekki nokkur maður hafi hlustað á
það, eftir að menn komust að því, að
það var áróður frá nazistum. Menn
heyrðu nóg af honum í fréttum og á
ýmsan annan hátt“.
— Var íslendingum ekki mikill
fengur að því, er stuttbylgjuútvarpið á
sunnudögum byrjaði frá íslandi til
Norðurlanda í vetur?
„Jú, það var lengi búið að þíða
með eftirvæntingu eftir rödd að heim-
an. Annars var ég kominn til Svíþjóð-
ar, þegar það byrjaði, en þangað hafa
fréttir alltaf borizt auðveldlegar héð-
an en til Danmerkur. Samt sem áður
var því mjög fagnað þar meðal ís-
lendinga.
Fyrstu sendingarnar heyrðust ekki
rétt vel, þegar útvarpað var kl. 3
síðd., en eftir að farið var að útvarpa
kl. 6, eins og nú er gert, heyrðist það
ágætlega til Svíþjóðar og ég hef frétt
að það hafi líka heyrzt vel til Dan-
merkur og veit ég að löndum okkar
þar er ómetanleg ánægja að því, að
eiga vikulega von fréttasendinga frá
íslandi“.
Eins og heyra má á frásögn Sigurð-
ar, em íslendingar sem dvelja í Dan-
mörku orðnir langþreyttir á einangr-
uninni, og skiljanlegt að þeir hafi fagn-
að því að heyra „rödd að heiman“,
eftir nálega fjögurra ára þögn.