Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Blaðsíða 21
ÖTVARPSTIÐINDI
21
Gerist áskrifendur að ÚTVARPSTÍÐINDUM strax
Hverfisgötu 4 - Símí 5046
Tvær stórmerkar bækur frá Tónlistarfélaginu
Passlusálmarnir
með gömlu Grallaralögunum.
Hin fögru lög, sem Hallgrímur valdi sjalfur við Passíusálmana, eru að vísu
allmörg sungin enn, en fjöldi þeirra mun nú algerlega ókunn flestum, og
þó segir Jónas Jónsson, sem á sínum tíma gaf þessi lög út, í formála
útgáfunnar:
„Or Hólabókinni og Grallaranum hefur síra HallgrímUr Pétursson
valið lögin við passíusálma sína, og eru þau svo meistaralega valin
við efni sálmanna, að óhætt er að fullyrða, að hvergi fara betur sam-
an orð og tónar í söngbókum vorum en einmitt þar“.
Þessi útgáfa er ljósprentuð eftir útgáfunni frá 1906, sem mun nú aðeins í
örfárra höndum. — Hvert einasta íslenzkt heimili verður að eignast þessa
bók, kostar aðeins kr. 25.00 og kr. 45.00 í svörtu silkibandi.
*
Islandsvísur Jóns Trausfa
voru gefnar út rétt eftir síðustu aldamót í aðeins 150 eintökum, með fallegum
telkningum eftir Þórarinn B. Þorláksson. Hefur eigandi verka Jóns Trausta,
Guðjón ó. Guðjónsson og kona hans, gefið Tónlistarfélaginu eftir útgáfurétt-
inn, og ekkja Þórarins B. Þorlákssonar leyft endurprentun myndanna í 200
tölusettum eintökum.
Passíusálmarnir hafa þegar verið sendir öllum bóksölum, en íslands-
vísurnar verða aðeins afgreiddar gegn sérstakri pöntun.
Gefið öllum unglingum bókina „Æska Mozarts".
Það e'r hugnæm og göfgandi bók.
'ÍJókabuB £arusar JJlöndal,
SkólavörZustíg 2,
aðalumboðsmaður fyrir útgáfu Tónlistarfélagsins.