Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Side 17

Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Side 17
ÚTVARPSTIÐINDI 17 Hverskonar tæki fdum við y eftir stríð? A styrjaldartímum verða œtíð stór- kostlegar framfarir í tæknislegum efn- um. Það er eins og þjóðirnar Ieggi sig þá allar fram og að afrek þeirra verði þá meiri og stórfenglegri en á öðrum tímabilum æfi þeirra, bæði til góðs og ills, má segja. í þeim vísindum, sem ná yfir útvarp, joftskeyti, miðanir o. s. frv. hafa orð- ið stórfenglegar framfarir á síðustu fimm árum. Nægir í því sambandi að eins að benda á það, er Bretum tókst með miðunum að finna flugvélar Iöngu áður en þær komu að ströndum Bret- Iandseyja. Þá hafa framfarirnar orðið mjög stórstígar í útvarpsfræðum og sjónvarpsfræðum og mun þessa verða getið nokkuð í næstu heftum Útvarps- tíðinda. Það má gera ráð fyrir því að út- varpstæki verði eftir stríðið nokkuð frábrugðin þeim, sem við höfum átt að venjast, ekki að eins að lögun og gerð heldur og að styrkleika og öllum- innri búnaði. Munu jafnvel þá fljót- lega koma á markaðinn útvarpstæki, sem jafnframt verða sjónvarpstæki og mun þá verða nauðsynlegt fyrir okkur íslendinga að eignast sjónvarpsstöð. Er ekki ólíklegt að forráðamenn þess- ara mála muni athuga þetta efni í sam- bandi við byggingu hinnar nýju út- varpshallar, þegar þar að kemur. Samkvæmt upplýsingum, sem Út- varpstíðindi hafa úr ameríska tímarit- inu ,,Science Digest“ er þegar farið að smíða útvarps- og sjónvarpstæki, sem ætluð eru til almenningsnota eftir stríðið. Þau eru allmikið frábrugðin tækjum, sem byggð voru 1942 og við smíði þeirra hefur verið stuðst við þá reynslu sem fengist hefur í hernaðin- um. Er það jafnframt sagt, að tveimur mánuðum eftir að hægt er að byrja stórframleiðslu, sem ekki er miðuð við hemaðarþarfir, muni verða hægt að byrja á því að svara eftirspuminni. Fjórum mánuðum eftir styrjöldina er talið að allar verksmiðjur, sem fram- leiða útvarps- og sjónvarpstæki nú, geti byrjað framleiðslu fyrir almenn- ing, en 6—9 mánuðum síðar verði þau komin á markaðinn í stórum stílr Má búast við allharðri samkeppni milli verksmiðjanna á markaðinum. Þá er gert ráð fyrir því að tækin verði all- miklu dýrari, en þau em nú. Er jafnvel talið að tækin muni kosta 15—50% meira en fyrir stríð. Sjónvarpsmóttak- arar munu kosta frá 1000—8000 kr. og jafnvel meira, þegar um ,,Iúxus“- móttakara er að ræða. — Það er ekki líklegt að hægt verði að fullnægja eftirspuminni þó að framleiðsla byrji eftir styrjöldina eins og að framan getur. Það mun líða langur tími frá því að framleiðslan byrjar og þar til hægt verður að fullnægja eftirspuminni að nokkm ráði. Hér fara á eftir nokkrar upplýsing-

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.