Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Blaðsíða 19
ÚTVARPSTÍÐINDI
19
(C>2 VI ídi óslca mér.................
AS þætti þessum, sem hér skrfSur
ófiðraður úr egginu, verði vel tekið
meðal ykkar, Iesendur góðir, svo hann
megi verða full fiðraður og fleygur
sem fyrst.
AS þið verðið mér einlæg og trúiS
mér fyrir óskuín ykkar, þá skal ég
vinna aS því eftir mætti, aS þær ræt-
izt, þótt ég hins vegar taki ekki ábyrgS
á, aS ekki geti þaS brugSist stöku sinn-
um, þegar andlegri orku minni og sál-
arstyrk er eitthvaS áfátt.
AS þetta nægi til að benda ykkur
á, að hér er tækifæri til að bera fram
ýmsar óskir, sem þið viljið létta ykkur
af hjarta með því að hrópa út í heim-
inn.
AS þiS hlustið vel á útvarpið og
lesið Útvarpstíðindi, þá græðið þið
.......HvaS? — SegiS okkur frá því
í næsta hefti ÚtvarpstíSinda. .
AS árið væru þrettán mánuðir, því
þá myndu skattgreiðendur fá eins mán-
aðar hvíld frá útsvarsgreiðslum sínum.
En þrettándi mánuðurinn nefnist
„Stikk frí“.
AS ræðumenn á samkomum hætti
því í þyrjun erinda sinna að lofa að
þeir skuli vera stuttorðir. Því venju-
lega svíkja þeir þetta og verða lang-
orSir en andstuttir.
AS vísindamennirnir gætu fundið
upp lyf gegn hræsninni og löggjafar-
valdið gæti stjórnað því, að allir, sem
þjást af hinum meinlega kvilla, hræsn-
issjúkdómnum, tækju lyfin inn. Þá
gæti fólk horfst í augu án þess að
blygðast sín.
AS útvarpsþátturinn hans Helga
Hjörvars, sem er kl. 10.30 á sunnu-
dagsmorgnum væri ekki fyrr en kl. 1
eftir hádegi. Því unga fólkið, sem er
að skemmta sér á laugardagskvöldun-
um, og mun almennt þykja gaman aS
þessum þætti, er varla búið að ná stýr-
unum úr augunum svona snemma
morguns, að minnsta kosti ekki það,
sem í kaupstöðunum býr. í sveitunum
er,u karlmennirnir við gegningamar
fyrir hádegi og kvenfólkið í búrinu.
Eftir hádegi hafa hins vegar flest;r
tíma til að hlusta, meðan þeir eru að
jafna sig eftir ljúfengan sunnudags-
matinn.
Óskasteinn.
Áhugasamur fréttaritari.
Fréttaritari nokkur vildi fá örugga
staðfestingu á því hvernig skipsskað -
inn hefði orsakast og spurði því heim-
ildarmann sinn: — Er það sannað að
tundurdufl hafði grandað skipstapan-
um.
ÚTVARPSVIÐGERÐASTOFA
Ottó B. Arnar
Klapparstíg 16 Revkjavík
annast allskonar viðgerðir á útvarps-
tækjum og öðrum skyldum tækjum.
Fyrsta ílokks vinnustofa og góðir starfs-
kraftar. Sanngjarnt verð.
\
— 20 ára reynsla -
Sími 2799