Útvarpstíðindi - 04.04.1949, Side 9
Útvarpstíðindi
105
Bjöm R. Einarsson
Ánú Elvar
Ounnar Ormslev
Fimm manna „jazzhljómsveit“ Björns R.
Einarssonar skemmtir á annan páskadag.
— Þessi hljómsveit var, eins og kunnugt er,
sæmd heiðursnafnbótinni „Bezta dans-
hljómsveit landsins“ í prófkosningum, sem
Jazzblaðið stóð fyrir. í hljómsveitinni eru:
Björn R. Einarsson, — leikur á trombone,
Guðmundur Einarsson, — leikur á trom-
pet, Árni Elvar, — leikur á píanó, Axel
Kristjánsson, leikur á kontrabassa og gítar,
og Gunnar Ornslev, — leikur á tenór-
saxófón.
Að þessu sinni munu þeir félagarnir taka
til meðferðar svo til óþekkt lög, — a. m. k.
lög, sem lítt hafa verið kynnt ísl. útvarps-
hlustendum og verður „mikill jazz' ‘ í
hlutverkaskránni. Meðal laganna, sem
þeir leika, verður „Perido“ eftir Duke Ell-
ington, „Get Happy“, „Move Over“, og svo
„Lady be good“, sem væntanlega verður
sungið. — Svo er það meiningin, að leika
dálítið BEEBOB, en svo nefnist hið allra
nýjasta í jazzinum. Fyrsta lagið í þeim
flokki nefnist Dexter Writes Again, — svo
„Cent An’ a Half“, „Now Is The Time“, og
„Charge Account“. Auk þess er það ætl-
unin að fjórmenningar úr hljómsveitinni
syngi saman lagið „Sleepy Time Gal“.
Um hljómsveit Björns R. Einarssonar
er það að segja, að hún varð til fyrir
tveimur árum, — þá með sex mönnum, og
eru þrír stofnendanna enn í hljómsveit-
inni. Á þessum tima hefur hljómsveitin
leikið nálægt því 60 lög inn á plötur fyrir
útvarpið.
Aðspurður um fyrirhugaða nýbreytni í
sambandi við starfsemi ísl. danshljóm-
sveita, segir Björn okkur, að sér hafi verið
falið af stjórn Félags íslenzkra hljóðfæra-
leikara, að leitast eftir því, hvort félagið
geti ekki fengið fastan tíma í dagskrá út-
varpsins, — 15 mín. til hálftíma í viku, líkt
og Tónlistarfélagið. Félagið myndi þá etja
fram sínum beztu mönnum, — allt upp í
9 manna hljómsveitum, og gæti með þeim
hætti séð fyrir meiri fjölbreytni en ella,
þar sem úr stórum hópi er að velja.
Hvernig lízt hlustendum á hugmyndina?