Bankablaðið - 01.12.1984, Qupperneq 21
21
50 ÁRA AFMÆI SÍB
- OPIÐ HÚS
Laugardaginn 2. febrúar sl. var haldið
upp á 50 ára afmæli SÍB að Tjarnargötu
14. Stjórnin hélt opið hús og tók á móti
gestum milli kl. tvö og sex.
Þetta var hinn fegursti dagur og þegar
íslenski fáninn var dreginn að húni rétt
fyrir kl. tíu um morguninn, þá blakti ekki
hár á höfði. Fyrstu gestirnir mættu
snemma og notuðu tímann til að skoða
húsakynnin. Tekið var á móti gestunum í
tveimur hópum, þar sem vonast var eftir
það mörgum, að húsnæðið dygði ekki fyr-
ir alla í einu. Reyndin varð líka sú.
Gestum var boðið upp á kaffi og með-
læti og virtist allt renna ljúflega niður,
enda voru menn í úrvals félagsskap við
gott tækifæri. Við þetta tækifæri færði
Guðrún Hansdóttir, formaður starfs-
mannafélags Landsbankans, SÍB að gjöf
frá aðildarfélögunum stórkostlegar gjafir.
Var þar um að ræða hljómflutningstæki af
Pionergerð, sjónvarp af Luxorgerð og
myndband af Sharpgerð. Við afhendingu
gjafarinnar sagði Guðrún m. a.:
„Margt hefur breyst í þjóðfélaginu á
þessum langa tíma, en SÍB hefur ávallt
verið trútt því hlutverki að sameina alla
bankamenn og að vera í forystu í öllum
hagsmunamálum þeirra. Stórt hlutverk í
starfi SIB hefur ætíð verið fræðslu- og
félagsmál. Hafa fjölmargir bankamenn
eignast góðar minningar og öðlast fræðslu
á fjölda mörgum fundum og námskeið-
um. Stjórnir starfsmannafélaganna vildu
sýna sameiningarmátt sinn og gefa því SÍB
tæki sem munu einmitt auka möguleikana
til frekari fræðslu."
Kl. fjögur kom síðan síðari hópurinn og
var þar margt um manninn. Sigtryggur
Jónsson úr Landsbanka íslands lék nokk-
ur skemmtileg lög á píanó, kaffi drukkið
og kökur stýfðar úr hnefa. Torfi Ólafsson
fór þá með gamanmál við frábærar undir-
tektir. Að þessu loknu settist Sigtryggur
aftur við píanóið og lék nú fyrir fjölda-
söng. Svo hressilega var sungið að minnstu
munaði, að stofnaður væri samkór banka-
manna. Skemmtu allir sér konunglega.
Stjórn SIB vill nota tækifærið og þakkar
öllum þeim er heimsóttu Tjarnargötuna
þennan ágæta laugardagspart.
Sveinn Sveinsson býður gesti velkomna. Torfi Ólafsson flytur gamanmál.
Dóri kokkur hjá glæsilegu veisluborði sínu.