Bankablaðið - 01.12.1984, Side 22

Bankablaðið - 01.12.1984, Side 22
22 NBU Ymsir punktar Fréttir af vettvangi NBU Af vettvangi NBU er það helst að frétta, að á síðasta ári var samþykkt breytt fyrir- komulag á ijármálum NBU. Hér eftir mun NBU bera allan kostnað við starfsem- ina, aðildarsamböndin greiða aðeins sín félagsgjöld. Félagsgjald fyrir árið 1985 verður SEK 13 á félaga. Þessi breyting kemur sér mjög vel fyrir SIB, þannig að reikna má með minni kostnaði við störf okkar innan NBU í framtíðinni. Hjá NBU eru nú starfandi nokkrar nefndir sem eru að sinna sérstökum verk- efnum. Af hálfu SÍB tekur Ólafur Örn Ingólfsson þátt í vinnuhópi sem er að fjalla um bankastörf framtíðarinnar. Það er mjög þýðingarmikið að við gerum okkur grein fyrir því sem framundan er, þannig að við getum í tíma snúið þróuninni okkur í hag. Þegar skoðuð er reynsla annarra þjóða úr öðrum atvinnugreinum, þá rennur manni til rifja, hversu illa er komið hjá mörgum stéttum. Með markvissu starfi verðum við betur í stakk búin að forðast þau mistök er aðrir hafa gert. Guðrún Ástdís Ólafsdótdr tekur þátt í að undirbúa trúnaðarmannanámskeið NBU, en eitt slíkt verður haldið í Danmörku nú í sumar. Benedikt Guðbjartsson er að undirbúa mikla ráðstefnu fyrir banka- menn og stjórnendur banka, þar sem fjall- að verður um menntun bankamanna í framtíðinni. Friðbert Traustason á sæti í tækni- nefnd NBU. Þá nefnd skordi aldrei verk- efni, því alstaðar er verið að þróa nýja tækni, og bankarnir eru ávallt ginnkeypdr fyrir nýrri tækni. Það verður því ædð mikilvægara, að bankamenn gefi þessum þætd gaum og séu ekki síður en stjórn- endur bankanna vel að sér í málum þess- um og reyni að gera bönkunum ljóst, að þýðingarmikið sé að hafa starfsfólkið með í ráðum frá upphafi hverrar nýrrar áæd- unar. Helgi Hólm starfar í svonefndum „kon- taktmannahóp". Hann samanstendur af framkvæmdastjórum allra sambandanna. Hópurinn hittíst tvisvar til þrisvar á ári. Sveinh Sveinsson á sæti í stjóm NBU. Stjórnin hittist tvisvar á ári og verður næsti stjórnarfundur haldinn í Reykja- vík 16.—17. apríl nk. Fyrir þeim fundi liggja mörg mikilvæg mál, en jafnframt Sveinn Sveinsson fyrir framan Skokloster- höll. verða stjórnarmenn gestir á ársþingi SÍB, en það verður haldið 18.—19. apríl. NBU gefur jafnan út ýmis rit og geta félagsmenn fengið aðgang að þeim á skrifstofu SÍB. Núverandi forseti NBU er Kaj Öhman og framkvæmdastjóri er Jan Erik Lidström. Skcklc Kaj Öhman, forseti NBU, „messar" yfir norrænum bankamönnum. í kjallaranum ... Að Tjarnargötu 14 er kjallari undir öllu húsinu. Hann er rétt rúmlega manngeng- ur og hefur verið heldur illa nothæfur af ýmsum ástæðum. Þar gætir nefnilega flóðs og fjöru og þarf að setja vatnsdælu í gang, þegar slíkt skeður. Einnig er kjallara- skömmin heldur óhrjáleg sökum lítillar snertingar við málningu og þess háttar. Samt hefur þarna verið geymt ýmislegt af eldri gögnum SIB, s. s. eldri árgangar af Bankablaðinu, bókhaldsgögn o. fl. Nú stendur yfir andlitslyfting á blessuðum kjallaranum. Hafa nú veggir og gólf verið málaðir og tréloftið hreinsað. Er nú allt annað líf að „róta í gamla draslinu", þegar einhver þarfnast upplýsinga sem aðeins er að finna þar. Nýir aðstoðarbankastjórar í Alþýðubankanum Það bar til tíðinda um síðustu áramót, að ráðnir voru tveir nýir aðstoðarbankastjór- ar að Alþýðubankanum. Voru það þeir Guðmundur Ágústsson og Ólafur Ottós- son. Þeir eru báðir kunnir innan raða bankamanna, því Ólafur hefur starfað í banka um langt skeið. Hann var lengi í Samvinnubankanum, fór síðan til Afríku að kenna þarlendum bankastörf, kom síðan heim og til starfa í Búnaðarbankan- um. Ekki stóð hann lengi við, heldur hvarf aftur til Afríku, en mun nú taka tíl starfa hjá Alþýðubankanum í vor. Guðmundur hefur verið starfsmaður samninganefndar bankanna nokkur und- anfarin ár. BANKABLAÐIÐ óskar þeim báðum heilla í starfi. Tertuveislur í bönkunum Á afmælisdegi SIB buðu stjórnendur bankanna starfsfólkinu upp á tertur í til- efni afmælisins. Var rausnarlega að því staðið og á einstaka stað fengu „kúnnarn- ir“ kaffi og smákökur. Var þetta hin ánægjulegasta uppákoma og eiga bank- arnir bestu þakkir skilið.

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.