Bankablaðið - 01.12.1984, Side 34

Bankablaðið - 01.12.1984, Side 34
34 Bankamenn á Akureyri trúnaðarmaður starfsmanna. Þegar tíð- indamann Bankablaðsins bar að garði, var hann að fara í „kartöflumar“, eins og hann orðaði það. Við nánari athugun kom í Ijós að Finnur er með 12 hektara land undir kartöflurækt ásamt bræðmm sínum. Finnur sagði að mikill tími færi að sjálfsögðu í „kartöflurnar“, t. d. væri hann flest kvöld og helgar í því að flokka þær á vetuma. Hann gefur sér þó tíma til að sinna íþróttamálum, hann er í stjóm K.A. og hefur spilað fótbolta með starfs- félögum sínum í firmakeppni fyrir Iðnaðarbankann, og urðu þeir félagar í öðru sæti. „On line“ Iðnaðarbankinn var tengdur við Reikni- stofu bankanna þann lö.júnísl. ogbáðum við Finn að segja okkur í stuttu máli, hvernig það hefði gengið, og hvernig staðan væri í dag. Sjálf tengingin gekk framar öllum von- um. Undirbúningur hefði mátt vera meiri fyrir starfsmenn, t. d. með námskeiða- haldi, en allir voru samtaka um að leggja sig fram, og óhætt er að segja að vel hafi tekist til. Framtakssemin var það mikil, að nokkrir starfsmenn fóru á eigin vegum á tölvunámskeið hjá Framsýn í haust og nú eru 9 manns á framhaldsnámskeiði hjá þeim. Stjórnendur bankans voru mjög ánægðir með þessi viðbrögð og kosta fólk- ið á námskeiðin. Það er nauðsynlegt að fylgjast vel með í tæknimálum svo fólk staðni ekki. Tölvu- væðingin er svo ör hérna hjá okkur. Starfs- fólkinu ber saman um að áhugaverðara sé að vinna í bankanum í dag en áður. Sem sagt, meiri fjölbreytni í starfi, og þeir óttast ekki að störfum fækki. Starfsemi bankans hefur aukist mikið við þessa þróun, dag- lega bætast við nýir viðskiptavinir og við leggjum áherslu á að vera í góðu, persónu- legu sambandi við þá. Ég hef þá trú, að í Jóhann Jóhannsson afgreiðir viðskiptavin bankans að nýlokinni beintengingu. Starfsmenn Sparisjóðs Akureyrar. — Dagmar Björgvinsdóttir, Kannveig Vernharðsdóttir, Sverr- ir Ragnarsson, útibússtjóri og Kristófer Vilhjálmsson. framtíðinni verði bankastarfið nokkurs konar ráðgjafastarf, því með aukinni tæknivæðingu vinnst meiri tími til að sinna viðskiptavininum. Samhliða þessu þarf að auka samskipti við yfirmenn, t. d. með reglulegum fundum. Þannig verður starfsfólkið virkara og hægt er að leysa vandamál sem upp koma mun fyrr en ella. Það var sérstaklega notaleg tilfinning sem fylgdi því að koma inn í Sparisjóð Akureyrar. Það var eins og að hverfa mörg ár aftur í tímann. Auðséð var að tæknivæðingin hafði ekki haldið innreið sína á þeim stað, enda voru starfsmenn áberandi „óstressaðir“. í stuttu spjalli við starfsmennina: Sverri Ragnarsson, útibússtjóra, Helgu, Dagmar, Rannveigu og Kristófer, kom fram, að sparisjóðurinn hefði verið stofnaður árið 1932. Daglegur afgreiðslutími er milli kl. 14.00-16.00. Þau mæta kl. 13.30 og vinna til kl. 16:45 og með því að sleppa kaffitíma fá þau greitt samkvæmt samningum SIB, 50% af fullum launum. Þau voru mjög ánægð með vinnutímann sem gefur að skilja, en sögðu að vinnuaðstaðan mætti gjarnan vera betri, en góð samvinna væri meðal starfsfólks. Beinlínuvæðing hefur ekki komið til tals og lítið sem ekkert hefði verið um námskeiðasókn varðandi vinn- una. Þetta stendur þó allt til bóta. Frá því þetta viðtal var tekið hafa starfs- menn sparisjóðsins gerst aðilar að SIB og vonumst við til, að það hafi verið þeim heillaríkt skref. í afgreiðslu Búnaðarbankans í Sunnu- hlíð hittum við fyrir Olaf Héðinsson, afgreiðslustjóra. Aðspurður um tækni og kjaramál hafði hann áhuga á að koma eftirfarandi að: „Tæknin flæðir yfir okkur hvort sem okkur líkar betur eða verr, og það þarf að standa mjög vel að fræðslu starfsmanna í þeim efnum. Við ættum að leggja áherslu á að stjórna tækninni en ekki hún okkur, og taka rólega og yfirvegað á öllum atrið- um varðandi tæknivæðingu. Kjaramál bankamanna eru í megnasta ólestri. Meðan einkaaðilar treysta sér til að greiða góð laun, er hart að sætta sig við að bankarnir geti ekki borgað okkur laun sem við getum lifað mannsæmandi lífi af. Annars líkar mér vel að vinna hérna, bæði er vinnuaðstaðan góð og andinn meðal starfsfólks til fyrirmyndar." Ólafur Héðinsson.

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.