Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 9
Tímarit Tónlistarfélagsins
2. Heiti hljómanna.
3. Þann grundvallarmismun, sem er á kontrapunkt og
hljómfræði.
4. Heiti og byggfingu venjulegra tónlistaforma (ljóð,
madrigal, fúga, kanon, og sér í lagi sónötu, kvartetts
og symfóníu.
5. Heiti, hljóð og meðferð helztu hljóðfæra. Góð æfing
er að festa athyglina við eitthvert visst hljóðfæri í
hljómsveitinni og fylgjast með því hvað það leggur til
málanna.
6. Ennfremur ætti áheyrandinn að reyna að kynnast
sem mestu af ágætustu tónlistarverkum.
7. Síðasta og þýðingarmesta atriðið er, að tónlistar-
áheyrendur ættu ef mögulegt er að læra að lesa tón-
verkin. Ég á ekki við, að þeir eigi að syngja þau
eða leika þau frá blaðinu, heldur lesa þau í kyrþey
eins og þeir lesa skáldsögu. Er auðvelt að komast svo
langt með nokkurri þolinmæði, ef ekki eru talin með
sum flókin nútímatónverk. Byrjið með að fylgjast með
í nótunum í einhverju lagi, sem þér kunnið utanað
(t. d. sálmalagi). Takið síðan fyrir önnur, sem yður
eru minna kunn. Lærið utanað lög, og reynið að hafa
þáu yfir í huganum. Fylgist með symfóníum og kvar-
tettum með nóturnar fyrir framan yður og lesið þau
yfir á eftir á meðan þau eru í fersku minni. Það mun
ekki líða á löngu, áður en nóturnar á blaðinu eru
jafn þýðingarmiklar og orð og þegar þér hafið náð
svo langt hafið þér lært nýtt mál og kynnzt nýjum bók-
menntum. Ég neita því ekki, að hægt sé að njóta tón-
listar án alls þessa, en ég vil aðeins leiða lesandanum
fyrir hugskotssjónir hve miklu nær hann mundi kom-
ast Beethoven og Bach, ef hann hefði jafn mikla
möguleika til að nálgast þá eins og hann hefir til að
nálgast Shakespeare og Milton.
9