Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 15
Tímarit Tónlistarfélagsins
TSJAIKOVSKÝ: FiSlukonsert í
D-dúr op. 35. Leikinn af Heifetz
H. M. V.: D.B 3159—3162 | og
Londonar Phil. hljómsveitinni.
Þessi konsert er í miklum met-
um hjá öllum fiðlusnillingum.
Heifetz, sem er í tölu hinna
fremstu þeirra og auk þess Rússi
að ætterni hefir sérstök skilyrði
til að' leika þetta verk.
*
MOZART: Píanósónata c moll.
Leikin af Walter Gieseking Col-
umbia LWX 202—203.
Gieseking er meöal beztu píanó-
leikara Þjóðverja, sem nú lifa.
Túlkun hans á píanóverkum nú-
tíma-tónskálda og Mozarts er sér-
staklega viðbrugðið.
*
BACH: Organ — sálmforleikir.
Leiknir af Albert Seweitzer.
Guðfræðingurinn, heimspeking-
urinn, læknirinn og tónlistamað-
urinn Schweitzer er frægur fyrir
æfisögu Bach’s, en það voru ein-
mitt sálmforleikirnir, sem gáfu
tilefniö til að hann reit það verk.
Schweitzer dvaldi langdvölum sem
læknir og trúboði í Afríku. Túlkun
hans á Bach þykir sérstæð.
Smælki
Cacadesus í St. Louis.
Um þrjú þúsund tónlistarvinir
fylltu Borgar-salinn (Municipal-
Auditorium) í St. Louis, og hlýddu
hugfangnir á píanósnillinginn
Casadesus töfra fram gjálfur
Scarlattisónötunnar, héldu niðri í
sér andanum þegar hann fór að
leika sónötu eftir Mozart, en
lirukku skyndilega viö þegar hægri
fótskör flygilsins brotnaði. Casa-
desus ypti öxlum, kallaði á sal-
þjónana til aö flytja burt flygil-
inn, og lauk síðan við sónötuna
á flygil tónleikasalsins. Á meðrn
var gert við hinn flygilinn og að
því loknu byrjaði hann að leika
á hann Ballötu eftir Chopin.
Hann var varla búinn að leika
meir en 20 takta, þegar fótskörin
brotnaði á ný. Casadesus spratt
á fætur, fórnaði höndum, and-
varpaði „I arn sorry,“ og fór
út af sviðinu til að leita að
umsjónarmönnunum. Hann náði
aðeins í einn þeirra og var sjálfur
að strita við að hjálpa honum að
flytja flygil no.l út og no. 2 aft-
ur inn. Meðan þeir voru aö bisa
við flygil no. 1 datt einn fóturinn
undan honum. Hálfsturlaður
reyndi Casadesus að koma fæt-
inum undir flygilinn aftur. Áður
en hann kom inn aftur, notaði
ókunnur trúboði tækifærið til að
stökkva upp á sviðið, og hélt þar
ofurlítinn ræðustúf í því skyni að
fá menn til að gefa ölmusu til
„United Charities". Áheyrendur
lofuðu honum að tala í nokkrar
mínútur en æptu síðan, fussuðu
og sveiuðu og hrópuðu hann niður.
Casadesus birtist á ný all-
ófrýnilegur á svip. •— Áheyrendur
fögnuðu honurn með ópum og
klöppum. Hann settist niður, þaut
gegnum Ravel og Chopin, en
þurfti i sífellu að sporna á móti
þvi að' hjálparflygillinn, sem stóð
á járnsleða, rynni burt frá hon-
um. Tónlistarrýnendur í St. Louis
spáðu því, að St. Louis myndi
seint gleyma Casadesus og að
Casadesus myndi æfilangt bera
með' ser endurminninguna um St.
Louis. — (Úr ameríska tímarit-
inu „Time").
15