Jazz - 01.03.1947, Síða 5
Carl Billic/i og hljómsveit hans, er lé\ á Hótel ísland,
Billich kominn aftur
Hinn vinsæli píanóleikari og hljómsveitar-
stjóri, Carl Billich er kominn aftur til Islands
eftir að hafa verið í haldi hjá Bretum frá
1940. Tíðindamaður blaðsins hitti Billich að
máli milli æfinga, en hann hefur nú tekið að
sér stjórn hljómsveitarinnar í Breiðfirðinga-
búð.
Billich er fæddur í Wien 1911. Hann byrj-
aði að spila 8 ára gamall, fyrst hjá sérkennara,
en síðan á tónlistarskólanum í Wien og lauk
þaðan prófi.
Hann spilaði fyrst 1931 með hljómsveit
Franks Fox, er lék í Scala í Wien, en sti
hljómsveit var mjög stór og lék bæði jazz og
konsertmúsik. Til íslands kom Billich árið
1933 og lék allan tíman á Hótel Island, eða
þar til að hann var fluttur til Isle of Maine.
Eftir fangavistina hjá Bretum fór Billich
til Austurríkis.
T. „Hafðir þú þína eigin hljómsveit í Aust-
urríki ?“
B. „Já, ég hafði átta manna hljómsveit í
JAZZ 5