Jazz - 01.03.1947, Blaðsíða 8
Duí{e. Ellmgton hefur í hyggju að fara til
Evrópu einhverntíma á þessu ári ásamt hljóm-
sveit sinni. Duke var í Evrópu fyrir stríðið.
Sonur hans hefur stofnað sína eigin hljóm-
sveit og er álitinn mjög efnilegur stjórnandi.
Don Redinan hefur verið í Kaupmanna-
höfn og fékk troðfullt hús og konunglegar
móttökur og var hinn svarti jazzfursti hrif-
inn af dönskum jazz og hélt „jam session"
með dönskum jazzleikurum.
Nat Gonella hefur verið i Svíþjóð með 12
manna hljómsveit: Nat Gonella, Bruts Gon-
ella, Monty Montgomery (ekki marskálkur),
Fred Dinnings (tp), Frank Osborn (tp), Jock
Forbes, Ken Lumb, Dennis Cracknell, Duggie
Campell (sax.), Eddie Farrow (p), Bill
Haines (b), Phil Seaman (dm) og Helen
Mack (s).
Harry Rarry hefur ráðið sig til lengri tíma
á Pottomac gistihúsið í London, en mun koma
til Islands næsta haust. Söngkona með sex-
tettnum nú er Doreen Villiers.
Það er sagt í Bandaríkjunum að fólk þar
sé orðið þreytt af öllum þeim Sinötrum og
Crosbyum, sem nú eru þar. Plötusala hefur
minnkað, og þó að stúlkur á aldrinum 14—16
ára elski ennþá Dick Haymes, Andy Russel
og Perry Como, er það fólk, sem mest kaupir
af plötum orðið hundleitt á þessum sætsúpu-
söngvurum.
Þó er engin hætta á að þessir söngvarar
fari á vonarvöl. Til dæmis á „singing Cow-
boy“ Gene Autry mörg kvikmyndahús og
Bing Crosby á margar niðursuðuverksmiðjur
og hestauppeldisstöðvar, allt keypt fyrir hina
gullnu raust.
1 hverju heftijazz munum við reyna
að birta lista yfir nýjustu jazzplötur
frá Amerí/{u, Englandi, Belgíu, Hol-
landi, Té/{/{óslóvakiu og Norður-
löndunum.
Mjög fáar danskar jazzplötur hafa borizt
hingað eftir styrjöldina, en þær, sem komið
hafa, hafa sýnt mikla framför í hæfni hljóð-
færaleikaranna, þótt ennþá skorti mikið á
að leikurinn sé frjáls og óháður og hljóðfæra-
leikurunum hættir til að vera of „mekkan-
iskir“ bæði í „Rythma“ og „Improvasionum“
og útsetningarnar eru oft og oftast ófrum-
legar.
Beztu hljómsveitir danskar eru í dag:
Peter Rasmussen, Leo Mathiesen og Svend
Asmussen, er leika fyrir „Tono“ og Quintett
Sven Stilbergs og hljómsveit Thore Erlings,
er leika fyrir „Musica“.
T. d. er leikur Sven Stilbergs-quintettsins
í langinu „Body and Soul“ (Musica A 9100)
mjög sérkennilegur og skemmtilegur. En
samkvæmt danska tímaritinu Jazzinforma-
ionen er hljómsveit Peters Rasmussens álitin
bezta danska jazzhljómsveitin árið 1946. Hún
leikur í „Skandía" í Kaupmannahöfn og
munu margir landar kannast við hana.
Margir jazzklúbbar eru einnig starfandi í
Danmörku og hafa þeir ráðið marga fræga
listamenn þangað t. d. Don Redman, Vic
Lewis, Nat Gonella, Benny Goodman og e.
t. v. Duke Ellington. Vonir standa einnig til
að takast megi að fá Joe Daniels ásamt
hljómsveit sinni til að koma til Danmerkur
eftir Islandsferðina, en samningar hafa ekki
tekizt ennþá.
Gerist meðlimir í Jazzklúbbnum!
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H-F
8 JAZZ