Jazz - 01.03.1947, Blaðsíða 6
Wien, 2 saxóíóna, 1 trompet, 1 trombón, 1
bassa, 1 harmónikku, 1 trommu og svo píanó.
T. „Hvernig dansmúsik spiluðuð þið mest?“
B. „Við spiluðum enska og ameríska jazz-
músik og svo rússneska músik. Rússnesk
dansmúsik, sérstaklega tangóar, er mjög
„melódisk“ og er byggð á laglínunni en ekki
eins og ensk-amerísk jazzmúsik á hljómum
og „rythma“.“
T. „Hvernig eru danshljómsveitirnar í
Austurríki ?“
B. „Þar eru 4—5 mjög góðar hljómsveitir
16—18 mannar, og þar hefur verið tekinn
upp nýstárlegur siður. 4—5 danshljómsveitir
taka sig saman og halda hljómleika á sunnu-
dagsmorgnum, hver leikur í 15 til 20 m,nútur
og er þetta mjög athyglisvert og vinsælt.
, T. „Hvernig er áhugi Austurríkismanna á
dansmúsik ?“
B. „Þar skiptist unga fólkið í tvo hópa,
annar hópurinn vill rólega músik, er veitir
frið og hvíld, en hinn finnur enga fróun í
þessari tilbreytingarlausu músik, finnst hún
þreytandi og þráir „improvissionir“ og aðrar
tilbreytingar í „themanu“.“
T. „Hvaða álit hefur þú á Boogie Woogie?“
B. „Að mínum dómi á þessi músiktegund
sér ekki langan aldur hún er of bundin við
bassann, er ekki nógu frjáls og hefur þar af
leiðandi takmarkaða þróunarmöguleika.“
Þessi músiktegund er upprunalega gerð til
þess að fá bassann sem sterkastann og jafnast-
ann, og er mjög skemmtilegt að spila hana.
T. „Hvaða ameríska hljómsveit líkar þér
bezt?“
B. „Af stórum Artie Shaw, af litlum Benny
Goodman með sextett og jafnvel kvartett. Af
enskum hljómsveitum líkar mér bezt Joe
Loss“.
T. „Hvaða píanóleikara líkar þér bezt við?“
B. „Nr. 1 Earl Hines og nr. 2 hinn hálf-
blinda Art Tatum. Duke Ellington finnst
Beztu jazzhljómsyeitir
Ámeríku 1946
ó'winghIjómsveitir: 1. Woody Herman, 2.
Duke Ellington, 3. Count Basie.
„Sweet“-hljómsveitir: 1. Tommy Dorsey,
2. Charlie Spivak, 3. Duke Ellington.
Litlar hljómsveitareingingar: 1. Cing Cole,
trió, 2. Louis Jordan, 3. Eddie Heyvood.
Litlar Söngeiningar: 1. Pied Pipers, 2. Ink
Spots, 3. Mills Brothers.
King oj Corn: 1. Spike Jones, 2. Guy Lom-
bardo, 3. Harry James.
Söngvarar án hljómsveitar: 1. Louis Jordan,
2. Kiiíg Cole, 3. Joe Turner.
Söng\onur án hljósveitar: 1. Mildred Bailey,
2. Ella Fitzgerald, 3. Billy Holiday.
mér mjög sérkennilegur og persónulegur lista-
maður.“
T. „Hvað hefur þú hugsað þér í framtíð-
inni‘..
B. „Það er erfitt að svara þessari spurningu.
Eg ætti enga ósk heitari en að mega vera
hér kyrr, en til þess þarf ég að fá landvistar-
leyfi og dvalarleyfi og ég veit, að það er sér-
staklega erfitt að fá dvalarleyfi. En ég vona
allt hið bezta.“
Við kveðjum Billich og vonum að íslenzk
dansmúsik megi lengi njóta krafta hans.
T. A.
6 JAZZ