Jazz - 01.04.1947, Blaðsíða 8
Albert Ammons . Art Tatum
Ef þú sæir Albert Ammons á götu mundi
þér verða starsýnt á hann, og gætir haldið
að þarna væri á ferðinni boxari í þungavigt,
hann er það sem kallað er „þungur á bár-
unni“. Hann er fimm fet og tíu þumlungar
og með bóga eins og bjarndýr, enda er leikur
hans mjög kraftmikill og vald hans svo mikið
yfir hljóðfærinu, að áheyrendum finnst ósjálf-
rátt að hann haldi slaghörpunni á lofti með
annari hendinni meðan hann leikur með
hinni.
Ammons er fæddur í Chicago árið 1907 og
er einn af brautryðjendum Boogie Woogie.
Hann er álitinn einn hinna beztu núlifandi
Boogie Woogie-túlkenda, bassinn er sérstak-
lega kraftmikill og samfelldur. Hann lék lengi
með hinum tveim miklu brautryðjendum
Boogie Woogie, Meade „LUX“ Lewis og Pete
Johnson oglærði mikið af þeim, sérstaklega
að fága tón sinn er var full hrjúfur.
Helztu lög Ammons eru Boogie Woogie
blues, Boogie Woogie Stomp, Bass gone crazy
og Monday Struggle.
Ammons er í stöðugum uppgangi sem
sólisti og notar alla möguleika Boogie Woogie
út í æsar.
Art Tatum lék fyrst inn á plötur fyrir
Brunswick árið 1932 og síðan hefur hann
leikið inn á fjölda af plötum, og þær hafa
You won’t be satisfied og seinasta lagið var
Roll ’em eftir Mary Lou Williams.
I þrem fyrstu hlutum hljómleiksins lék
hljómsveit Edmund Hall, en hann er þekkt-
ur klarinettleikari. Er hún þannig skipuð:
Edmund Hall (kl.), Irving Randolph (tr.),
Henderson Cambers (tb.), Charles Batman
(p), James Crawford (tr) og Johnny Willi-
ams (b). I seinasta hlutanum lék hljómsveit
Armstrongs með honum, en hún er fimm
saxófónar, fimm trompetar, fjórir trombónar,
píanó, 'bassi, guitar og tromma. Hljómsveit
Armstrongs er í einu orði sagt 'mjög léleg
og mér finnst það skrítið að margir góðir
sólóistar eru lélegir sem hljómsveitarstjórar.
A þessum hljómleikum kom einnig fram
söngkonan Mildred Baly. Hún er nú talin
bezta jazzsöngkona Bandaríkjanna.
Hljomleikarnir voru í alla staði mjög
ánægjulegir og er ekkert eins skemmtilegt
og velheppnaði jazzhljómleikar.
Louis Armstrong er fæddur 4. júlí 1900 í
New Orleans, en var látinn á uppeldisheimili
13 ára fyrir það, að skjóta af byssu á gamla-
árskvöld. Þar lærði hann að leika á trompet
og lék með hinum og þessum hljómsveitum,
þar til árið 1922, að hann réði sig hjá King
Oliver, en þaðan fór hann til Flecher Hender-
sons. Arið 1929 stofnaði hann sína eigin
hljómsveit. Hann hefur tvisvar farið til
Evrópu, 1932 og 1933. Hann hefur leikið í
mörgum kvikmyndum og verið margsinnis
kosinn bezti trompetleikari Bandaríkjanna og
söngvari.
Svavar.
6 JAZZ