Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 7
Blcmche Colman
Það leynir sér ekki, að Blanche Colman er
fædd Jazzisti.
Hún er snögg í hreyfingum, glaðleg, og
svörtu augun leiftra, er hún ræðir um áhuga-
mál sín.
Tíðindamaður Jazz í Englandi, átti viðtal
við Blanche fyrir kvennadálkinn og fer hér
á eftir það helzta úr því.
•— A hvaða hljúðfæri byrjuðuð þér að læra?
— Fiðlu, svaraði Blanche. — Þegar ég var
fimm ára gömul byrjaði ég að læra á fiðlu,
og lék sem atvinnuleikari í stórri hljómsveit,
þegar ég var 13 ára að aldri. Þá fékk ég á-
huga á dansmúsik og tók til við að læra á
saxófón og clarinett.
Téd Joyce réð mig þá til kvenhljómsveitar
sinnar og þar var ég til ársins 1941, er ég
stofnaði mína eigin hljómsveit.
Við réðum okkur fyrst í Covent Garden
Opera House og vorum þar 3/2 ár.
Hljómsveit mína nota ég sem dans- hljóm-
leika og „Show“-hljómsveit, og má það telj-
ast sjaldgæft, en hljómsveitinni er þetta
mögulegt m. a. vegna þess að allar stúlkurnar
leika á fleiri en eitt hljóðfæri, ég lék sjálf á
fiðlu, clarinett, alt og tenór-saxófón.
I hljómsveitinni eru nú sextán stúlkur, og
er sú yngsta 16 ára.
— Alítið þér að stúlkur geti leikið eins vel
á blásturhljóðfæri og karlmenn og umfram
allt, geta þær „improviserað“ jafn frjálst og
óþvingað og góðir karl-hljóðfæraleikarar ?
— Ég veit, að oft hefur verið efazt um
illa vinsælda undir stjórn saxófónleikarans og
útsetjarans Tex Beneke. Þeir leika ennþá
mikið af hinum gömlu góðu útsetningum
Millers.
Downbeat klúbburinn er mikið sóttur þessa
dagana. Þar koma fram Billie Holiday og
Art Tatum, svo það er ekkert einkennilegt.
Benny Goodman hefur hætt við hljómsveit
sína og mun stofna öðruvísi skipaða hljóm-
sveit eða sextett.
Duke Ellington er mjög upptekinn að
semja óperu byggða á söngvum negranna
fyrir utan að hann leikur á næturklúbbum,
útvarpi og í kvikmyndum.
Andre Kostelanetz og hljómsveit hans hafa
leikið inn á plötur Pionciana og Sing of India.
Góðar plötur, ef hægt er að ná í þær.
Þetta er það nvjasta frá Bandaríkjunum
í þetta sinn.
Kem aftur bráðlega,
JAZZ 7