Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 11
Hann gat þyí miður ekki komið
Allir jazzunnendur hafa orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum við það að Joe Daniels gat
ekki komið, og er það að vonum, þvi að það
hefði orðið einstæður viðburður í sögu hins
íslenzka jazzlífs.
Þann 22. apríl hringdi Joe Daniels til Jazz-
klúbbsins og sagði að Eric Langdon trompet-
istinn í hljómsveit Daniels gæti ekki komið
vegna veikinda, en Daniels tókst að ráða
þekktann trompetista í hans stað en 27. s. m.
barst skeyti frá Daniels og fer það hér á eftir:
„Get ekki komið, tveir veikir í hljómsveit-
inni, bréf fylgir“.
Þremur dögum seinna barst bréf Daniels
og var á þá leið, að þann 26. hafi guitarleik-
arinn Allan Medcalf orðið veikur af nýrna-
sjúkdómi, er hann hafi þjáðst af lengi og til-
kynntu foreldrar hans Daniels að hann gæti
ekki tekið þátt í Islandsförinni.
Tveimur tímum seinna barst Daniels frétt
um að kona Billy Amstell clarinettistans hafi
orðið veik af barnsförum og hafi læknirinn
bannað honum að yfirgefa London minnsta
kosti fyrst um sinn.
Joe Daniels er að vonum mjög leiður vfir
að geta ekki komið til Islands að sinni, en
strax og eitthvað lagast mun hann koma.
I bréfi sínu segir Joe að þetta sé í fyrsta
sinn að hljómsveit hans hafi ekki getað staðið
staðið við skuldbindingar og í fyrsta sinn
síðan hann byrjaði að leika á hljóðfa’ri að
hann hefur ekki staðið við loforð sitt.
JAZZ 1 1