Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 10
Þessi m ynd er af \venhl]ómsveit Blanche Colman.
getu kvenfólksins til að leika jazz, svarar
Blanche, — en ég get dæmt um það, að kven-
fólk er ekki síður fúst til að leggja að sér
við æfingar en karlmennirnir, og auk þess eru
stúlkur mun vandvirkari og nákvæmari en
karlmenn eru oft á tíðum, og ég er viss um
það, að konur eiga eftir að komast hátt á
himni Jazzins, er tímar líða fram.
Um leið og tíðindamaður blaðsins kvaddi
Blanche, lét hún í ljósi ósk um um að kynn-
ast íslenzkum kven-jazzleikurum, og kom-
um við því hér með til hlutaðeigenda.
Hljómsveit Blanche Colmans er tvímæla-
laust stærsta hljómsveitin, sem í eru aðeins
stúlkur, sem ti) er í Evrópu. Einnig er hljóm-
sveitin fyrsta kvenhljómsveitin, sem leikið
hefur í sjónvarp.
Það hefur aukizt nú á seinni tímum, að
konur hafi leikið jazz og hafa margar náð
miklum dugnaði, og aflað sér frægðar á þeim
vetvangi
Má t. d. nefna Ifillie Rogers (trompet), er
lék lengi með Woodie Herman svo má og
nefna saxófónleikarann Lana Hyams, sem er
aðalstjarnan í „The Martins“, er um getur á
öðrum stað í blaðinu.
Einnar stúlku ennþá má geta og er það
hin töfrandi Ivy Bentson, er hafði um tíma
stóra kvenhljómsveit, varð að hætta vegna
veikinda, en er byrjuð aftur. Ivy hefur ferðast
um flest lönd með hljómsveit sína, og hlaut
geysivinsældir, tíðindamaður Jazz í Englandi
mun reyna að hafa viðtal við Ivy fyrir næsta
tölublað Jazz.
10 JAZZ