Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Page 4
HANNIBAL VALDEMARSSON flijtur erindi um
dtmskan íslandsvin, Lútfvík Kristjdn Muller.
Luðvík Kristján Múller. Muller þessi var
nemandi Rasmus Kristjáns Rasks, hins kunna
málfræðings og íslandsvinar, og svipaði til
hans að því leyti, að han var málamaður með
afbrigðum. Múller gerðist kennari við Borg-
ardyggðaskólann, og var H. C. Andersen,
ævintýraskáldið, einn nemenda hans þar.
Míiller fékk snemma áhuga á íslenzkum forn-
sögum og íslenzkri tungu; hann dvaldist hér
á landi árið 1832, reit margar greinar og rit-
gerðir um ísland og íslendinga, er heim kom
og kemur þar fram sem endranær hlýhugur
hans í garð lands og þjóðar.
Dr. Björn Sigfússon flytur erindi um sam-
norræn mannanöfn. Mun hann einkum styðj-
ast þar við heimildir þær um mannanöfn,
sem er að finna í Landnámu og íslenzkum
fornsögum og rekja, að svo miklu leyti sem
unnt er, uppruna þeirra; benda á hversu vel
þessi nafnaforði hefur varðveizt með íslend-
ingum allt til vorra daga og bera það sam-
an við það, sem orðið hefur með Norðmönn-
um og Svíum á þessu sviði. Tíðkast enn með
báðum þessum þjóðum margt þeirra manna-
nafna er samnorræn voru á víkingaöld og
söguöld, en þó fleiri með Norðmönnum, þótt
Svíar muni hafa afbakað þau öllu minna en
þeir.
Prófessor Gijlfi Þ. Gíslason flytur erindi um
efnahagssamvinnu Evrópulanda, en nú eru
þrjú ár liðin síðan lönd þau, sem oft hafa
verið nefnd Marshalllöndin, efndu til efna-
hagslegrar samvinnu með sér í sambandi við
þá fjárhagslegu aðstoð, sem Bandaríkin létu
í té til viðreisnar atvinnuveganna í löndum
þessum. Komu ríki þessi á sameiginlegri
Jtofnun í þessu skyni, á sameiginlegum fundi
í París, og mun prófessorinn ræða nokkuð
hvernig starf þeirrar stofnunar og hvernig
efnahagssamvinnan hafi tekizt.
Bræðralag, kristilegt félag stúdenta, ann-
ast útvarpskvöldvöku þann 24. apríl. aÞr
flytur formaður Bræðralagsins, prófessor Ás-
mundur Guðmundsson, ávarpsorð, en síðan
verður söngur, kvartett undir stjórn Emil Als,
og ræður fluttar, meðal annars talar séra
Kristinn Stefánsson um kirkjuna og þjóðfé-
GYLFI Þ. GÍSLASON, prófessor, flijtur erindi um
efnahagssamvinnu Evrópulanda
4
UTVARPSBLAÐIÐ