Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Síða 5

Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Síða 5
Iturt iucð liavaOami Margir útvarpshlustendur munu kannast við brczka ritliöfundinn J. B.. Priestley, þótt ekki væri fyrir annað en þau leikrit hans, seni flutt hafa ver- ið i útvarpið. Hann er nú meðal kunnustu yngri rit- höfunda á Vesturlöndum; hafa bæði sögur hans, og þó einkutn leikrit, vakið mikla athygli og telja Bretar hann hklegastan sinna leikritahöfunda til að lyfta þar tnerki hinnar föllnu stríðskenipu, Bern- ard Shaws. Fyrir skömmu birtist greinarstúfur eftir Priestley í blaðinu Daily Iierald, sem hefur vakið mikla at- hygli og verið endurprentaður í mörgum enskum blöðum. Fer sá pistill hér á eftir í lauslegri þýðingu. Og enda þótt hann kunni að sjálfsögðu eiga meira erindi til annarra, væri ekki úr vegi fyrir okkur að lnigsa unt boðskap þann er hann flytur.. „Það var háð merkileg orrusta í Grand Central lagsvandamálin. Ýmiss merk tónlistaratriði verða flutt á þessu tímabili, til dæmis leikur strokkvartett útvarpsins kvartett. efir Beet- hoven, fluttur verður þáttur um franska tón- skáldið Hector Berlioz og síðan ýms verk eftir hann, er flutt verða af hljómplötum; meðal annars „Fordæming Fausts", sem Phil- hannoniska liljómsveitin í London leikur undir stjórn kunnasta hljómsveitarstjóra Breta, sir Thomar Beecham. Þá tekur Bíkisútvarpið upp þá nýlundu að flytja óskalagaþátt fyrir sjúklinga í sjúkra- húsum landsins. Sá þáttur verður fluttur í tíma miðdegisútvarpsins á mánudögum kl. 16—16,25, og sér Björn R. Einarsson hljóð- færaleikari um þáttinn. Er öllum sjúklingum í sjúkrahúsum heimilt að senda beiðnir um flutning þeirra laga, sem útvarpið á á hljóm- plötum, en helzt þurfa slík óskabréf að vera auðkennd stimpli eða rnerki sjúkrahússins. Utanáskriftin er „Óskalagaþáttur sjúklinga. Ríkisútvarpið". Er ekki að efa, að þessi nýi dagskrárliður njóti vinsælda og eiga for- ráðamenn Ríkisútvarpsins þakkir skildar fyr- ir hugulsemina. járnbrautarstöðinni í New York, og henni lauk með sigri þeirra, er börðust fyrir réttum og góðum mál- stað. Hátölurum hafði verið komið fyrir í járnbraut- arstöðinni, og var þeim ætlað það ldutverk að þruma og arga í eyru ferðamanna, samfelldan auglýsinga- áróður framleiðslufyrirtækja og álíka dagskráratriði, sem fyrirtæki þessi völdu og kostuðu. En þá gerðist það, að hinir hávaðahrjáðu Bandaríkjamenn töldu of langt gengið, gerðu uppreisn gegn ósómanum og unnu hinn frægasta sigur. Þessi uppreisn ætti að verða upphaf voldugrar, alþjóðlegrar hreyfingar, er hefði það á stefnuskrá sinni, að allar þær hávaðavítisvélar, sem misþyrma heyrnarskynvitum vorum, yrðu bölvaðar og bann- aðar, og eyðilagðar með ofbeldi, ef friðsamlegar að- gerðir revndust ónógar til árangurs. Það er hávaðinn, sem nú ríkir og 'ræður í heim- inum. Þögnin er flæmd i útlegð. A þessu sviði verð- ur að gera byltingu. Engum manni á að leyfast að knýja hlustardyr vorar, nema sannanlegt sé, að óhjá- kvæmilega nauðsyn bæri til. Enginn ætti að Ijá þeim frambjóðanda atkvæði sitt, sem beitir gjallar- hornum í kosningabaráttunni. Ef til vill ættum vér að krefjast lagalegrar heimildar til að hefja skothríð í glugga á liíbýlum hvers og eins, senr leyfir sér að stilla útvarpstæki sitt í fyllstu tónhæð! Vei þeirn, sem hávaðanum valda!“ PÁLL S. PÁLSSON, söngstjóri, stjórnandi barna■ söngflokks útvarpsins. UTVARPSBLAÐIÐ 5

x

Útvarpsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpsblaðið
https://timarit.is/publication/726

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.