Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Qupperneq 9

Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Qupperneq 9
isstund kl. 6,40; starfshljómleikar alla þriðjudaga kl. 9,40—11,00 og alla föstudaga kl. 9,00—11,00; skóla og kennsluútvarp alla þriðjudaga og föstudaga kl. 8, miðvikudaga kl. 7,45 og fimmtudaga kl. 7,15. Létt tónlist alla virka daga kl. 11,10. Fréttir alla virka daga kl. 5,30; 7,00; 11,30; 18,00; 21,15. Veður- lýsing og veðurspá er lesið á eftir fréttum. Utvarpstími alla virka daga kl. 5,15—14,00 og kl. 15,30— 22,30. Sunnudagar: tónleikar af plötum kl. 9,00, messa kl. 10. Út- varpstími frá ld. 6,50—22,30. Auk ]>ess er iitvarpuð á stutt- bylgjulengd 19,80 m — 49,46 m. á sænsku, ensku, frönsku og þýzku. Meðal annars útdráttur úr almennu dagskránni kl. 5,15—7,30 á 49,46 m. og 27,83 m. bylgjulengd; kl. 7,30-23,00 á 25,63 m. og 19,80 m. bylgjulengd. Útvarp til sænskra sjómanna á höfum úti miðvikudaga og fimmtudaga kl. 7,15; 15,15 og 1,15 á sömu bylgjulengdum. Skráð- ir útvarpshlustendur eru 2,128,515 af 7,000,000 íbúum. Fínnlond Lahti: Bylgjulengd 1181 m Útvarpstími virka daga kl. 4,30— 6,20; 8,50-12,10 og 15,00-21,00. Sunnudaga kl. 5,45—21. Útvarpað er bæði á finnsku og sænsku. Út- varpshljómsveitin leikur á sunnu- dögum, þriðjudögum og fimmtu- dögum, ýmist kl. 18,25 eða kl. 20. Symfoníuhljómsveit á sunnudög- um kl. 12,35—13,35 og á föstudög- um kl. 18,05-19,00. Stuttbylg]uútvarp á 49,02 m., 31,40 m., 19,75 m og 16,85 m bylgjulengd. „Ég veit, að vður finnst heimsókn mín dálítið einkenni- leg, og ég lái yður það ekki“, mælti hann. „En eins og ég sagði yður áðan, þá er ég á flótta, og flóttamaður ræður ekki för sinni. Annars veit ég ekki hvers vegna ég er að flýja. Mér er ljóst, að flótti minn er þýðingarlaust með öllu, þar eð þeim hlýtur fyrr eða síðar að takast að handsama mig.“ Hnn reis til hálfs úr sætinu, hallaði sér fram á skrifborðið og tók að stara á mig. Það var kominn óviðkunnanlegur gljái á augu hans, og ósjálfrátt fór ég að fitla við fána- stöngina á borðinu. „Gerið nú bón mína“, mælti hann lágt. „Skrifið niður, það sem ég segi yður, — þér þurfið ekki að gera það jafn- ótt og ég tala, það breytir meira að segja engu, þótt þér gerið það ekki, fyn- en ég er farinn, — en skrifið það nið- ur. Ætlið þér að gera það?“ „Já, — það er ekki nema sjálfsagt“. „Ég hef um langt skeið kynnt mér þessa tækni þeirra, skal ég segja yður, og ég hef uppgötvað leyndarmál, sem þeir vita ekki sjálfir, og þess vegna veita þeir mér eftirför og vilja handsama mig. Og það er einmitt þetta leyndar- mál, sem þér eigið að skjalfesta, svo að það glatist ekki með mér. Skiljið þér það?“ „Já, — það er ósköp auðskilið“. „Sjáið þér til. Valdhafar stórveldanna hafa fjölda há- lærðra vísindamanna í þjónustu sinni, eins og þér vitið. Sumir þessara vísindamanna starfa aðeins að J)ví að gera tæki og efni, sem drepa mennina og eru því hættulitlir, aðrir að gerð efna, sem drepa manninn í mönnunum og þeir eru hættulegri. Skoðanavökvinn er eitt þeirra efna. sjáið þér til. Þessi vökvi, sem þeir dæla inn í heilann. Fyrstu álnif hans eru þau, að manninum hverfur öll litaskynj- (( un . . . „Litaskynjun?“ „Já, — eftir það sér hann aðeins svart eða livítt. Allt, sem hann sér . . . já, allt, sem hann heyrir og skynjar á einn eða annan hátt, verður honum annaðhvort svart eða hvítt og á hverjum tíma. Og síðan láta valdhafarnir framkvæma þessa aðgerð á öllum sínum þegnum . . . hún er ofur einföld og sársaklaus, eins og ég gat urn áðan. Holnálarnar, sem þeir eru farnir að nota, eru svo hárgrannar og oddhvassar. Þeir læðast aftan að mönnum, og þeir finna ekki til stungunnnar." Framliald í næsta blaði. UTVARPSBLAÐIÐ 9

x

Útvarpsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpsblaðið
https://timarit.is/publication/726

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.